Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 68
Það var áður en ég
hætti að vera tónlistar-
maður, ég hefði senni-
lega ekki farið út í
upptökunám hefði ég
vitað það.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
595 1000 www.heimsferdir.is
Alicante
Flug aðra leið til
19.950
Flug aðra leið frá
Flugsæti
í október og nóvember
Sindri Eldon hefur verið
tengdur inn í tónlistar-
bransann frá fæðingu. Hann
lýsir pressunni sem því fylgdi
og sambandinu við rokktón-
listina. Hann kemur fram á
skemmtistaðnum Dillon í
kvöld, með Sindri Eldon and
The Ways.
Mig langaði aldrei að
vera einhver front-
maður,“ segir Sindri
Eldon um verkefn-
ið. „Mér fannst það
of mikil vinna og finnst það enn.
Maður fær rosalega mikið af óþægi-
legri athygli og getur ekki bara verið
gaur í bandinu að skemmta sér,“
útskýrir hann.
Sindri hefur verið undir kast-
ljósi fjölmiðla alla tíð og hefur
gefið út eigið efni samhliða því að
gegna stöðu tónlistarblaðamanns.
„Ég gafst upp á að gera músík. Mér
fannst það leiðinlegt, mikil vinna
og ég uppskar ekkert nema eymd
og vonbrigði,“ útskýrir hann.
Sáttastur við rokkstimpilinn
„Svo tók ég mér langa pásu og fattaði
að ég saknaði þess að spila með Ása
og Frikka, hinum gaurunum í band-
inu. En það er eiginlega það eina
sem ég saknaði. Mér finnst eiginlega
ekkert gaman að spila þegar ég þarf
að syngja líka, mér finnst erfitt að
syngja og spila á sama tíma,“ segir
Sindri, sem segist hafa skimað eftir
gítarleikara og bætir við að á end-
anum hafi þó engin mannaskipan
gengið nema þríeykið.
Að sögn Sindra spilar hljómsveit-
in rokk. „Ég hef spurt fólk hvernig
það myndi skilgreina þetta, og eina
svarið sem ég vil kannast við er
rokk.“
Hvað stöðu rokksins varðar segir
Sindri að gróskan hafi komið á
óvart. „Ég fer eiginlega aldrei út úr
húsi, þannig að ég veit ekkert hvað
er að gerast neins staðar. En ég fór
að taka eftir því að það er fullt af
rokki í gangi. Ég vinn í plötubúð og
gaurinn sem rekur búðina er alltaf
að hlusta á nýja músík og það er
oft rokk. Þetta er ekki mainstream
lengur, myndi ég segja ef ég ætti að
vita hvað mainstreamið er.“
Lærði upptökustjórn í Seattle
Sindri nefnir einnig að megin-
straumurinn kunni að taka mið af
kostnaðarþáttum. Að ódýrara sé að
Söngurinn varð betri með vegan lífsstíl
Sindri, sem
vinnur í plötu-
búð, segist fá
lítið út úr því að
taka upp plötur
en nýtur þess að
vera í hljóm-
sveit.
MYND/AÐSEND
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
gera tónlist heima hjá sér í einni far-
tölvu, frekar en að kaupa hljóðfæri
fyrir f leiri hundruð þúsunda. „Að
taka upp vel sándandi rokk, fullt
band, er major fjárfesting. Jafn-
vel þó að þú dælir milljónum í það
ertu ekkert endilega að fá plötu sem
hljómar vel.“
Sindri þekkir upptökuhliðina vel,
en hann lærði fagið í Seattle í Banda-
ríkjunum.
„Ég fór í skóla að læra upptökur og
það er ástæða fyrir því að þetta er
iðnaður. Ég bjó í Seattle í fimm ár og
fór í skóla sem heitir Seattle Recor-
ding Arts og útskrifaðist með cer-
tificate. Þetta var bara eitt ár, ekk-
ert hardcore dót en ég lærði mikið af
því. Það var áður en ég hætti að vera
tónlistarmaður, ég hefði sennilega
ekki farið út í upptökunám hefði ég
vitað það,“ segir Sindri.
Aðspurður segist hann ekki
hættur við að hætta í bransanum,
en þó sé næs að hitta strákana og fá
sér bjór og rokka, eins og hann orðar
það. „Það er það eina sem mig langar
að gera, mér finnst leiðinlegt að taka
upp plötur.“
Óvart inn í tónlistarbransann
Sindri segist aldrei hafa ætlað sér
að gera tónlistina að ævistarfi.
„Nefnilega ekki. Ég hefði kannski
átt að vera með eitthvað skýrara
markmið. Ég slysaðist svolítið inn
í músík af því að það er í fjölskyld-
unni minni. Foreldrar mínir voru í
hljómsveit,“ segir hann.
„Ég var svona fimmtán ára og allir
vinir mínir voru í hljómsveitum.
Til að hanga með þeim þurfti ég
eiginlega að vera í hljómsveit líka.
Ég byrjaði að vera í hljómsveitum
af sömu ástæðum og ég byrjaði að
drekka. Til að fitta inn,“ útskýrir
Sindri. „Hefði ég verið með eitthvað
svona: Ég ætla að verða ógeðslega
frægur og gefa út milljón plötur, þá
hefði þetta kannski gengið betur. En
svo allt í einu eru tíu ár liðin og ég er
tónlistarmaður. Ég man ekki hvað
gerðist og ég man ekki eftir að hafa
tekið þessa ákvörðun beint.“
Endurspegla tímabilin
Lögin sem Sindri Eldon and The
Ways f lytja á tónleikunum eru
samin yfir langt tímabil. „Á meðan
maður er að spila fattar maður hvað
tónsmíðastíllinn manns hefur
breyst yfir árin. Fólk heyrir sam-
ræmi, en fyrir mér eru þetta endur-
speglanir á hvar ég var á mismun-
andi tíma á ferlinum,“ segir hann.
Sindri segist semja sjaldan, og
með árunum eiga erfiðara með að
þvinga fram tónsmíðar. „Mér fannst
eins og ég ætti allt of mikið af lögum
sem eru mjög svipuð. Ég er núna að
reyna að semja þannig lög að hug-
myndin grípi mig og festist og vilji
ekki fara, frekar en ég sé að reyna
að setjast niður meðvitað að skapa
eitthvað lag,“ útskýrir hann. Hvað
textasmíðar varðar reynir hann að
hafa þá stutta og hnitmiðaða. „Ég
gleymi mínum eigin textum,“ segir
hann glettinn.
Betri rödd án dýraafurða
Sindri hætti neyslu dýraafurða
fyrir ári síðan og segir það hafa
haft mikil áhrif á söngröddina. „Ég
myndi segja að söngröddin mín hafi
skánað mikið síðustu ár. Það er sirka
ár síðan ég varð vegan og ég las um
það einhvers staðar að sérstaklega
mikið magn af mjólkursýru þurrki
mann upp, og kjöt líka. Kannski er
þetta eitthvað annað sem er í gangi,
en ég uppgötvaði að ég er með frekar
alvarlegt mjólkuróþol. Það að verða
vegan gerði mig að betri söngvara,“
segir hann.
Þó að lífsstílsbreytingin hafi
hjálpað honum í listinni reynir
Sindri að sneiða hjá pólitík í sköpun-
inni. „Það næsta sem ég hef komist
því að semja pólitískt baráttulag var
eftir að Trump var kjörinn forseti,“
segir hann. „Ég hef oft litið á sköpun
sem ákveðinn flótta frá svona hlut-
um og ég er ekki mikið í því að vera
með eitthvað statement.“
Sindri segir að í listinni megi vera
rými fyrir veruleikaflótta, upp að
heilbrigðu marki. „Sköpun hefur
verið meira þannig, fyrir mig,“ segir
hann. „Ég er einn af þeim heppnu
sem Covid hafði ekkert það mikil
áhrif á. Ekki á mitt dagsdaglega líf,“
segir hann.
Hjónabandið sem yrkisefni
Sindri og bandarísk eiginkona hans
Morgan eignuðust son í janúar árið
2019, sem var því rúmlega eins árs
þegar heimsfaraldurinn skall á.
„Strákurinn okkar þurfti að vera
rosa mikið heima, hann var ekki
einu sinni byrjaður á leikskóla og
var hjá dagmömmu. Covid breytti
voðalega litlu fyrir mig,“ segir
Sindri. „En ég pæli alveg í því með
allt shittið sem er í gangi í heim-
inum. Það er skrýtið að vera úti í
horni að semja eitthvað lag, sem er
ekki um það sem er að gerast,“ segir
hann.
„Það er klisja og ég þarf varla að
tala um hvað er svakalegt f lóð af
f lóknum og ólýsanlegum tilfinn-
ingum sem það vekur hjá manni að
verða foreldri. Ég hef reynt að finna
leið til að tjá það, en það er erfitt
að gera það ekki á klisjukenndan
máta,“ segir hann.
Fjölskyldulífið litar því listsköp-
unina og hann sækir innblástur
þaðan. „Ég er búinn að vera giftur í
átta ár núna. Það er líka búið að vera
rosalega áhugaverður tilfinninga-
rússíbani, sem nýjasta lagið mitt og
nokkur af mínum eldri lögum eru
líka um,“ segir hann. „Mér finnst
það að mörgu leyti áhugaverðara
umfjöllunarefni en einhver rokkari
að syngja um nýjustu heitu gelluna í
lífi hans eða ástarsorg.“ n
36 Helgin 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ