Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Qupperneq 10
8
Bjarni Guðmundson
ÁHRIF VERKUNAR Á HOLLUSTU ÞURRHEYS
Innqanqur
Lengi vel var því lítill gaumur gefinn að lífverur í heyi
gætu valdið mönnum og búfé óþægindum eða heilsutjóni (1). Aðrir
þættir þóttu forvltnilegri til rannsókna. Á tveimur síðustu
áratugum hefur þekking á þessu sviði vaxið mjög í kjölfar
rannsókna sem læknar, örverufræðingar og búvísindamenn hafa
stundað, - framan af hver fyrir sig, en með vaxandi samvinnu á
síðustu árum.
í eftirfarandi kafla verður fjallað um heyverkunina með
tiliiti til þeirra áhrifa, sem hún getur haft á þrif lífvera í
heyi. Með verkun heysins er lagður grundvöllur að því, sem síðar
gerist í heyinu. Þá kann að reynast dýrt og jafnvel ógerlegt að
ráða bót á því, sem úrskeiðis fór í byrjun. Þessu samhengi má
ekki gleyma.
Athyglinni verður einkum beint að þáttum, sem varða
þurrheysgerðina, enda er megin hluti töðufengs landsmanna
verkaður þannig. Ennfremur virðist alvarlegt heilsutjón bænda
tengdara þurrheyi en öðru fóðri. Hafa verður hugfast, að það,
sem veldur hirðinum heilsutjóni, getur líka valdið búfénu
hliðstæðum óþægindum.
Vöxtur og þrif lífveranna
í heyi þrífast ýmsar lífverur. Nefna má bakteríur, sveppi
og heymaura - hver með sín sérkenni og markaðar kröfur til
umhverfis. í heyinu hafa þær flest sem til lífsins þarf: vatn,
súrefni, yl og næringu. Við hagstæð skilyrði auka þær kyn sitt
með undraverðum hraða. Lífverur þessar eru í besta falli
meinlausar, en oftar þó til meiri eða minni skaða. Þær rýra
fóðurgildi heyslns og lystugleika þess, og þær geta ógnað heilsu
búfjár, sem etur heyið, og manna, sem meðhöndla það.
Þegar hátterni og umhverfiskröfur lífveranna eru þekktar er
unnt að haga heyverkun svo að takmarkaður sé vöxtur þeirra. Við
verkun heyfóðurs til geymslu er einum eða fleiri eftirtalinna
umhverfisþátta stjórnað með markvissum hætti:
sýrustigi
- rakastigi (vatnsvirkni)
- súrefni
- hitastigi
Við þurrheysgerðina er rakastiginu stjórnað, en hitastig
umhverfis getur að sönnu ráðið nokkru um það, hver áhrif rakans í
heyinu verða í einstökum tilvikum.
Vatnsvirkni heysins
Fyrir lífverurnar er það ekki vatnsmagnið sjálft, sem málinu
skiptir, heldur það, hversu aðgengilegt vatnið er þeim. í stað
þess að tala um rakastigið í heyinu, sem er hinn gamalkunni
mælikvarði á vatnsinnihaldið, hentar betur að nota aðra
mælistærð, sem nefnd hefur verið vatnsvirkni. Nafnið lýsir því,
sem við er átt, þ.e. virkni vatnsins fyrir lífverurnar.