Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 62
Sæbjúgnahylki +D3 frá
Arctic Star innihalda yfir 50
tegundir af næringarefnum
sem hafa margs konar
heilsueflandi áhrif á líkams-
starfsemina.
Arctic Star sæbjúgnahylki +D3
innihalda yfir 50 tegundir af
næringarefnum, eins og kollagen,
amínósýrur, taurín, chondroitin
súlfat, peptíð og fjölbreytt vítamín
og steinefni, sem geta haft mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega
starfsemi mannslíkamans.
Ein þeirra fjölmörgu sem
taka inn sæbjúgnahylki +D3 að
staðaldri er Kristín Snorradóttir,
jógakennari og heilsu- og vellíðun-
armarkþjálfi. „Ég tek inn sæbjúgu
með D3-vítamíni því það er mikil-
vægt fyrir konur á miðjum aldri að
passa upp á D-vítamínbúskapinn
vegna hormónabreytinga og hættu
á beinþynningu og fleiri þátta,
auk þess sem Íslendingar almennt
þurfa meira D-vítamín.“
Arctic Star sæbjúgnahylkin eru
framleidd úr sæbjúgum sem eru
veidd í Norður-Atlantshafinu við
strendur Íslands. Sæbjúgnahylki
+D3 vítamín hefur lengi verið
þekkt fyrir að hjálpa til við frásog
kalsíums og fosfórs, en nýjar rann-
sóknir sýna að D3 gegnir einnig
hlutverki í hjarta- og æðastarfsemi
og styður heilbrigða bólgusvörun.
Heilsan og náttúran heillar
Kristín er eigandi Fagvitundar
en þar vinnur hún heildrænt að
heilsueflingu fólks, bæði með aust-
rænum og vestrænum aðferðum. „Í
grunninn er ég þroskaþjálfi en hef
auk þess menntað mig sem jóga-
kennari, jógaþerapisti, jóga nidra-
kennari og heilsu- og vellíðunar-
markþjálfi auk þess að bjóða upp á
aðrar aðferðir til bættrar heilsu.“
Alveg frá því hún var stelpa
hefur heilsan og náttúran verið
mikið áhugaefni. „Sem fagaðili
sem vinnur heildrænt með heilsu
og að heilsueflingu, legg ég ekki
nafn mitt við neitt nema ég hafi
persónulega reynslu af því. Ég er
alveg viss um að náttúran okkar
býr yfir mesta lækningamætti
sem fyrirfinnst. En ég trúi því líka
einlæglega að við sem manneskjur
getum gert svo margt til þess að
bæta og efla heilsu okkar með
hreyfingu og slökunaraðferðum.“
Sjálf hefur Kristín tekist á við
heilsubrest, en hún glímir við ill-
víga vefjagigt sem hún hefur lært
að vinna úr með hreyfingu og nátt-
úrulegum aðferðum. „Maðurinn
minn heitinn barðist við krabba-
mein í 26 ár og það var hann sem
kom mér á bragðið með sæbjúgun.
Hann fann verulegan mun á lið-
verkjum eftir að hann byrjaði á
þeim og ekki síst eftir að hann
komst á fjórða stig og lyfin voru
farin að valda ýmsum óþægindum.
Það tók hann langan tíma að fá
mig til að prófa en ég lét tilleiðast
og fann muninn þegar ég hafði
tekið þau í nokkurn tíma og ekki
síður eftir að ég hætti inntöku, þá
fann ég sannarlega muninn.“
Auk sæbjúgnahylkja +D3 býður
Arctic Star líka upp á hefðbundin
sæbjúgnahylki og Marine Colla-
gen. Sæbjúgnahylkin eru góð við
stirðleika og liðverkjum, þau auka
blóðflæði auk þess að innihalda
kollagen. Marine Collagen inni-
heldur kollagen sem hefur góð
áhrif á ónæmiskerfið, húðina,
hárið og neglurnar. n
Varan fæst í betri apótekum, Hag-
kaupum, Fjarðarkaupum, Heim-
kaup.is og hjá Fagvitund. Nánari
upplýsingar á arcticstar.is.
Náttúran býr yfir lækningamætti
Kristín Snorradóttir, jógakennari
og heilsu- og vellíðunarmarkþjálfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sæbjúgnahylki +D3, Sæbjúgnahylki og Marine Collagen frá Arctic Star.
Eva María Hallgrímsdóttir,
kökuskreytingameistari og
eigandi Sætra synda, veit
fátt skemmtilegra en að
baka fagurlega skreyttar
kökur og bleiki liturinn er
hennar uppáhalds, sérstak-
lega í október. Hún var með
bleikar kræsingar á bleika
deginum í gær.
sjofn@frettabladid.is
Bleika kakan
190 g smjör (við stofuhita)
410 g sykur
3 egg
375 g hveiti
5 msk. kakó
1½ tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
3 dl mjólk
2 tsk. vanilludropar
Byrjið á því að hita ofninn í 175°C.
Hrærið smjör og sykur saman
þar til blandan verður ljós og létt.
Bætið eggjunum út í, einu í einu.
Blandið þurrefnunum saman og
hrærið þau saman við eggin og
sykurinn ásamt svo mjólkinni og
vanilludropunum. Setjið deigið
í smurð form (passar vel í þrjú 15
cm form eða tvö 20 cm form, hvort
sem þið viljið hafa kökuna hærri
og mjórri eða lægri og breiðari)
og bakið í 22–24 mínútur eða þar
til tannstöngull kemur hreinn úr
miðju kökunnar.
Smjörkrem
500 g smjör (við stofuhita)
500 g flórsykur
3 tsk. vanilludropar
Hrærið smjörið í nokkrar mínútur
í hrærivélinni þar til það er orðið
vel mjúkt og ljóst. Bætið flór-
sykrinum við í litlum skömmtun
og hrærið vel á milli. Því næst eru
vanilludroparnir settir saman við
og kremið hrært þar til það er létt
og ljóst (sirka 3 mínútur). Þegar
kökubotnarnir eru orðnir alveg
kaldir er hægt að setja kökuna
saman. Byrjið á að setja einn
botn á tertudisk, smyrjið því næst
smjörkrem yfir allan botninn og
setjið svo næsta botn ofan á. Ef þið
gerðuð þrjá botna þá endurtakið
þið þetta auðvitað einu sinni enn.
Hjúpið svo kökuna alveg að utan
með bleiku kremi. Best er að hafa
kökuna kalda og nota snúnings-
disk og spaða til að ná smjör-
kreminu sléttu og fallegu. Til að
lita kremið er hægt að nota bleikan
matarlit eða Litabomburnar frá
Náttúrulega gaman. Svo er bara
að skemmta sér við að skreyta
kökuna. Ég notaði lifandi blóm
en ég elska að skreyta með lifandi
blómum, er bæði svo einfalt og
gerir einnig svo mikinn vá-faktor.
Hindberja-marengsrósir
ganache
300 g súkkulaði að eigin vali – ég
notaði karamellusúkkulaði
2½ dl rjómi
Marengsrósir
4 stórar eggjahvítur
2 dl sykur
3 msk. hindberjasulta
Matarlitur að eigin vali
Byrjið á því að hita ofninn í 90°C.
Þeytið eggjahvíturnar þar til þær
eru orðnar stífar. Hrærið sykr-
inum hægt og rólega út í og þeytið
þangað til marengsinn er orðinn
vel stífur. Setjið sultuna, matarlit
og 3 matskeiðar af marengs-
inum í skál og blandið saman.
Bætið sultublöndunni rólega út
í marengsinn og hrærið varlega
saman. Setjið því næst marengsinn
í sprautupoka með rósastút (fæst
í Allt í köku – stútur 852 frá Ateco)
og sprautið honum á bökunar-
plötu með smjörpappír. Byrjið í
miðjunni á rósinni og gerið smá
doppu og sprautið svo í hring út
frá honum, einn til tveir hringir er
flott, fer eftir því hversu stórar þið
viljið hafa rósirnar. Rósirnar fara
svo inn í heitan ofn í tvær klukku-
stundir eða þar til þær eru alveg
stífar og orðnar þurrar.
Á meðan rósirnar bakast gerið
þið ganache-ið. Byrjið á að hita
rjómann í potti að suðu og setjið
súkkulaðið í skál. Ef notast er við
súkkulaðiplötur er best að saxa
þær niður í litla bita. Hellið heitum
rjómanum yfir súkkulaðið og
hrærið saman þangað til allt
súkkulaðið er bráðið og blandan
orðin slétt og glansandi. Leyfið
ganache-inu að standa í skálinni
þar til það er orðið alveg kalt. Þá
má setja það í hrærivél og þeyta
þangað til að það verður ljóst og
mjúkt.
Þegar marengsrósirnar eru
búnar að kólna má búa til sam-
lokur úr þeim með ganache á milli.
Tilvalið er að setja fersk hindber
líka á milli til að fá góðan fersk-
leika með súkkulaðinu. Þar með
eru komnar gullfallegar fylltar
marengsrósir.
Sítrónu- og hindberjabitar
Botninn
230 g smjör
100 g sykur
2 tsk. vanilludropar
1 tsk. salt
270 g hveiti
Hitið ofninn í 170°C. Byrjið á að
blanda öllu vel saman til að búa
til deigið. Setjið bökunarpappír í
eldfast mót (passar vel í ca 20x30
cm mót). Þrýstið deiginu niður í
eldfasta mótið þannig að það þeki
allan botninn. Bakið í sirka 20
mínútur. Á meðan botninn er að
bakast búið þið til sítrónu-hind-
berjablönduna.
Sítrónu-hindberjafylling
400 g sykur
50 g hveiti
6 stór egg
Safi úr 4 sítrónum
170 g hindber
Kremjið hindberin. Blandið öllum
innihaldsefnum í skál og notið
písk til að blanda öllu vel saman.
Takið botninn út úr ofninum og
hellið blöndunni ofan á meðan
botninn er enn heitur. Því næst
fer allt aftur inn í ofn í um 20–25
mínútur eða þangað til miðjan er
nokkuð vel stíf og vaggar ekki ef
ýtt er í formið. Leyfið bitunum að
kólna í 1–2 klukkustundir og setjið
þá svo í kæli í minnst klukkustund
í viðbót áður en á að skera þá. Best
er að skera þá alveg kalda. n
Rómantískar og bleikar kræsingar
Eva María kökuskreytingameistari með meiru veit fátt skemmtilegra en að
halda upp á bleika daginn með syndsamlega góðum bleikum kræsingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Syndsamlega
ljúffengar þessa
fallegu hind-
berja-marengs-
rósir sem gleðja
sælkerahjartað.
6 kynningarblað A L LT 15. október 2022 LAUGARDAGUR