Rökkur - 01.06.1932, Blaðsíða 27
ROKKUR
25
Þegar nætur eru mjög dinnn-
ar, skýjað loft, svo að ekki má
greina hafsbrún frá himni,
móða í lofti og litill úði, þá
skína vitaljós hvað skærast.
Þegar fuglar koma inn í hina
skæru ljósbirtu, en lenda síðan
slcyndilega í svartamyrkri, þeg-
ar skyggir fyrir vitaljósin, þá
truflast hin skörpu skynfæri
þeirra, svo að þeir dragast að
ljósinu. Hópur kemur eftir lióp
og safnast að vitanum og kom-
ast þeir ekki burtu.
Þegar skvgni er gott um næt-
ur, má sjá við vitaljósin, að
helst vill hver tegund fugla
fljúga sér í hóp. En öðru máli
er að gegna, þegar mörgum
tegundum, stórum og smáum,
ægir saman við vitana, og allir
fljúga í einni hendu liringinn í
kring um þá. Sumir þeirra
verða þá svo ruglaðir af birt-
unni, að þeir fljúga að lokum
beint á vitaglerin og láta lífið.
Stundum getur einnig margra
daga þoka valdið þvi, að ólíkar
fuglategundir safnast saman að
degi til, og einkennilegast af
öllu er þá að sjá, þegar smáfugl-
ar njóta stöku sinnum þess far-
arbeina að mega sitja á baki
sér stærri og sterkari ferðafé-
laga.
S.l. haust gerði svo mikla kulda
í Austurríki, að sliks eru ekki
dæmi í 30 ár. Þá bar svo við,.
að mesti urmull af svölum
kom til Vínarborgar og héraða
þar í kring, og voru þær aðfram
komnar af kulda og hungri.
Urðu þá góðir menn til þess að
safna þeim saman og gefa þeim
að eta, og eftir það voru þær
settar í búr og fluttar þúsund-
um saman í flugvélum suður í
„sól og sumar“, við Miðjarðar-
haf.
B. Sv.
Bíiskapurinii
á YífilsstöBum.
—o—■
Þegar rætt er um stórfeldar
framfarir í búnaði og ræktun
í stórum stil hér á landi, verð-
ur ekki komist hjá því, að minn-
ast á búskapinn á Vífilsstöðum.
Um búskapinn þar liefir verið
ritað allítarlega, bæði i Búnað-
arritinu og bæklingi, sem Bún-
aðarfélagið gaf út í fyrra
(„Búnaður sunnanlands") og
má vísa þeirn til greinanna í
þessum ritúm, sem vilja kynna
sér þetta efni nánara, en hér
verður drepið á nokkur atriði
viðvikjandi búskapnum á Víf-
ilsstöðum, og sumpart stuðst
við áðurnefndar greinir. Ástæð-
an til þess að Rökkur gerir hú-