Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Page 18
16
forþurrkun væri vænleg í votheysgerð og var alveg horfinn frá þvi
aö verka vothey með því að láta hitna 1 því en það haföi verið
viðurkennd aðferð til jafns við að fergja heyið strax og koma í
veg fyrir hitamyndun. Hefur áhugi og reynsla Runólfs eflaust átt
þátt i þvi að menn lögðu út á þá braut að fóðra búfé eingöngu á
votheyi eins og nú tiðkast á Vestfjörðum og viðar. Runólfur
skrifaði grein um votheysverkun 1947 (6).
Bæði fyrr og siðar hafa ýmsir góðir menn hvatt til
votheysverkunar i ræöu og riti þó að þeir séu ekki nefndir hér.
Hvanneyringar hafa löngum verið þar i fararbroddi þó aö
starfsmenn Búnaðarfélags Islands og Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins hafi ekki látið sitt eftir liggja.
Gallarnir á votheysverkuninni fóru smám saman að koma i
ljós. Verkunin er vandasöm og fyrsta flokks vothey fæst ekki
nema úr úrvals grasi eða grænfóðri. Misheppnist verkun getur
tvennt gerst.
a) Sýklar vaxa i heyinu og mestu tjóni veldur
Hvanneyrarveikin illræmda (listeriosis) þó að aórar sóttkveikjur
sjaldægfari geti orðið skepnum aö tjóni. R Hvanneyri hafði þessi
veiki sýkt og drepið kindur i tið Halldórs Vilhjálmssonar og var
veikin kennd við Hvanneyri og kölluð Hvanneyrarveiki. Páll A.
Pálsson skrifaði grein 1970 (7) og leggur þar til að þessu nafni
veröi haldið. I þessari grein er aö finna meðal annars þetta um
sjúkdóminn:
-Guðmundur Gislason kannaði hve margt fé fórst eóa veiktist
af Hvanneyrarveiki i Strandasýslu. Var það um 2% af fénu. Þar
fyrri utan veldur sýkin töluverðu tjóni vegna lambaláts.
Sýkillinn hefur þar að auki verið staðfestur i hrossum, hænsnum
og mönnum. Hann getur lifað i illa verkuðu votheyi og skemmdu
þurrheyi. Miklu sjaldgæfara er að fé sýkist af þurrheysrekjum en
votheyi þó að það komi fyrir. Samkvæmt athugun Guömundar
Gislasonar varö Hvanneyarveiki vart i 57% þeirra hjarða sem fengu
vothey en aðeins 1.4% þeirra sem ekki fengu neitt vothey. Þessi
niðurstaða bendir ótvirætt til þess að fé sem fóðraö er með
votheyi sé miklum mun hættara viö að fá Hvanneyrarveiki en þeim
sem fá aðeins þurrhey-.
b) Ef heyið gerjast ekki með mjólkursýrugerjun, loft hefur
komist að heyinu, verður það daunillt og meingar allt úti og
inni, mjólk sem annaö. Þar að auki veldur slikt hey súrdoða i
kúm ef þær fá verulegt hlutfall af þvi og eru dæmi til aö bændur