Rökkur - 01.06.1932, Side 25
RÖKKUR
23
í því, hve hreinlæti hefir aukist.
Það er nú metnaðarmál barn-
anna að vera sem hreinlegust.
Einnig liefir verið lögð áhersla
á það, að koma því til leiðar, aö
skólabörnin væri klædd skyn-
samlega, og er einnig að því er
það snertir, um miklar fram-
farir að ræða. — Þess er einnig
getið í skýrslunni, hvern þátt
útivera og leikfimi iiafi átt í því
að bæta heilsufar barna. Leik-
fimiskenslan fer fram í því
augnamiði að þroska líkama og
sál barnsins, en ekki eins og
fyrr á timum, er leikifimikensl-
unni var hagað þannig, að
drengir vrði betur undir heræf-
ingar búnir. Um útiveru og úti-
kenslu er mjög rætt í skýrsl-
unni. Er bent á það, að enn
þurfi mikið að gera til þess að
koma því til leiðar, að börnin
geti notið hreins lofts og sólar í
ríkara mæli en var og er. 80%
af öllum skólabyggingum, sem
bygðar hafa verið á seinni ár-
um eru sérstaklega útbúnar
með það fyrir augum, að börn-
in geti notið hreins lofts og sól-
ar, er kensla fer fram.
Hjúkrunarkonurnar fram-
kvæma skoðun á skólabörnum
jafnaðarlega, en auk þess fer
fram læknisskoðun, 1,770,779
börn voru skoðuð af læknum í
London árið sem leið og auk
þess voru 968,518 börn skoðuð,
af ýmsum ástæðum, vegna óska
foreldra, hjúkrunarkvenna og
kennara. 1,897,320 skólabörn
voru endurskoðuð af lælcnum
skólanna. Við læknisskoðanir á
skólabörnum hefir komið i ljós,
að algengasta inein barnanna
er gölluð sjón, því næst of stór-
ir hálskirtlar, kirtlaveiki og
hörundskvillar. — Eittlivert
eftirtektarverðasta atriði i
skýrslunni er það, að seinustu
20 árin hefir dauðsföllum með-
al skólabarna af völdum berkla-
veiki fækkað um helming, en
frá 1921 hefir dauðsföllum
meðal skólabarna til 15 ára ald-
urs af völdum berklaveiki í
öllum myndum fækkað um
35%. I skýrslunni segir, að ef
til vill sé hreska þjóðin smátt
og smátt að verða ónæm fyrir
berklaveiki eða að berklagerl-
arnir liafi minna smitmagn
(less virulent) en áður fyrr, en
um þetta verði ekki sagt með
vissu. En á það er bent, að
hreysti og heilbrigði, runnin af
rótum aukins hreinlætis, á sinn
mikla þátt í að draga úr berkla-
smithættunni og gera líkamann
ósmitnæmari. í skólunum að
minsta kosti, segir að lokum,
er stöðugt haldið áfram barátt-
unni fyrir þvi, að verja börnin
fyrir þessum sjúkdómi og öðr-
um hættulegum sjúkdómum.