Rökkur - 01.06.1932, Qupperneq 9
ROKKUR
7
ber að utanríkismálaráðherra.
— Þann 13. sept. gerðu Heim-
wehrmenn tilraun til þess að
setja á stofn fascista-einræði,
en það mishepnaðist algerlega.
Þann 24. nóv. kom nefnd er-
lendra bankamanna til Vín. I
nefndinni voru fulltrúar allra
þeirra banka í öðrum löndum,
sem Credit Anstalt er skuldug-
astur. Innan fárra daga liafði
nefndinni tekist að koma svo ár
sinni fyrir borð, að stjórnin lof-
aði að koma nýju skipulagi á
starfsemi Credit Anstalt, á þann
hátt, að segja má, að Credit An-
stalt verði undir eftirliti hinna
erlendu banka, uns þeir hafa
fengið skuldir sínar greiddar.
Að skipulagsstarfsemi þessari er
enn unnið. Og á lienni veltur
mikið. Austurriski þjóðbankinn
á og mikið fé hjá Credit Anstalt.
Hinir erlendu bankar munu að
sjálfsögðu sjá sér hag í því, að
Credit Anstalt fari ekki um, en
ef svo færi, fer eins fyrir þjóð-
bankanum.
Spánn 1931.
Árið 1931 var eitthvert liið
mesta merkisár i sögu Spánar
fyrr og síðar, þvi konungsveld-
íð leið undir lok, en lýðveldi
var stofnað í landinu. Og með
stofnun lýðveldisins var hafin
viðtæk starfsemi til að koma
mannúðar-, menningar- og fjár-
hágsmálum þjóðarinnar i gott
horf. Alfonso XIII. Spánarkon-
ungur hélt völdunum, er ein-
ræðisherranum Primo de Ri-
vera var hrundið frá völdum í
september 1930, en hann varð
að reyna það þ. 14. apríl 1931,
að þjóðin i heild var orðin mót-
snúin honum og einnig, að lier-
inn var orðinn honum fráhverf-
itr. Eins og eðlilegt er, þar sem
slíkir stórviðburðir gerðust í
landinu og að framan er minst
á, varð oft töluverðrar æsingar
og ókyrðar vart, og er í raun-
inni furðulegt, hve friðsamt var
í landinu, þegar tekið er tillit til
livernig ástatt var. Þegar í árs-
byrjun var það orðið ljóst, að
undirstaðan undir veldi Alfonso
var öll að láta sig. Herlög voru
í gildi í landinu og strangt eftir-
lit með skeytasendingum og
blaðaútgáfu. En bæklingum og
pésum var úthlutað um gervalt
landið með greinum gegn kon-
ungsveldinu. Ljósmvndum af
Fermin Galan og Garcia Her-
nandez, leiðtogum í Jaca-upp-
reistinni, var dreift út um land-
ið af lýðveldissinnum, og voru
þær hengdar upp á spánversk-
um heimilum, en nivndir af
konungsfjölskyldunni eyðilagð-
ar. Fyrsta verk lýðveldisstjórn-
arinnar var að nema úr gildi