Fréttablaðið - 15.10.2022, Síða 51

Fréttablaðið - 15.10.2022, Síða 51
ÍSAFJARÐARBÆR Hafnir Ísafjarðarbæjar – Hafnarstjóri Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf hafnarstjóra frá 1. janúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga til að leiða öflugt starf hafna Ísafjarðarbæjar. Næsti yfirmaður hafnarstjóra er bæjarstjóri. Hafnarstjóri sér um daglega stjórnun hafnarsvæðisins, deilir út verkefnum, sinnir starfsmannastjórnun og þarf jafnframt sjálfur að geta sinnt öllum helstu verkum á höfninni. Viðkomandi kemur að kynningu og markaðssetningu á höfnum Ísafjarðarbæjar og stuðlar að stöðugum umbótum í takt við framsækna og nútímalega hafnarþjónustu. Hafnirnar eru fjórar, þ.e. á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri og er öll grunn- þjónusta í boði á þessum stöðum. Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2022. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst á arnalara@isafjordur.is. Umsóknir skulu sendar til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf og afrit af viðeigandi réttindum/prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Helstu verkefni og ábyrgð: • Daglegur rekstur og stjórnun hafnarsvæðis • Starfsmannastjórnun • Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlana og ábyrgð á fjárreiðum • Umsjón með viðhaldi fasteigna, mannvirkja og tækja í eigu hafnar- sjóðs • Umsjón og eftirlit með veittri þjónustu • Kynning og markaðssetning hafnarinnar og samskipti við viðskipta- vini • Upplýsingagjöf og vinnsla mála til hafnarstjórnar • Stefnumótun í málefnum hafnanna • Yfirumsjón með hafnsögu og stjórn á umferð um hafnarsvæði • Sinnir helstu verkum í forföllum annarra starfsmanna Hæfniskröfur: • Menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Reynsla af rekstri er skilyrði • Þekking á hafnarmálum og opinberri stjórnsýslu • Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri • Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót • Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg, önnur tungumál kostur • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á excel • Reynsla af starfsmannastjórnun æskileg • Þekking á skipulags- og umhverfismálum kostur • Skipstjórnarréttindi til stjórnar skipa, 24m lengd hið minnsta (A – réttindi) kostur • Stærri vinnuvélaréttindi kostur Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. -Við þjónum með gleði til gagns- Geislagata 9 Sími 460 1000 www.akureyri.is akureyri@akureyri.is Hvítt letur Skólastjóri Giljaskóla á Akureyri Staða skólastjóra Giljaskóla á Akureyri er laus til umsóknar. Leitað er að bjartsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á velferð og framfarir nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á faglegri þróun, daglegum rekstri, mannauðsmálum og annarri starfsemi skólans og að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir. Giljaskóli er framsækinn skóli sem hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. nóvember 2022 eða skv. samkomulagi. Sjá nánari upplýsingar um starfið á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt. Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2022. Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 15. október 2022
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.