Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 39
Hjúkrunarforstjóri
Hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll er vel
rekið og glæsilegt hjúkrunar- og
dvalarheimili í eigu Rangárþings
eystra, staðsett á Hvolsvelli.
Þar eru 29 hjúkrunarrými, tvö
hvíldarrými, eitt dvalarrými og tvö
dagdvalarrými.
Ný og vel búin hjúkrunarálma var
tekin í notkun árið 2018. Í henni
eru 12 herbergi, stór matsalur og
góð aðstaða fyrir starfsmenn.
Allir íbúar eru í einbýli, ýmist á
herbergjum eða í litlum íbúðum.
Nánari upplýsingar um Kirkjuhvol
má finna á: www.hvolsvollur.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll á Hvolsvelli óskar eftir að ráða hjúkrunarforstjóra heimilisins.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og
mannauðsmálum Kirkjuhvols
• Fagleg forysta og ábyrgð á hjúkrunarþjónustu
heimilisins
• Umsjón með stefnumótun, framfylgd stefnu og
markmiðasetningu
• Umsjón með áætlanagerð og gæðamálum
• Samskipti við hagsmunaaðila heimilisins
• Umsjón með kennslu, fræðslu og starfsþjálfun
starfsfólks
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
• Menntun á sviði hjúkrunarfræði og réttindi til að starfa
sem hjúkrunarfræðingur
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri á sviði
öldrunarmála er æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og
geta til að skapa góða liðsheild
• Leiðtogahæfni, metnaður, framsýni og lausnarmiðað
hugarfar
• Frumkvæði, skipulagshæfni og jákvæðni
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti
Brennur þú fyrir réttindum
langveikra barna?
Umhyggja er félag sem vinnur að
bættum hag langveikra barna og
veitir fölskyldum þeirra margvíslegan
stuðning.
Starfsfólk Umhyggju er 4 talsins
og sinnir fjölbreyttum verkefnum í
sveigjanlegu og góðu starfsumhverfi.
Styrkur Umhyggju endurómar í
samstarfi foreldra og fagfólks, þar
sem starfsemin eflist með hverju
árinu og verkefnum fjölgar.
Nánari upplýsingar má finna á
www.umhyggja.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umhyggja – félag langveikra barna leitar að drífandi liðsfélaga í stöðu sérfræðings á skrifstofu
félagsins sem brennur fyrir réttindum langveikra barna. Viðkomandi mun sinna mjög fjölbreyttum
verkefnum og fær tækifæri til að móta starfið og áherslur þess.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Samskipti og samvinna við félagsmenn, aðildarfélög,
styrktaraðila og aðra hagsmunaaðila félagsins
• Ráðgjöf til foreldra langveikra barna
• Almenn réttindabarátta og athyglisvakning á málstað
langveikra barna
• Yfirferð og umsagnir frumvarpa auk annarra verkefna í
tengslum við réttindamál langveikra barna
• Þátttaka í markaðs- og útgáfumálum fyrir
samfélagsmiðla og vefsíðu
• Fjölbreytt verkefni á skrifstofu, s.s. símsvörun, svörun
fyrirspurna, umsjón með orlofshúsum, skipulagning
námskeiða o.fl.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Menntun sem nýtist í starfi, s.s. í félagsráðgjöf eða
lögfræði
• Reynsla af sambærilegu starfi og verkefnum er kostur
• Áhugi og þekking á málaflokknum, umhverfi hans og
réttindabaráttu er æskileg
• Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og
þjónustulund
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
• Drifkraftur, sveigjanleiki og jákvæðni
• Góð almenn tölvukunnátta
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 15. október 2022