Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 18
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Þetta frelsi
er byrjað
að fara í
taugarnar á
Sjálfstæðis-
mönnum
– og flokki
þeirra sem
löngum
var öfund-
aður á
árum áður
fyrir fylgi,
samstöðu
og stefnu-
festu.
Kaldir
líkamar
leita hlýju
í húsa-
sundum og
bílakjöll-
urum. Þar
er mann-
eskja. Þar
er saga.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Árið 2009 kom Dylan Fixmer, tónskáld og
starfsmaður hljóðfæraverslunar í borginni
Boulder í Bandaríkjunum, auga á gamla fiðlu
á einni búðarhillunni. Fiðlan mátti muna fífil
sinn fegri. En þrátt fyrir laskað yfirborð sá
Fixmer eitthvað við hana. Ítrekaðar tilraunir
Fixmer til að selja fiðluna misheppnuðust.
Fixmer, sem lék á fiðluna í búðinni á hverjum
morgni, keypti hana að endingu sjálfur.
Það var ekki fyrr en árið 2015 að Fixmer
uppgötvaði leynihólf í hljóðfæratöskunni
sem fylgdi með fiðlunni. Í hólfinu voru
gamlir strengir, boðskort í sumarhóf Tón-
leikahátíðar sinfóníuhljómsveitar Colorado-
fylkis, nafnspjöld og kvittun frá lútusmið í
San Francisco. Af útsjónarsemi púslaði Fix-
mer upplýsingunum saman og tókst að finna
út hver hafði átt fiðluna á undan honum.
Fyrri eigandi reyndist hafa verið kona
að nafni Terri Sternberg. Við nánari eftir-
grennslan kom í ljós að Sternberg hafði eitt
sinn verið fiðluleikari á heimsmælikvarða.
Hún hafði leikið undir stjórn eins fremsta
stjórnanda tuttugustu aldar, Leonard Bern-
stein. Hún hafði starfað sem fyrsta fiðla í
hljómsveit San Francisco ballettsins. En árið
2009, þegar Fixmer uppgötvaði fiðluna, var
Sternberg heimilislaus og bjó á götunni í
San Francisco. Hún hafði missti hús sitt og
fiðluna fimmtíu og sex ára að aldri eftir að
hún ánetjaðist áfengi í kjölfar þess að henni
var nauðgað. Þrátt fyrir erfiðleika gerðist
Sternberg ötull baráttumaður fyrir rétt-
indum heimilislausra en hún lést árið 2013,
sextug að aldri.
Í síðasta mánuði var frumfluttur fiðlu-
konsert eftir Dylan Fixmer sem var leikinn
á fiðlu Terri Sternberg og byggður á ævi
hennar. „Saga Terri snertir tónleikagesti
einkar djúpt því þeir horfa á hljóðfæraleikar-
ana á sviðinu og hugsa: Svona getur ekki
komið fyrir þetta fólk,“ sagði Fixmer. „En
þetta getur komið fyrir hvern sem er.“
Með verkinu vildi Fixmer færa í tóna von
Sternberg um breytt viðhorf í garð heimilis-
lausra. Sternberg vildi að viðurkennt yrði
að heimilislausir byggju ekki við sjálfskipað
ástand sem orsakaðist af vangetu til að öðlast
velgengni heldur væri heimilisleysi sam-
félagsmein sem ætti að leitast við að laga.
Milli tíu og fimm
Viðmót, samtök um mannúðlega vímuefna-
stefnu á Íslandi, héldu í vikunni setuverkfall
í neyðarskýlinu á Granda fyrir heimilislausa
karlmenn. Skýlið, sem er á vegum Reykjavík-
urborgar, er lokað milli tíu og fimm á daginn.
„Það er að koma vetur,“ segir í tilkynningu
frá samtökunum þar sem bent er á að það
skjóti skökku við að þegar veður er svo vont
að forráðamönnum barna sé gert að sækja
þau í skólann eru neyðarskýli fyrir heimilis-
lausa lokuð.
„Við erum bara að kalla eftir hjálp,“ sagði
Ragnar Erling Hermannsson, félagi í Viðmóti,
í samtali við Fréttablaðið. Samtökin vilja
að komið verði á fót dagsetri fyrir heimilis-
lausa karlmenn í anda þess sem Hjálparstarf
kirkjunnar rekur fyrir konur. Einnig óska
þau eftir að neyðarskýlum verði ekki lokað
yfir daginn sé veðurviðvörun gul eða hærri.
„Við getum fengið hlý föt og svona í
skýlinu en sama hvað maður er vel klæddur
þá er manni samt kalt ef maður er úti allan
daginn,“ segir Ragnar og kveðst kvíða vetr-
inum. Síðastliðinn þriðjudag, þegar mikil
rigning var í Reykjavík, leitaði hann skjóls í
bílakjallara.
Kaldir líkamar leita hlýju í húsasundum
og bílakjöllurum. Þar er manneskja. Þar
er saga. Skömm er að því að eitt ríkasta
samfélag heims telji sér ekki fært að veita
heimilislausum húsaskjól milli tíu og fimm
á daginn.
Það sem kom fyrir Terri Sternberg getur
komið fyrir hvern sem er. Kalinn skrokkur
í bílakjallara gæti verið sonur þinn, eigin-
maður, bróðir. Hann gæti verið þú. n
Hann gæti verið þú
Ástæða er til að hafa verulegar
áhyggjur af vegferð Sjálfstæðis-
flokksins á síðustu tímum, af því
að mikilvægi hans er ekki síðra en
annarra flokka á pólitísku litrófi
landsmálanna. Í lýðræðislegu samfélagi er jafn
mikil þörf á málefnalega sterkum hægri flokki
og öðrum þeim öflum sem finna sér stað á
breiðu sviði þjóðmálanna.
En Sjálfstæðisflokkurinn er að þrengjast. Og
hann er orðinn hræddur. Upp á síðkastið er
hann farinn að ala á útlendingahatri eins og
hver annar popúlískur veifiskati sem velur upp-
hrópanirnar fram yfir ábyrga festu og stjórnvísi.
Í orðanna hljóðan er látið að því liggja að
Íslendingar ráði ekki við móttöku flóttamanna
– og gott ef það er ekki goldinn varhugur við
frekara Schengen-samstarfi, landamærunum
þurfi kannski ekki að loka, en leyfa beri færra
fólki að komast þar yfir en tíðkast hefur á
síðustu árum.
Innan flokksins glymja líka raddir þess efnis
að evrópska samstarfið geti reynst samfélaginu
á norðurhjara jafn skeinuhætt og það má heita
óþjóðlegt. Látum íhaldssama andstöðuna við
Evrópusambandið vera, en ítrekaðar aðfinnslur
við alla reglubótina sem berst yfir hafið í krafti
evrópska efnahagssamningsins verða ekki túlk-
aðar með öðrum hætti en að helstu íhaldsmenn
flokksins vilji segja skilið við þann merkasta
alþjóðasamning sem landsmenn hafa gert á
seinni tímum lýðveldissögunnar.
Og best fari á því að loka landið af, rissa and-
litið á Bjarti í Sumarhúsum í þjóðfána landsins.
Fáar ef nokkrar þjóðir græða jafn mikið
á nánu og sterku alþjóðlegu samstarfi og
Íslendingar, enda er hagkerfi landsmanna
öðru fremur knúið áfram af útflutningi sem
þarf að komast hratt og auðveldlega á opna
og frjálsa markaði þar sem hægt er að stofna
sölufyrirtæki án fráhrindandi skriffinnsku. Í
þeim efnum hefur fjórfrelsi evrópska efnahags-
samningsins fært landsmönnum viðvarandi
vöxt í atvinnulífi, rannsóknum og menntun. Og
það frelsi hefur einnig tryggt frjálsa för vinnu-
afls sem svo að segja hefur bjargað íslenskum
hagvexti það sem af er þessari öld – og þörf er á
í enn ríkari mæli á næstu árum, ef landsmenn
vilja búa áfram við sömu eða betri lífskjör en nú
eru við lýði.
Þetta frelsi er byrjað að fara í taugarnar á Sjálf-
stæðismönnum – og flokki þeirra sem löngum
var öfundaður á árum áður fyrir fylgi, samstöðu
og stefnufestu. En þrenningin sú arna er öll að
brogast, því flokkurinn er hræddur. n
Hræddur flokkur
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2022 LAUGARDAGUR