Fréttablaðið - 15.10.2022, Blaðsíða 50
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2022.
Sótt er um starfið á www.mognum.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma
Eiðsdóttir; telma@mognum.is.
Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
Menntun á sviði stjórnunar er kostur.
Marktæk þekking og reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðarþróun.
Sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðuð nálgun og færni til að sjá heildarmyndina.
Framúrskarandi leiðtogi með góða samskiptahæfileika og reynslu í að stýra teymum.
Þekking á Agile aðferðafræði og reynsla af verkbeiðnakerfinu Jira æskileg.
Reynsla af vinnu samkvæmt gæðakerfunum ISO 9001 og ISO 27001 er æskileg.
Góð enskukunnátta er áskilin.
Menntunar- og hæfniskröfur
Þula býður fyrsta flokks hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisgeirann.
Lausnir Þulu eru þróaðar í nánu samstarfi við kröfuharða viðskiptavini.
Í tæp 20 ár hefur Þula unnið með heilbrigðisstofnunum víða í Evrópu og þróað með
þeim framsæknar lausnir sem gera þeim kleift að ná árangri á sínu sviði.
Hjá Þulu starfa um 40 manns og flestir eru búsettir á Akureyri.
www.thula.is
Við leitum að verkefnastjóra til að styrkja raðir Þulu á þeirri vegferð að með hagnýtingu
framsækinna hugbúnaðarlausna muni viðskiptavinir fyrirtækisins ná fram hagræðingu í
rekstri á sama tíma og þeir ná að veita betri þjónustu.
Starfið felur í sér verkefnastýringu og samhæfingu vinnu í dreifðu teymi við þróun
yfirgripsmikilla og tæknilega ögrandi hugbúnaðarlausna í fjölþjóðlegu umhverfi.
Æskilegt að viðkomandi starfi á skrifstofu Þulu á Akureyri.
Þátttakandi í mótun og þróun hugbúnaðarlausna sem gegna lykilhlutverki við
meðhöndlun lyfja á heilbrigðisstofnunum.
Skipulagning verkefna og áætlanagerð.
Verkefnastýring og eftirfylgni með stöðu verkefna.
Dagleg samhæfing vinnu um 10 starfsmanna sem staðsettir eru á Akureyri og erlendis.
Samskipti við viðskiptavini á Íslandi og erlendis.
Þátttaka í stöðugum umbótum á verklagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
VERKEFNASTJÓRI
HUGBÚNAÐARÞRÓUN
Ræstitæknir óskast
á skrifstofu Alþingis
Við leitum að jákvæðum einstaklingi til starfa í
frábæru teymi ræstitækna á rekstrar- og þjónustusviði
skrifstofu Alþingis. Mikilvægt er að viðkomandi búi
yfir framúrskarandi þjónustu- og samskiptahæfni. Um
er að ræða fullt starf og er vinnutíminn kl. 7–15 auk
tilfallandi yfirvinnu.
Hlutverk rekstrar- og þjónustusviðs er meðal annars
umsjón með rekstri húsnæðis og öryggismála ásamt
almennri þjónustu fyrir þingmenn og starfsfólk.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött
til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt
kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður umsókn
sína. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir um starfið gilda í sex
mánuði frá auglýsingu þessari.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.10.2022.
Frekari upplýsingar um starFið
• Þrif á skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á starfssvæði
Alþingis
• Þvottur, frágangur og dreifing á hreinlætisvörum
• Önnur verkefni á rekstrar- og þjónustusviði
• Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg
• Reynsla af vinnu í teymi er kostur
• Metnaður og ábyrgð í starfi
• Hreinlæti og snyrtimennska
• Góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Helstu verkeFni og ábyrgð
HæFnikröFur
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurlaug Skaftad. McClure, vaktstjóri
sigurlaugs@althingi.is – 563 0500
gildi skrifstofu alþingis eru
fagmennska | virðing | framsækni
Erum við
að leita að þér?
14 ATVINNUBLAÐIÐ 15. október 2022 LAUGARDAGUR