Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Síða 12
10
m
10 0 10 20 30 40 50 60
2. mynd. Áhrif hitastigs (°C) og vatnsvirkni (aw) á vöxt smávera
í korni (3).
Þýðing þurrkunarinnar
Það er varla fyrr en rakastig heysins er komið niður fyrir
50-60%, að vatnsvirkni þess er að minnka (að falla úr 1,0 - sjá
1. mynd). Eigi að þjarma að gerlum í heyinu og koma vatnsvirkni
í því niður fyrir 0,9 verður að þurrka heyið niður fyrir 23-25%.
Lífsgrundvelli myglusveppanna er fyrst kippt burt að mestu, er
rakastig heysins er komið niður fyrir 15-18%. Þá er vatnsvirkni
heysins orðin minni en 0,8 og heyið að verða geymsluþurrt. Örugg
erum við ekki fyrr en vatnsvirknin í heyinu er komin niður fyrir
0,7.
Það er því grundvallaratriði, að þurrkun heysins gangi hratt
fyrir sig, svo að lífverunum gefist sem minnst tóm til að starfa
og auka kyn sitt. Þá er og þýðingarmikið, að heyið þorni sem
jafnast, því ef eftir verða blautar tuggur, verða þær gróður-
reitur fyrir lífverurnar, sem breiðst getur um heystæðuna.
Rakastig þurrkloftsins setur þurrkun heysins takmörk. Við
þurrkun og geymslu heysins leitar vatnsvirkni þess jafnvægis við
loftrakann. Algengur loftraki hérlendis er 78-84% (4), sem
merkir það að vatnsvirkni heysins leitar gildanna 0,78-0,84. Sé
heyið súgþurrkað, má reikna með að þessi gildi séu allt að 5
(0,05) einingum lægri m.a. vegna ylsins frá aflvél o.fl. Þar sem
súgþurrkunarloftið er hitað upp, verður vatnsvirkni heysins mun
minni en að framan segir.
Náinn fylgifiskur vatnsvirkninnar við þurrkun heysins er
hitamyndunin. Ekki er svigrún til að gera henni sérstök skil
hér, en á 3. mynd eru táknuð tengsl hitamyndunar og vatnsvirkni í
heyi, sem ekki er súgþurrkað (5). í hlöðum þar sem eru vönduð
tæki til súgþurrkunar og þau rétt notuð, er ekki hætta á
hitamyndun.