Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 35
Viktor Ben Gestsson stund-
aði kraftlyftingar lengi og
náði meðal annars heims-
meistaratitli í bekkpressu.
Íþróttin getur verið erfið og
auðvelt að slasast, sem Vikt-
or hefur fundið fyrir. Hann
þekkir vel hversu erfitt er
að vera með verki og veit að
margt ungt fólk er að berjast
við það sama.
„Ég bjó í Noregi í nokkur ár og
þurfti á breytingu að halda. Hætti
í vel launuðu starfi og flutti til
Íslands á tíu dögum. Ég skoðaði
margar atvinnuauglýsingar en
þegar ég las auglýsinguna frá
OsteoStrong sótti ég strax um,
mætti niður eftir samdægurs og
daginn eftir í viðtal,“ segir Viktor
Ben.
Ég var á réttum stað
„Ég vissi hvað OsteoStrong var því
mamma mín mætti í prufutíma
þegar það var að byrja á Íslandi.
Henni fannst OsteoStrong mjög
skrítið og furðulegt. Mér fannst
það hins vegar mjög áhugavert
og fór strax að kynna mér hug
myndafræðina í gegnum netið
en fékk ekki tækifæri til að prófa.
Þremur árum síðar var ég svo allt
í einu farinn að vinna hjá Osteo
Strong sjálfur. Ég fann það strax
að ég var á réttum stað. Ég hef
nefnilega gengið í gegnum ýmis
legt með minn skrokk,“ segir hann
enn fremur.
16 ára með 170 kíló í bekk
„Þegar ég var 15 ára byrjaði ég að
æfa kraftlyftingar. Fljótlega fór
ég að keppa fyrir Breiðablik því
þjálfarinn frétti að 16 ára strákur
væri farinn að taka 170 kíló í bekk.
Ég mætti á Íslandsmeistaramót í
kraftlyftingum tveimur mánuðum
síðar og fjórum mánuðum seinna
verð ég Evrópumeistari í mínum
ungmennaflokki. Fljótlega eftir
það tók ég þátt í heimsmeistara
móti í Texas. Þar náði ég mér í
brjósklos og því varð þetta frekar
stuttur ferill hjá mér.
Heppinn að vera ekki í hjólastól
Það kom ekki í ljós strax að þetta
væri brjósklos. Seinna var mér sagt
að ég væri heppinn að vera ekki í
hjólastól. Eftir þetta var ég mörg,
mörg ár í veseni með bakið á mér
og keppti einungis í bekkpressu
í um fjögur ár. Ég komst upp
með það þrátt fyrir bakverkina,“
upplýsir Viktor og bætir við: „Ég
þyngdist sífellt meira af vöðvum
og var orðinn 159 kíló þegar ég var
þyngstur, sem var ekki talin góð
hugmynd út af bakinu. Ég keppti í
bekkpressu og náði mér í heims
meistaratitil í mínum flokki. Í
kraftlyftingum náði ég að meiða
mig í hnjánum, olnbogunum, öxl
unum, mjöðmunum og bakinu. Ég
var farinn að kynnast fullmörgum
sjúkraþjálfurum og var vikulega
hjá kírópraktor. Ég prófaði að
létta mig en það var heldur ekki
lausnin,“ segir hann.
Féll niður tvær hæðir
„Í Noregi vann ég á skipi og lenti í
vinnuslysi. Lyftist óvart upp með
krana, datt illa niður tvær hæðir
á mjöðmina og gat ekki gengið í
tvær vikur. Þetta var mjög slæm
bylta og hjálpaði bakinu ekki held
ur. Ég fór fullsnemma í vinnuna
og haltraði í sex mánuði,“ greinir
Viktor frá.
„Þegar ég byrjaði að vinna hjá
OsteoStrong var ég hokinn, því ég
hafði neyðst til þess að byggja upp
brjóstkassann meira en bakið út
af verkjum. Bakverkirnir höfðu
minnkað en ég var sífellt þreyttur í
efra bakinu og með snúinn spjald
hrygg. Mjöðmin var alltaf að plaga
mig.“
Gat ekki unnið heila vinnuviku
Viktor byrjaði að vinna 80% starf
því hann treysti sér ekki til að
vinna heila vinnuviku. „Ég átti frí í
einn dag í viku en það nýttist bara
í hvíld og slökun, ég gat ekkert
annað gert. Ég svaf lítið og þurfti
enn hjálp við verkjastjórnun. Ég
ákvað að hætta í ræktinni, gerði
bara OsteoStrong æfingar og
notaði X3, eða teygjur sem Osteo
Strong selur fyrir styrktarþjálfun.
Ég fann mjög mikinn mun því
þetta fór betur með liðina mína
og ég fékk ekki jafn miklar harð
sperrur. Þegar maður er slæmur í
baki er svo mikilvægt að fótlegg
irnir verði ekki stífir.
Þegar ég gerði OsteoStrong
æfingarnar í fyrsta sinn sá leið
beinandinn að ég væri svolítið
kraftalegur þannig að hann leyfði
mér að taka almennilega á með
fótunum. Ég hef aldrei á ævinni
sofnað jafn fljótt. Mér fannst það
geggjað því að ég hef alltaf verið að
drepast í líkamanum á kvöldin.“
Skrítið að vera verkjalaus
Viktor gerði bara eina Osteo
Strong æfingu í viku eins og allir
og skrifaði hjá sér mánaðarlega
hvernig honum leið. „Hvernig
verkirnir voru á skalanum 110
í öllum liðum og baki. Hvernig
taugaverkirnir væru, hversu stífur
ég var í bakinu. Eftir átta skipti
var taugaverkurinn sem leiddi
niður í fótinn hættur að trufla
mig en hann hafði verið óþolandi.
Verkirnir í mjöðminni voru miklu
minni, bakið orðið töluvert betra
og mér fannst ég vera miklu sterk
ari í hnjánum, sem ég fann helst
fyrir þegar ég var að hlaupa í fót
bolta. Hægt og rólega eftir 12–20
skipti minnkaði þetta töluvert og
stundum er enginn verkur. Það er
mjög skrítið að vera allt í einu ekki
með neinn verk, það verður fyrst
pínu einmanalegt því maður er
svo vanur að hafa hann alltaf hjá
sér,“ segir hann og glottir.
Skemmtilegt í fótbolta
„Eitt það skemmtilegasta sem ég
geri er að spila fótbolta með bróð
ur mínum. Ég gat aldrei sparkað
fast í boltann út af mjöðminni en
nú er ég farinn að sparka svo fast
að bróðir minn bara hreyfir sig
úr markinu. Ég þarf að passa mig
áfram en þetta er allt miklu, miklu
betra. Ég fæ enn einhver verkja
skot í mjöðmina en nú eru þau
svo sjaldgæf að mér bregður þegar
þau koma, áður voru þau daglegt
brauð.“
Laus við svima
„Ég hef verið að glíma við svima
og bílveiki og gat til dæmis ekki
horft á símann minn í strætó. Eftir
nokkur skipti í OsteoStrong gjör
breyttist það. Ég fór í f lug um dag
inn og það er allt annað. Margir
meðlimir eru að upplifa það sama
og finna mikinn mun á sér.“
Allt OsteoStrong að þakka
„Ég er ekki lengur þreyttur og
stífur í efra bakinu, ekki hokinn
og ég get aftur setið jafn lengi og
ég þarf. Brjóstkassinn er allur að
opnast og lyftast. Stundum líður
mér þegar ég labba um eins og ég
sé agalega montinn með sjálfan
mig, því ég næ loksins að standa
almennilega uppréttur. En þetta
er náttúrulega bara loksins rétt
staða. Það er allt OsteoStrong að
þakka.“
Get gert það sem mig langar
„Ég get unnið 100% starf núna og
meira ef mig langar til þess. Ég
leiði fólk í gegnum æfingarnar
alla daga og mér finnst það mjög
skemmtilegt. Ég hélt fyrst kannski
að þetta yrði einhæft því þetta
eru í raun bara fjórar æfingar, en
þú myndar tengsl við alla hérna.
Þegar maður er að spjalla við gott
fólk líður dagurinn svo of boðslega
hratt.“
Of gott til að vera satt
„Við heyrum frábærar árangurs
Skrítið að vera ekki með verki
Viktor Ben Gestsson var öflugur kraftlyftingamaður en bæði íþróttameiðsl og vinnuslys gerðu það að verkum að hann var alltaf verkjaður. Viktor segir að
OsteoStrong hafi gert kraftaverk fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Viktor segir að æfingarnar séu einfaldar en ótrúlega áhrifaríkar, hann er til dæmis laus við svima.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk um 73% á ári
að meðaltali.
n Auka jafnvægi um 77%
á fimm skiptum.
n Minnka líkur á meiðslum.
n Bæta líkamsstöðu.
n Minnka verki í baki og
liðamótum.
n Lækka langtíma blóðsykur.
n Auka beinþéttni.
Bylting í æfingum
OsteoStrong er byltingar
kennt æfingakerfi sem
hjálpar fólki á öllum aldri að
styrkja sig. Meðlimir Osteo
Strong mæta einu sinni í viku
og ná í 20 mínútna heimsókn
að þétta vöðva, sinar, liðbönd
og bein, bæta árangur og
fyrirbyggja meiðsl.
sögur á hverjum degi og þá veit
maður að vinnan manns skiptir
máli. Stundum hljómar þetta allt
of gott til að vera satt, en svo þegar
svona margar sögur safnast saman
þá treystir maður OsteoStrong
kerfinu enn betur. Mér finnst ég
enn vera að læra inn á tækin fyrir
sjálfan mig og mér finnst ég eiga
nóg eftir, eins og OsteoStrong veg
ferðin mín sé rétt að byrja. Ég verð
betri með hverri vikunni og ég sé
fram á að verða enn betri í fram
tíðinni.“
Rólegt umhverfi
„Ég hvet alla til að gefa Osteo
Strong séns, ekki vera feimin við
að koma og prófa. Allir sem vinna
hérna eru viðkunnanlegir. Flestir
sem koma láta vel af OsteoStrong
og líður vel hérna. Umhverfið er
rólegt, fólk ræður ferðinni sjálft og
við ýtum fólki alls ekki út fyrir sinn
þægindaramma í æfingunum, sem
skiptir miklu máli. Já, þetta bara
virkar.“ n
Stöðvar OsteoStrong eru í Hátúni
12, 105 Reykjavík og í Ögurhvarfi
2, 203 Kópavogi. Frían prufutíma
má bóka á osteostrong.is og í síma
419 9200.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 15. október 2022