Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 36
Það má reikna með miklu stuði og stemningu í Smár- anum og á Kópavogsvelli í dag og í kvöld, en stuðn- ingsmenn Breiðabliks fá þá tækifæri til að fagna karla- liði félagsins í knattspyrnu, sem fyrr í vikunni tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn, þó án þess að spila. gummih@frettabladid.is Blikarnir innsigluðu verðskuld- aðan titil þegar Víkingur tapaði fyrir Stjörnunni og í kvöld verður sannkölluð sigurhátíð þegar nýbakaðir meistarar taka á móti KR. Örn Örlygsson er formaður Blikaklúbbsins, sem stofnaður var árið 1993, en tilgangur hans er að styðja við bakið á meistaraflokki karla og kvenna. Örn er gallharður stuðningsmaður Breiðabliks. Hann var liðsstjóri þegar Breiðablik vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í karlaflokki árið 2010 og undan- farin fimm ár hefur hann verið formaður Blikaklúbbsins. „Ég var liðsstjóri og í meistara- flokksráði á árunum þegar við urðum Íslands- og bikarmeistarar, 2009 og 2010. Ég á einhvern smá þátt í þeim titlum. Ég hef verið Bliki frá fæðingu satt að segja. Strákurinn minn byrjaði að æfa með Breiðabliki þegar hann var fjögurra ára og ég fylgdi honum upp alla flokka. Ég gerðist liðsstjóri í tíð Bjarna Jóhannssonar 2004 og hætti svo árið 2011,“ segir Örn en Adam Örn, sonur hans, lék með meistaraflokki Breiðabliks áður en hann reyndi fyrir sér í atvinnu- mennsku í Danmörku, Noregi og Póllandi. Hann sneri aftur til Blika fyrir tímabilið en var lánaður til Leiknis um mitt sumar. „Það verður líf og fjör á Kópa- vogsvelli þar sem við stuðnings- menn fáum tækifæri til að hylla strákana. Yngri kynslóðin mun hittast eitthvað fyrr um daginn í Smáranum og við meðlimir Blikaklúbbsins verðum í því að selja varning eins og boli, fána og fleira til þess að hafa á vellinum. Stefnan er sú að 18 ára og eldri komi sér fyrir í gömlu stúkunni þar sem harðasti kjarninn verður og vonandi fyllum við stúkuna. Mér skilst að meistaraskjöldurinn verði afhentur í síðasta heima- leiknum sem er á móti Víkingi, en það mun ekki breyta því að Íslandsmeistaratitlinum verður vel fagnað í leiknum á móti KR,“ segir Örn, en stuðningsmannasveitin Kópacabana ætlar að hita upp fyrir leikinn á 2. hæð í Smáranum. Er þetta tímabil ekki búið að vera geggjað fyrir ykkur, þessa gall- hörðu stuðningsmenn? „Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt en mikil vinna hjá okkur í stjórn Blikaklúbbsins. Á hverjum einasta leik í sumar höfum við verið með sölubása með alls konar varningi og við höfum náð að skapa mjög flotta umgjörð í kringum liðið. Maður renndi svolítið blint í sjóinn fyrir tíma- bilið þar sem við misstum sterka leikmenn eftir síðasta tímabil og maður vissi ekki alveg hvernig menn eins og Dagur Dan og Ísak kæmu inn. Fljótlega eftir fyrstu umferðirnar fór maður að gæla við að eitthvað stórt væri í vændum og sérstak- lega eftir að við unnum KR í Frostaskjóli. Yfirleitt höfum við tapað líkamlegri baráttu við KR-ingana á þeirra heima- velli en nú svöruðu strákarnir því,“ segir Örn. Aldrei selt eins mikinn varning Örn er ánægður með stuðninginn sem liðið hefur fengið á tíma- bilinu. „Mætingin á Kópavogsvöll hefur verið góð og ég held að við séum á toppnum hvað aðsókn varðar. Þá hefur stuðningurinn verið góður á útivöllunum. Það er allt miklu auðveldara þegar vel gengur. Við finnum fyrir því. Við höfum aldrei selt eins mikinn varning og í ár og stúkan hefur aldrei verið eins græn og á þessu tímabili. Treyjur, treflar og húfur hafa rokið út og þegar vel gengur vilja allir taka þátt í gleðinni,“ segir Örn, sem tók smá forskot á sæluna í fögnuðinum, en eftir að ljóst var að Blikar voru orðnir meistarar á mánudaginn skundaði slatti stuðnings- manna félagsins í Smárann, Örn þar á meðal, og fagnaði þar með leikmönnum liðsins. Það má reikna með því að flugeldar fari á loft í Kópa- vogsdalnum í kvöld, til heiðurs frábæru liði Breiða- bliks og væntanlega verður fjölmennt í stúkunum tveimur á Kópavogsvelli. „Ég vona að fólk fjölmenni á völlinn og að áhorfendur verði ekki undir tvö þúsund manns. Mér finnst vera skyldu- mæting hjá yngri kynslóðinni og bara hjá öllum Blikum.“n Allt auðveldara þegar vel gengur  Örn var liðs- stjóri hjá Breiðabliki þegar félagið varð Íslandsmeistari fyrir tólf árum. MYND/AÐSEND Við höfum aldrei selt eins mikinn varning og í ár og stúkan hefur aldrei verið eins græn. Treyjur, treflar og húfur hafa rokið út og þegar vel gengur vilja allir taka þátt í gleðinni. Örn Örlygsson Snyrti- og förðunarfræð- ingurinn Maríanna Páls- dóttir lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í veiðiferð fyrr á árinu, þegar hnéð á henni stokkbólgnaði skyndi- lega. Hún brá á það ráð að taka inn túrmerik-töflur og bólgan hvarf á nokkrum dögum. „Eftir að ég fékk Covid-bólu- setningarnar byrjaði ég að finna fyrir bólgum í líkamanum, bæði í hnjám og olnbogum. Ég spáði samt ekkert mikið í það en svo fékk ég Covid í mars og þá snarversnuðu bólgurnar,“ segir Maríanna. „Ég er rosalega vakandi fyrir því sem ég geri við líkama minn. Ég drekk endalaust af vatni, ég drekk ekki áfengi, ég tek engin lyf. Það er ekkert sem ég get sett putt- ann á sem ýtir undir bólgur hjá mér. Ég get þess vegna ekki tengt bólgurnar við neitt annað en bólu- setningarnar og svo Covid.“ Í áðurnefndri veiðiferð upplifði Maríanna að liðirnir voru verri en venjulega. „Allt í einu upp úr þurru verð ég stokkbólgin á öðru hnénu og það var þá sem ég tók eftir því hvað túrmerik-töflurnar eru áhrifaríkar. Mér verður alltaf illt í maganum ef ég tek bólgueyðandi lyf svo ég reyni alltaf að sleppa þeim. Ég reyni frekar að finna einhverja náttúrulega lausn fyrst. Eins og að drekka meira vatn, sleppa brauði og sykri eða taka út einhverja fæðu sem mér finnst ekki gera mér gott,“ segir hún. „Nema hvað, í þessari veiðiferð var ég með rótsterkar bólgueyð- andi töflur, en ég vissi að ef ég tæki þær þá yrði mér á móti rosalega illt í maganum. Það var ekki í boði í þessum aðstæðum. Ég var úti í náttúrunni innan um kletta og gljúfur og ég gat ekki verið að drepast í maganum þar. En ég gat heldur ekki staðið úti í á að veiða með rosalegan verk í hnénu.“ Bólgurnar hurfu Kokkurinn í Stóru-Laxá kom þá með þessa frábæru hugmynd, að taka inn túrmerik-töflurnar frá ICEHERBS, sem hún var með í veiðihúsinu og viti menn, þær snarvirkuðu. „Það er ráðlagt að taka eina til tvær töflur á dag en ég tók fjórar til fimm, það er ekki ráðlagt en ég gerði það bara í nokkra daga. Það snarvirkaði, bólgurnar bara hurfu. Ég er viss um að það var túrmerik- inu að þakka, því það eina sem ég gerði öðruvísi en venjulega var að dæla í mig túrmerik-töflunum,“ segir hún. Túrmerik bjargaði veiðiferðinni Maríanna uppgötvaði túrmerik- töflur þegar hún bólgnaði skyndilega upp í veiðiferð. En bólgurnar snarminnkuðu eftir inntöku túrmeriksins. MYND/AÐSEND „Ég fann mun á öllum líkam- anum, ekki bara hnénu. Ég tek vítamín fyrir húð, hár og neglur, D-vítamín og svo tek ég túrmerik. Ég tek engin önnur bætiefni. Ef ég prófa að sleppa túrmerikinu í svona viku þá finn ég strax mun svo ég held áfram að taka það.“ Maríanna segir að með túrmerikinu hafi henni tekist að halda bólgunum niðri og hún hafi ekki aftur lent í svipuðu atviki og í veiðiferðinni. „Ég tek alltaf eina til tvær töflur á dag og þetta hefur ekki gerst aftur. Eftir að hafa prófað þetta myndi ég aldrei dæla lyfjum í börnin mín án þess að prófa nátt- úrulega leið fyrst. Ég er agndofa yfir því hvað túrmerik hefur gert fyrir mig.“ Náttúrulegt bætiefni ICEHERBS framleiðir bæði mildar túrmerik-töflur og sterkar túr- merik-töflur. Auk túrmeriks inni- halda þær íslensk fjallagrös, sem eru viðurkennd lækningajurt sem hjálpar til við að draga úr bjúg. Sterkar túrmeriktöflur innihalda auk þess svartan pipar, sem eykur upptöku túrmeriksins og marg- faldar áhrifin. Túrmerik hefur verið þekkt í þúsundir ára fyrir eiginleika sína sem bólgueyðandi jurt og sem kröftug andoxun. Túr- merik er einnig talið geta hjálpað gegn ýmsum öðrum kvillum, allt frá meltingartruflunum upp í gigtarsjúkdóma. Bætiefnin frá ICEHERBS eru hrein og náttúruleg. Lögð er áhersla á að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar innihaldsefnanna viðhaldi sér að fullu. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi og innihalda engin óþarfa fylliefni. n ICEHERBS fæst í öllum betri matvöruverslunum, apótekum, heilsuvöruverslunum og glæsi- legri vefverslun iceherbs.is. 4 kynningarblað A L LT 15. október 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.