Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 78
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Auður Ásdís Sæmundsdóttir Höfðagrund 7, Akranesi, lést á dvalarheimilinu Höfða mánudaginn 10. október. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 21. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju. Einar Þórarinsson Helgi Þórarinsson Guðmunda M. Svavarsdóttir Þórarinn Þórarinsson Birgitta Guðnadóttir Reynir Þórarinsson Jóna B. H. Jónsdóttir ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sjafnar Láru Janusdóttur sem lést á Sólvangi 22. september. Útförin fór fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 6. október. Janus Friðrik Guðlaugsson Sigrún Edda Knútsdóttir Kristinn Guðlaugsson Hanna Ragnarsdóttir Brynhildur Garðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Þórður Baldur Sigurðsson fv. forstjóri Reiknistofu bankanna, lést á heimili sínu á Hömrum, Mosfellsbæ, fimmtudaginn 6. október. Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 20. október kl. 13. Helga Þorvarðardóttir Björn Þráinn Þórðarson Sigurveig Sigurðardóttir Sigurður Þengill Þórðarson Anna Lísa Sigurjónsdóttir Anna Sigríður Þórðardóttir Gunnar Þorsteinsson Ingveldur Lára Þórðardóttir Jan Murtomaa Ólafur Þórður Þórðarson Margrét Sigríður Sævarsdóttir Katrín Þórey Hjorth Þórðardóttir Peter Hjorth Olsen og fjölskyldur Elsku systir okkar og frænka, Sigríður Karlsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri þann 8. október síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 20. október kl.13.00. Athöfninni verður streymt á: www.facebook.com/profile. php?id=100047440662347 Jón Karl Karlsson, Hildur Svava Karlsdóttir og Aðalbjörg Karlsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra Elsku hjartans eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf Þórey Eyjólfsdóttir lést á líknardeild Landspítalans 6. október. Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 17. október kl. 13. Ármann Þórður Haraldsson Ingibjörg Lóa Ármannsdóttir Þorvaldur Ingvarsson Sigríður Olsen Ármannsdóttir Jóhannes Árnason Ingólfur Örn Ármannsson barnabörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Birna Friðgeirsdóttir geislafræðingur, Laugarnesvegi 87, Reykjavík, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans miðvikudaginn 28. september. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Nanna Snorradóttir Herleifur Halldórsson Rósbjörg Jónsdóttir Valgerður Guðrún Bjarkadóttir Alexander Kirchner, Markús Einar Orrason, Elín Birna Orradóttir Nanna K. Friðgeirsdóttir Guðrún Þ. Friðgeirsdóttir Einar G. Friðgeirsson Margrét Eiríksdóttir Elsku eiginkona mín, móðir okkar og amma, Ingibjörg Stefánsdóttir lést á heimili sínu að kvöldi 9. október. Útförin fer fram þann 25. október kl. 13 frá Garðakirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Parkinsonsamtökin. Massimo Scarliotti Stefán Franklín Benediktsson Sigurður Magni Benediktsson Daði Halldórsson Isabella Avigo og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, Svavar Pétur Eysteinsson tónlistarmaður og hönnuður, lést 29. september. Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 20. október, klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Berglind Häsler Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Garðars Alfonssonar sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn 8. september. Sérstakar þakkir til starfsfólks göngudeildar hjartabilunar við Hringbraut og öldrunardeildar B-4 í Fossvogi, fyrir hlýja og góða umönnun. Elín Skarphéðinsdóttir Skarphéðinn Garðarsson Elísabet Árný Tómasdóttir börn, tengdabörn og barnabörn Camerarctica fagnar þrjátíu ára starfsafmæli með tónleikum í Hörpu á sunnudag. arnartomas@frettabladid.is Kammerhópurinn Camerarctica fagnar þrjátíu ára starfsafmæli á árinu. Í tilefni þess býður sveitin til afmælistónleika í Norðurljósasal Hörpu næstkomandi sunnudag undir yfirskriftinni Brahms og tveir pólar. „Heiti tónleikanna vísar í að við erum annars vegar með norðurpólinn í íslensku verkunum og svo hins vegar verk frá áströlsku tónskáldi hinum megin á hnettinum,“ segir Ármann Helgason, klarínettuleikari hópsins. Á tónleikunum kallast á verkin Örlagafugl eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Songs of the Bush eftir ástralska tón­ skáldið Ian Munro auk þess sem verkið Kviksjá eftir John Speight verður frum­ flutt. „Okkur þótti það skilyrði að velja eitthvað íslenskt og verk Þorkels hefur fylgt okkur í gegnum tíðina,“ útskýrir Ármann. „Þar er vitnað í það þegar Egill Skallagrímsson var að semja Höfuðlausn og krákan truflaði hann alla nóttina.“ Verkið Kviksjá eftir Speight var sér­ staklega samið fyrir hópinn í vor og lýsir Ármann því sem snörpu verki sem breytist stöðugt, líkt og þegar litið er í kviksjá. Songs of the Bush eftir Munro vísar í ástralskan þjóðararf frumbyggja. „Það er mjög lagrænt verk en skemmti­ lega kryddað,“ lýsir Ármann. „Þetta speglar verk Þorkels og svo eigum við marga vini í Ástralíu svo það var gaman að leita þangað.“ Að lokum verður f luttur klarínettu­ kvintett Johannes Brahms sem er af mörgum talinn eitt fallegasta kammer­ verk tónbókmenntanna. Brahms var í miklu uppáhaldi hjá Hallfríði Ólafs­ dóttur, stofnanda og brautryðjanda hópsins sem féll frá fyrir tveimur árum, og valdi hópurinn verk tónleikanna með tilliti til hennar. Eðlilegt tónlistarform Kammerhópur Camerarctica var stofn­ aður árið 1992 og hefur síðan þá verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi. Þrír af núverandi meðlimum hafa fylgt hópnum frá upphafi, þau Ármann, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Í dag hafa þær Bryndís Pálsdóttir fiðlu­ leikari og Svava Bernharðsdóttir víólu­ leikari bæst í hópinn. „Við vorum upphaflega sex en erum fimm í dag. Við fáum svo stundum auka­ leikara til að spila með okkur,“ segir Ármann um samheldinn hópinn. „Við stofnuðum þennan hóp um leið og við komum heim frá námi og Hallfríður var þar aðalvítamínsprautan fyrst um sinn og nú höfum við svo enst í þrjátíu ár.“ Aðspurður hvað sé fram undan hjá sveitinni svarar Ármann að stefnan sé að halda áfram á sömu braut. „Þetta form, kammermúsík, er svo fallegt og gott,“ segir hann. „Þarna eru fimm vinir að tala saman og taka tillit hver til annars. Þetta er svo eðlilegt tón­ listarform og það er líka mikil áskorun að spila kammertónlist og að koma svo aftur að verkunum í gegnum árin. Maður breytist og þroskast og gerir von­ andi betur í hvert sinn svo þetta verður mikil afmælisveisla hjá okkur á sunnu­ daginn.“ n Þrjátíu ára kammersveit Camerarctica var stofnuð 1992 og voru meðlimir upphaflega sex. MYND/AÐSEND Ástkær móðir, amma, langamma og systir, Ragna Aðalsteinsdóttir bóndi á Laugabóli við Djúp, lést fimmtudaginn 13. október. Hún verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 21. október kl. 11.00. Garðar Smári Vestfjörð Sindri Vestfjörð Gunnarsson Helena Björg Vestfjörð Hjörtur Smári Vestfjörð Anna Magdalena Vestfjörð Óskar Ingi Sigmundsson Rebekka Aðalsteinsdóttir Sigríður Aðalsteinsdóttir og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Haraldur Kristófer Kristinsson Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 8. október. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 17. október klukkan 15. Inga Hrönn Ingólfsdóttir Ragnheiður Anna Haraldsdóttir Bjarni Friðrik Sveinsson Ingólfur Reynald Haraldsson April K. Reynald Kristmann Haukur Haraldsson Sigrún Haraldsdóttir Jóhann Emil Elíasson og barnabörn 46 Tímamót 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.