Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 4
30-40
prósent
barna í
Reykjavík
eru ekki læs
í lok annars bekkjar.
n Tölur vikunnar
13
þúsund
manns 60 ára og
eldri fengu örvun-
arskammt af bóluefni
gegn Covid-19.
50
manns
gista að
meðaltali í gistiskýlum
borgarinnar á hverri
nóttu.
29
prósent
framhalds-
skólanema
undir 18 ára
aldri nota nikótínvörur.
1.150
fullorðnir
einstakl-
ingar eru á
biðlista eftir ADHD-
greiningu.
n Þrjú í fréttum
Kristján
Þórður Snæ-
bjarnarson
forseti ASÍ
gegnir því starfi
næstu mánuðina
hið minnsta eftir
að ákveðið var
að fresta þingi
ASÍ um hálft ár. Frestunin kom
í kjölfar ákvörðunar Sólveigar
Önnu Jónsdóttur, Vilhjálms
Birgissonar og Ragnars Þórs Ing-
ólfssonar um að draga framboð
sitt til baka stuttu fyrir þingið.
Sara Björk
Gunnarsdóttir
fyrirliði
kvennalandsliðsins
lék allan leikinn
þegar Ísland féll
úr leik í umspili
fyrir HM.
Stelpurnar okkar
voru einum leik frá því að komast
á HM í fyrsta sinn en féllu úr leik í
Portúgal. Eftir leik sagði Sara, sem
er leikjahæsti leikmaður Íslands
frá upphafi, að hún vissi að þetta
gæti hafa verið hennar síðasta
tækifæri til að komast á loka-
keppni HM.
Helgi
Ólafsson
rafvirki
afhenti sveitar-
félaginu Raufar-
höfn dreka
úr járni sem
mun prýða
hafnarsvæði
bæjarfélagsins næstu árin. Hug-
myndina fékk hinn 93 ára gamli
Helgi fyrir nokkrum árum síðan
og spúir drekinn eldi. Helgi,
sem starfar enn við tilfallandi
rafvirkjunarverkefni þrátt fyrir
að vera kominn á tíræðisaldur,
vonast til að drekinn verði að
kennileiti fyrir bæinn þó að hann
viti að Heimskautsgerðið verði
alltaf í fyrsta sæti. n
Sjúkraflugið var á vegum norsks flugfélags og kostar á bilinu sex til átta milljónir. MYND/RÚNA KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR
Sjúkratryggingar Íslands
hafa ekki lagaheimild til þess
að greiða fyrir sjúkraflug til
landsins. Almennar sjúkra-
tryggingar innan Evrópu ná til
læknis- og sjúkdómsþjónustu
ef fólk sækir opinberar stofn-
anir. Utan EES er einungis hluti
kostnaðar endurgreiddur.
sigurjon@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Mál t veggja
manna, Gísla Finnssonar og Sigurðar
Kristinssonar, hafa vakið athygli á
undanförnum vikum. Báðir voru
þeir fastir á Spáni í þó nokkrar
vikur vegna þess að Sjúkratrygg-
ingar Íslands borga ekki kostnað við
sjúkraflug til landsins.
„Almenni rétturinn innan Evr-
ópu er þannig að ef þú þarft að fá
læknisþjónustu eða sjúkdómsþjón-
ustu, þá borga sjúkratryggingar það
almennt. Þá er reyndar ætlast til þess
að fólk fari á opinberar sjúkrastofn-
anir, sérstaklega ef það er innlögn,
en annars getur fólk bara leitað til
næstu læknastöðvar og sjúkratrygg-
ingar borga það,“ segir Ingibjörg K.
Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri réttinda-
sviðs hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Hún segir mál Gísla og Sigurðar
hafa snúið að heimflutningi og það
sé ekki heimild samkvæmt lögum til
að greiða fyrir það.
„Almennt höfum við átt samstarf
við tryggingarfélögin þannig að ef
einhver veikist eða slasast erlendis,
og ef hann er tryggður hjá trygg-
ingarfélögum, þá borga tryggingar-
félögin upp að ákveðnu hámarki. Þá
borgum við sjúkrakostnaðinn og
þau geta borgað sjúkraflugið,“ segir
Ingibjörg.
Eins og fyrr segir hafa mál Gísla og
Sigurðar fengið mikla umfjöllun og
athygli. Gísli, sem er 35 ára þriggja
barna faðir, fannst meðvitundarlaus
utandyra þann 21. ágúst síðastliðinn
eftir að hafa farið út með félögum
Fólk sem er ekki tryggt getur lent í
vandræðum ef það veikist erlendis
Ef maður slasast eða
veikist utan EES þá er
það þannig að við
borgum í rauninni eins
og kostnaðurinn hefði
verið hér á landi.
Ingibjörg K. Þorsteinsdóttir,
sviðsstjóri hjá Sjúkratryggingum
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE
ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP.IS
PLUG-IN HYBRID
ÓMISSANDI HLUTI
AF FJÖLSKYLDUNNI
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
sínum að skemmta sér í Torrevieja.
Gísli dvaldi á sjúkrahúsi ytra til
8. október þegar hann var fluttur til
landsins með sjúkraflugi.
Sigurður, sem er 71 árs, fékk heila-
blóðfall sem varð til þess að hann
lamaðist vinstra megin í líkam-
anum og var hann því lagður inn á
sjúkrahús, þar sem hann dvaldi til
12. október síðastliðins, en þá var
hann fluttur til landsins með sams
konar sjúkraflugi og Gísli.
Fjölskylda Gísla hóf söfnun fyrir
hann sem fór hratt af stað og voru
þau fljót að safna fyrir sjúkraflug-
inu, sem kostar á milli sex og átta
milljónir króna. Það sem safnaðist
umfram kostnaðinn fór til söfn-
unar sem fjölskylda Sigurðar hafði
komið á laggirnar. Fjölskyldur
beggja þurftu að treysta á framlög
einstaklinga til þess að koma þeim
heim.
Ingibjörg segir mál Gísla og Sig-
urðar dæmi um það þegar fólk er
ekki með tryggingar. „Það eru þau
sem eru að lenda í vandræðum.“
Hún hvetur alla sem ferðast til
Evrópu til að hafa evrópska sjúkra-
tryggingakortið meðferðis, en þegar
því er framvísað er borgað það sama
og þeir borga sem tryggðir eru í við-
komandi landi.
„Ef maður slasast eða veikist
utan EES, eins og í Bandaríkjunum
til dæmis, þá er það þannig að við
borgum í rauninni eins og kostnað-
urinn hefði verið hér á landi, sem er
oft bara brotabrot, því reikningar
frá Bandaríkjunum eru yfirleitt ekki
mjög lágir,“ segir Ingibjörg.
„Síðan borgum við ákveðna pró-
sentu af því sem umfram er, og það
fer eftir stöðu viðkomandi, náms-
menn og lífeyrisþegar fá til dæmis
aðeins hærri greiðslur en aðrir,
þannig að það eru ákveðnar reglur
sem gilda um það.“ n
4 Fréttir 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ