Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Side 30
28
Af þessu má þó ráða að mengun geti orðið mjög mismunandi mikil við
gjöf á lausu þurrheyi. Við gjöf á heyi verkað á anran hátt verður
mengunin miklu minni þannig að mesta mengunin í þeim tilvikum er
yfirleitt minni en minnsta mengunin við gjöf á lausu þurrheyi. Þetta á
við um fjölda örvera, en magn endótoxíns getur einnig orðið talsvert
við gjöf á bundnu þurrheyi.
Eins og áður sagði var einu sinni mældur fjöldi örvera við mjaltir
eftir gjöf á lausu þurrheyi og reyndist hann vera 0.07 x lO^/itt3, en
var við sjálfa gjöfina 0.19 x lO^/m3 og við gjöf á votheyi stuttu
seinna 0.03 x 10^/m3. Þetta sýnir að örverurnar geta svifið í langan
tíma eftir að þær hafa losnað út í andrúmsloftið.
Mjög erfitt er að gera samanburð á niðurstöðum þessara mengunarnBelinga
og hugsanlegum heilsufarsáhrifum. Ekki eru til nein mengunarirörk fyrir
hversu mikið magn af örverum eða endótoxíni megi finnast í
andrúmsloftinu. Samkvæmt mælingum í Svíþjóð virðast mörkin fyrir
örverur liggja í kringum 1 milljarð (1,0 x lO^/m3) í hverjum rúmmetra
lofts, þ.e. ef menn verða fyrir meiri mengun er hætta á að áhrif kcmi
í ljós. Þetta er auðvitað háð nörgum þáttum t.d. hversu lengi menn
hafa unnið í slíku unihverfi, hversu lengi mengunin varir og
einstaklingar eru einnig alltaf mismunandi viðkvæmir. Mjög fá sýni
fara að þessu sinni yfir þessi mörk en hafa verður þó í huga að
örveruflóran á íslandi er talsvert frábrugðin þeirri í Svíþjóð, þó
ekki sé hægt að segja til um hvort búast megi við sterkari áhrifum af
þeim sökum eða ekki.
Svipaða sögu er að segja um endótoxín. í Svíþjóð hafa kanið fram
einkenni þegar menn hafa orðið fyrir 0.1 - 0.5 ug/m3 af endótoxíni frá
bómullarryki í u.þ.b. 8 stundir. Þetta mindi samsvara um 1.6 - 8 ug/m3
í 30 mínútum. Ekki er öruggt að hægt sé að líkja "lítilli" mengun í
langan tíma við mikla mengun í skamman tíma, en ef það er gert kemur í
ljós að um 6 sýni voru yfir þessum mörkum, þar af 4 langt yfir þeim.
Ekki er vitað um nein sérstcSc áhrif eftir að viðkcmandi höfðu orðið
fyrir þessari mengun. Hafa verður þá einnig í huga að líklegast er
bcmullarryk fínna en heyryk og berst því auðveldar niður í
lungnablöðrurnar en heyryk, sem stöðvast frekar í efri hlutum
öndunarfæranna.