Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 51
ÍSAFJARÐARBÆR
Hafnir Ísafjarðarbæjar – Hafnarstjóri
Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf hafnarstjóra frá 1. janúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga til að leiða öflugt starf hafna Ísafjarðarbæjar. Næsti yfirmaður hafnarstjóra er bæjarstjóri.
Hafnarstjóri sér um daglega stjórnun hafnarsvæðisins, deilir út verkefnum, sinnir starfsmannastjórnun og þarf jafnframt sjálfur að geta sinnt
öllum helstu verkum á höfninni. Viðkomandi kemur að kynningu og markaðssetningu á höfnum Ísafjarðarbæjar og stuðlar að stöðugum
umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Hafnirnar eru fjórar, þ.e. á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri og er öll grunn-
þjónusta í boði á þessum stöðum.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2022. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri
í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst á arnalara@isafjordur.is.
Umsóknir skulu sendar til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal
fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf og afrit af viðeigandi réttindum/prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Daglegur rekstur og stjórnun hafnarsvæðis
• Starfsmannastjórnun
• Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlana og ábyrgð á fjárreiðum
• Umsjón með viðhaldi fasteigna, mannvirkja og tækja í eigu hafnar-
sjóðs
• Umsjón og eftirlit með veittri þjónustu
• Kynning og markaðssetning hafnarinnar og samskipti við viðskipta-
vini
• Upplýsingagjöf og vinnsla mála til hafnarstjórnar
• Stefnumótun í málefnum hafnanna
• Yfirumsjón með hafnsögu og stjórn á umferð um hafnarsvæði
• Sinnir helstu verkum í forföllum annarra starfsmanna
Hæfniskröfur:
• Menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
• Reynsla af rekstri er skilyrði
• Þekking á hafnarmálum og opinberri stjórnsýslu
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót
• Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg, önnur
tungumál kostur
• Góð almenn tölvukunnátta og þekking á excel
• Reynsla af starfsmannastjórnun æskileg
• Þekking á skipulags- og umhverfismálum kostur
• Skipstjórnarréttindi til stjórnar skipa, 24m lengd hið minnsta (A –
réttindi) kostur
• Stærri vinnuvélaréttindi kostur
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu
Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-
Geislagata 9 Sími 460 1000 www.akureyri.is akureyri@akureyri.is
Hvítt letur
Skólastjóri Giljaskóla á Akureyri
Staða skólastjóra Giljaskóla á Akureyri er laus til
umsóknar.
Leitað er að bjartsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi
með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum
sínum og leggur áherslu á velferð og framfarir nemenda
í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra. Skólastjóri
stýrir og ber ábyrgð á faglegri þróun, daglegum rekstri,
mannauðsmálum og annarri starfsemi skólans og að
skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir.
Giljaskóli er framsækinn skóli sem hefur verið í
fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun
náms- og kennsluhátta.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. nóvember 2022 eða
skv. samkomulagi.
Sjá nánari upplýsingar um starfið á heimasíðu
Akureyrarbæjar www.akureyri.is þar sem sótt er
um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2022.
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 15. október 2022