Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 34
Illt í hálsinum?
ÞRÍÞÆTT VIRKNI
gegn særindum og bólgu í hálsi
„Sýkingar í öndunarfærum eru
meðal algengustu sýkinga sem
leggjast á menn. Þó að bakteríu
sýkingar geti valdið hálsbólgu
stafar meirihluti hálsbólgutilfella af
veirusýkingum. Áætlað hefur verið
að 5090% hálsbólgutilfella hjá full
orðnum og 70% hjá börnum stafi af
sýkingum af völdum öndunarfæra
veira,“ segir Berglind Árnadóttir,
lyfjafræðingur hjá LYFIS.
„Bakteríur eiga hlut að máli í
innan við 20% bólgutilfella í koki
eða hálseitlum. Ávísun sýklalyfja
til meðferðar við hálsbólgu er því
umdeild. Í þeim tilfellum sem
veirur eiga í hlut ætti hálsbólgan að
læknast af sjálfu sér á um það bil
viku og oftast er óþarfi að leita
til heilsugæslunnar.
Ákjósanleg meðferð við
hálsbólgu er því meðferð sem
dregur skjótt úr einkennum og
orsökum en byggir ekki á sýkla
lyfjum. Septabene vörurnar frá
Krka sótthreinsa munn og háls
og draga úr einkennum bólgu
og verkja í hálsi.“
Septabene
Septabene, sem framleitt er af
Krka, veitir heildstæða meðferð
við hálsbólgu. Septabene munn
sogstöflurnar koma með sítrónu
og hunangsbragði og munnhols
úðinn með mentólbragði.
Septabene inniheldur virku
efnin benzýdamín hýdróklóríð og
cetýlpýridíníum klóríð. Benzýda
mín hýdróklóríð er bólgueyðandi
gigtarlyf (NSAIDlyf) með
verkja stillandi, bólgueyðandi og
staðdeyfandi eiginleika. Cetýl
pýridíníum klóríð er breiðvirkt
sýkladrepandi efni. „Samsetning
sýkladrepandi, bólgueyðandi og
verkjastillandi eiginleika virku
efnanna, stuðlar þannig að þrí
þættri virkni sem gagnast vel til
Berglind segir
að Septabene
sé ákjósan-
leg meðferð
við hálsbólgu
þar sem hún
dregur bæði úr
einkennum og
eyðir orsaka-
valdi margra
sýkinga.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
meðferðar við sýkingum og bólgu í
efri hluta öndunarvegar,“ upplýsir
Berglind.
„Septabene Krka munnsogs
töflurnar og munnholsúðinn eru
ætluð til notkunar hjá einstakling
um eldri en 6 ára til staðbundinnar
og stuttrar bólgueyðandi, verkja
stillandi og sýkladrepandi með
ferðar við ertingu í hálsi, munni og
tannholdi,“ segir Berglind. „Að auki
er munnholsúðinn ætlaður til með
ferðar fyrir og eftir tanndrátt.“
„Þegar nota á Septabene við
særindum og bólgu í hálsi skal leysa
eina munnsogstöflu hægt upp í
munninum á 36 klukkustunda
fresti. Ekki er ráðlagt að nota lyfið
strax fyrir eða eftir tannburstun
og ekki skal borða eða drekka í að
minnsta kosti eina klukkustund
eftir inntöku. Þegar munnhols
úðinn er notaður skal opna
munninn vel, beina úðastútnum
að kokinu og þrýsta 12 sinnum á
úðadæluna og passa vel upp á að
halda niðri andanum meðan úðað
er,“ segir Berglind.
Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og í fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og auka
verkanir. n
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is.
KRK220905 – október 2022
Septabene munn-
sogstöflurnar koma
með sítrónu- og hun-
angsbragði og munn-
holsúðinn með mentól-
bragði.
2 kynningarblað A L LT 15. október 2022 LAUGARDAGUR