Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 16
Við erum
að fá
erfiðari
einstakl-
inga inn í
fangelsin.
Þeir eru
lengra
leiddir í
neyslu og
með geð-
ræn vanda-
mál.
Trúnaðarmaður fangavarða
segir álagið svo mikið í fang-
elsum að hvorki sé hægt að
tryggja öryggi fangavarða og
fanga né sinna betrun fanga.
Á þessu ári hafa verið gerðar
þrjár líkamsárásir á fanga-
verði, þar af tvær alvarlegar.
Alls eru starfandi á landinu 140
fangaverðir. Hver þeirra tekur að
meðaltali 2,2 aukavaktir í hverjum
mánuði til að tryggja öryggi í fang-
elsum. Vinnuþörfin og álagið er
mikið á hvern starfsmann, segir
Garðar Svansson, trúnaðarmaður
Fangavarðafélags Íslands. Hann
segir stjórnmálamenn hafa hunds-
að þennan málaflokk.
Hann segir að það sé þeirra mark-
mið að hafa fanga og fangaverði í
öruggu umhverfi og að fangelsin séu
betrunarvist, en að eins og staðan sé
núna sé hvorugt möguleiki.
„Við fögnum því þegar betrun
tekst en því miður þá er staðan
þannig í dag að það er ekki mögu-
leiki að ná því. Við höfum ekki fjár-
magn eða starfsmenn til að sinna
því. “
Í upphafi árs lýsti Fangavarða-
félag Íslands yfir miklum áhyggjum
af öryggi fangavarða innan fang-
elsanna. Félagið sagði mikinn skort
vera á starfsfólki, það vantaði í það
minnsta 20 til starfa, og skoraði á
yfirvöld að bæta aðbúnað og öryggi
fangavarða.
Fleiri eggvopn og árásir
Garðar Svansson, trúnaðarmaður
Fangavarðafélags Íslands, segir ekk-
ert hafa breyst síðan þá. Í vikunni
var greint frá því að aukið álag væri
á fangelsum landsins vegna þess að
svo margir eru í gæsluvarðhaldi, en
undanfarið hafa komið upp mörg
stór mál og margir grunaðir eru í
haldi. Þá kom einnig fram að árásir
á fangaverði séu orðnar tíðari og
að þeir hafi undanfarið lagt hald á
fleiri heimatilbúin eggvopn. Á þessu
ári hafa verið þrjár líkamsárásir á
fangaverði, þar af tvær alvarlegar.
Nýverið féll dómur í slíku máli auk
þess sem einn var ákærður fyrir
aðra slíka árás.
„Við sendum áskorun í byrjun
árs en það hefur ekkert gerst,“
segir Garðar. Hann segir að eftir
að áskorunin kom fram hafi dóms-
málaráðherra, Jón Gunnarsson,
stigið fram og sagst styðja við það
að auka öryggi, en að nú í nýjum
fjárlögum sé samt sem áður aftur
verið að skera niður til Fangelsis-
málastofnunar. Jón greindi þó frá
því í gær að það eigi að styrkja stöðu
fangelsanna með auknu fjármagni.
Stytting vinnuviku erfið
„Það er ekki gert ráð fyrir því að
það sé aukið við starfshlutfall. Fyrir
styttingu vinnuvikunnar var undir-
mönnun og eftir hana hefur hún í
rauninni bara aukist, sem kemur
niður á öryggi okkar,“ segir Garðar
og bendir á að í einu fangelsanna,
Kvíabryggju, sé staðan enn þannig
að aðeins einn fangavörður sé á vakt
á nóttunni en aðeins eru tæp fimm
ár síðan fangavörður fékk heilablóð-
fall einn á vakt.
„Það hefur ekkert breyst á þessum
fimm árum og ekkert batnað þó að
það hafi verið gefin góð fyrirheit.
Við höfum ekkert heyrt í alþingis-
mönnum um þetta. Þetta er mál-
efni sem enginn vill tala vel um því
af leiðingarnar geta verið leiðin-
legar á samfélagsmiðlum,“ segir
Garðar og á við umræðu um að bæta
aðbúnað fanga, sem geti verið erfið.
Lögreglan hefur nú undanfarið
talað mikið um meiri hörku og
meira ofbeldi á götunum og í þeim
málum sem hún rannsakar. Garðar
segir að fangaverðir merki sömu
breytingu innan fangelsanna.
„Við erum að fá erfiðari einstakl-
Ráðist á fangaverði mánaðarlega
Staðreyndir um fangelsin
á Íslandi
n Fjögur fangelsi eru á
landinu
n 177 afplánunarpláss eru í
fangelsunum
n Alls eru 140 fangaverðir
starfandi
n Það vantar í það minnsta
20 fangaverði til starfa
n Hver fangavörður tekur
2,2 aukavaktir mánaðarlega
n Þrjár líkamsárásir á fanga-
verði á þessu ári
n Tvær alvarlegar líkamsárás-
ir á fangaverði á þessu ári
n 47 einstaklingar voru í
gæsluvarðhaldi í vikunni
Lovísa
Arnardóttir
lovisa
@frettabladid.is
Til stendur að laga Litla-Hraun að þörfum nútímans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
inga inn í fangelsin. Þeir eru lengra
leiddir í neyslu og með geðræn
vandamál. Þetta er öðruvísi heimur,
sem endar hjá okkur. Þetta er enda-
stöð og þeir verða ekkert englar við
það að koma til okkar,“ segir Garðar.
Spurður hvort vinna þeirra breyt-
ist þegar svo margir eru í gæsluvarð-
haldi segir Garðar að þessi staða
auki álag á allt fangelsið. „Í opnu
úrræðin á Sogni og Kvíabryggju
erum við að fá einstaklinga sem
eiga við geðrænan vanda að stríða,“
segir Garðar og bendir á að þar séu
oft aðeins einn eða tveir fangaverðir
á vakt, en sú staða sé aðeins uppi til
að létta á stóru fangelsunum.
Húsnæðið gamalt
Hann segir að fyrir fangaverði sé
lykilatriði að öryggi þeirra sé bætt
en auk þess sé húsnæðið eitthvað
sem þurfi að skoða. Það eigi að laga
Litla-Hraun en það verði ekki komið
í gagnið fyrr en eftir þrjú eða fjögur
ár.
„Við fáum varla peninga til að
sinna lágmarksviðhaldi á Kvía-
bryggju og Sogni því niðurskurður-
inn er svo mikill,“ segir hann og að
það fjármagn sem hafi sparast við
að loka Akureyrarfangelsinu sé ekki
lengur til vegna niðurskurðar.
Hvað varðar árásir á fangaverði
hefur Garðar ekki nákvæma tölu
um þær, en telur að upp komi í það
minnsta mánaðarlega eitthvert slíkt
mál. „Menn eru alltaf að verða harð-
svíraðri.“
„Það eru að koma erfiðari ein-
staklingar sem eiga kannski í deil-
um fyrir utan fangelsið og þegar
fangelsin eru yfirsetin þá getum
við ekki komið í veg fyrir að þessir
aðilar rekist saman. Þetta skapar
óróa og of beldi, bæði meðal fanga
en einnig gagnvart okkur,“ segir
Garðar. n
Við fögnum því þegar
betrun tekst en því
miður þá er staðan
þannig í dag að það er
ekki möguleiki að ná
því.
Garðar Svans-
son, trúnaðar-
maður Fanga-
varðafélags
Íslands
16 Fréttir 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTAVIÐTAL FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2022 LAUGARDAGUR