Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Síða 15
13
Ráðstafanir til úrbóta
Ráð til þess að verka heilnæmt þurrhey eru flest gamalkunn.
Þau felast í því að beita þekkingu og vönduðum vinnubrögðum.
Ömurlegt er að þurfa að kasta miklum fjármunum til þess að bæta
úr skaðanum eftir á, skaða sem ef til vill kostaði lítið nema
búvit og verkvöndun að fyrirbyggja. Heiisutjón af umgengni við
illa verkað þurrhey verður sjaldan bætt að fullu. Það sýna ýmis
dæmi um lungnasjúkdóma sveitafólks. En af fyrirbyggjandi
aðgerðum má einkum nefna:
a. Þéttar þurrheyshlöður með þurrum grunni (gólfi), þannig
að slagregn, foksnjór, jarðraki og leysingavatn nái
aldrei til heysins.
b. Hreinlæti í hlöðu. Heyrusl þrifið vandlega af gólfl,
syllum og undan sperrum. Sé mengun vegna myglu og
maura mjög römm, kemur til greina að sótthreinsa
hlöðuna með lyfjum.
c. Allt gert til þess að heyið þörni sem jafnast og
hraðast. Heyið sé lyskrulaust við hirðingu, því jafnað
vandlega í hlöðu og súgþurrkunin nýtt til hlítar. í
heyinu má alls ekki hitna.
Heimildir
1. Tryggvi Ásmundsson 1975. Heymæði.
Freyr 71 (7-8): 193, 197-199.
2. Bjarni Guðmundsson og Thorkil E. Hallas 1985. Water
activity, moisture content and concentration of mites in
stored hay in Iceland.
ísl. landbún. 17, (1-2): 39-44.
3. Lacey, 3. 1987. Exposure of farm workers to fungi and
actinomycetes while harvesting cereal crops and handling
stored grain.
European Oourn. Respiratory Diseases, Suppl. No. 154,
Vol. 71: 37-43.
4. Markús k. Einarsson 1976. Veðurfar á íslandi.
Iðunn, Reykjavík, 150 bls.
5. Bjarni Guðmundsson 1985. Vatnsvirkni þurrheys.
Handbók bænda, 35: 179-186.
6. Kaspersson, A. 1986. The role of fungi in deterioration of
stored feeds.
Inst. f. mikrobiol. SLU, Uppsala, Raport 31 (diss.).
7. Lindgren, S. 1987. Persónulegar upplýsingar
8. Davíð Gíslason 1985. Heysjúkdómar.
Handbók bænda. 35: 207-211.