Rökkur - 01.06.1932, Blaðsíða 16
11
R Ö K K U R
samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu 50,145,000,000. — Hinn nýi
herskipafloti Frakklands liafði
útgjöld í för með sér fyrir rikið,
sem námu 2,850,000,000. í flot-
anurn eru 4,110 yfirforingjar og
53,305 undirmenn. Þar með eru
ekki taldir flugmenn, né strand-
varnarliðið. Frakkland er enn
að láta smíða lierskip samkv.
desember-áætluninni frá 1924,
sem var samin með hliðsjón af
fimmveldasamningnum, sem
gerður var í Washington. Sam-
kvæmt desember-áætluninni
bætir Frakkland enn við her-
skipaflota sinn 240,000 smál.
fyrir árslok li)36. Þar af 196.800
smál. í stað úreltra skipa. Þegar
búið er að ljúka við herskipa-
smíðar samkvæmt þeirri áætl-
un, er allur herskipafloti Frakk-
lands að kalla ný skip.
Af merkustu mönnum Frakk-
lands, sem létust á árinu, ber
að nefna þá Joffre marskálk og
Louis Loucheur.
Einn af frægustu flugmönn-
um Frakka, Joseph le Brix, fórst
á árinu, austur í Síberíu.
Bretland 1931.
Komist hefir verið svo að orði,
að Bretlandi mætti í árslok
1931 líkja við skip, sem lent
hefði í hrakningum og orðið
fyrir miklum áföllum og skemd-
um, en náð landi, þó við illan
leik. Bretar hurfu frá gullinn-
lausn í haust sem leið, eins og
kunnugt er, og allar líkur benda
til að erfiðleikar Breta á við-
skifta- og fjárhagssviði hafi páð
iiámarki 1931, þótt þjóðin verði
enn að horfast í augu við óhag-
stæðan viðskiftajöfnuð, sem
nemur næstum 300 miljónum
dollara. Mikið hafði verið lagt í
sölurnar til þess að afgreiða
tekjuhallalaus fjárlög. Víðtækar
ráðstafanir voru gerðar til þess
að koma í veg fyrir okur. Þýð-
ingarmiklar ráðstafanir hafa
verið gerðar til þess að ryðja
braut til alþjóðasamkomulags
um ófriðarskuldir og ófriðar-
skaðabætur. Sambandið við ný-
lendurnar var hið ákjósenleg-
asta og menn gera sér vonir um
nána viðskiftasamvinnu innan
Bretaveldis. Af þessum ástæð-
um og fleirum er mikill hluti
þjóðarinnar þeirrar trúar, að
MacDonald, forseti þjóðstjórn-
arinnar muni lakast að láta f jár-
lagaútgjöld ekki fara fram úr
áætlun, minka hinn óhagstæða
verslunarjöfnuð og' varðveita
kaupmátt sterlingspunds innan-
lands, enda þótt það hafi fallið
í verði alt að 25% erlendis.
Seinustu 12 mánuði hefir að
kalla má hver atburðurinn rek-
ið annan, sem hafa veikt trúna