Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 33
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 15. október 2022
Berglind Árnadóttir lyfjafræðingur segir að áætlað hafi verið að 50-90 prósent hálsbólgutilfella hjá fullorðnum og 70 prósent hjá börnum, stafi af sýkingum
af völdum öndunarfæraveira. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Septabene með þríþætta virkni
gegn særindum og bólgu í hálsi
Septabene citron og honning munnsogstöflur og Septabene munnholsúði, eru ný lyf án lyfseðils
til meðferðar við einkennum hálsbólgu, sem tengjast vægum sýkingum í munni og hálsi. 2
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI
sandragudrun@frettabladid.is
Mörgum þykir gott að fá sér rauð-
vínsglas í lok vikunnar til að njóta
með góðum mat, slaka á yfir góðri
mynd eða skemmta sér í góðra
vina hópi. En leiðinlegur fylgi-
fiskur þess að drekka rauðvín er
bláar eða fjólubláar tennur. Sum
virðast óheppnari en önnur hvað
þetta varðar. En hvað veldur því
að tennur sumra litast af rauðvíns-
drykkju en annarra ekki? Skýring-
una er bæði að finna í mismunandi
genasamsetningu fólks, en líka í
hreinlætisvenjum þess.
Sterkur glerungur hjálpar
Margt í rauðvíni veldur því að það
litar tennur. Vínið er súrt, sem
þýðir að það brýtur niður gler-
unginn. Það gerir yfirborð tann-
anna ójafnara og líklegra til að taka
í sig litarefni. Rauðvín inniheldur
litarefni sem gefur því dökkrauðan
lit og tannín, sem hjálpar litarefn-
unum að bindast við tennurnar.
Fólk með sterkan glerung er ólík-
legra til að fá bláar tennur vegna
víndrykkju. Sterkur glerungur
hjálpar tönnunum að verjast súrri
fæðu og litarefnum. Þau sem eru
með viðkvæman glerung geta varið
sig gegn vínblettum með því að
bursta tennurnar áður en fyrsti
sopinn er tekinn. En þar sem tann-
burstun getur rispað glerunginn
ætti að bursta þær hálftíma áður en
drykkjan hefst og alls ekki bursta
þær milli glasa. Að borða með
víninu hjálpar líka við að halda
tönnunum hvítum. n
Bláar blettóttar
rauðvínstennur
Rauðvín getur litað tennurnar.