Rökkur - 01.06.1932, Side 31
R O K K U R
29
endum fjölgar við slíka skóla,
t. d. 500 í Englandi og Wales
s.I. ár. Talið er, að konur hafi
fengið áhuga fyrir búvísindum
með aukinni áherslu, sem lögð
er á síðari tímum á nýjar kröf-
ur í meðferð og framleiðslu
mjólkurafurða. Mjólk, sem er
vísindalega meðfarin, er i hærra
verði og hefir það aukið áliuga
kvenna fyrir að afla sér sem
víðtækastrar reynslu og þekk-
íngar á sviði mjólkurfræðinn-
ar. — Eggjaframleiðslan hefir
aukist um helming i Bretlandi
síðan 1913. Árlegt verðmæti
þessarar framleiðsluaukningar
nemur £ 7.000.000. Ríkisstjórn-
in, héraðsstjórnir og búnaðar-
félög og búnaðarsambönd hafa
árum saman hvatt til aukinnar
eggjaframleiðslu og veitt aðstoð
i þeim efnum.
Þá hefir einnig framleiðsla
garðávaxta aukist stórum, enda
eru mörg félög í landinu, sem
starfrækja niðursuðu á garð-
ávöxtum, og hefir þeim, sem
garðávexti rækta, orðið mikill
styrkur að aukinni starfsemi
slíkra félaga. Talið er, að niður-
suða (í dósir) á garðávöxtum
hafi þrefaldast i Bretlandi sein-
ustu tvö árin. Slík framleiðsla
ngmur nú 30 miljónum dósa á
ári. Og framleiðslan fer sívax-
andi.
Tllhögun fræSslumála
I London.
—o—
Ef menn taka til ihugunar
hve mikill mannfjöldi er sam-
an kominn í London og hve
borgin — með öllum úthverf-
um — nær yfir stórt svæði,
kemur i ljós, að engin önnur
borg i heimi veitir jafn mörg
og margbreytileg skilyrði til
mentunar og London. Fyrst af
öllu ber að nefna háskólann
(London University), sem veit-
ir þeim skilyrði til að nema,
sem ætla sér að öðlast hina svo-
nefndu æðri mentun. Háskólinn
er frægur um víða veröld, ekki
síst læknisfræðideildin og fleiri.
Þá ber að nefna fjölda marga
og margskonar framhaldsskóla.
sem veita margskonar fræðslu
og undirbúningsmentun undir
háskólanám. Þá eru i borginni
fjöldi undirbúningsskóla, sem
einstaklingar reka, undir opin-
beru eftirliti. En víðtækasta
skólafræðslustarfsemi hefir
fræðslumálastjórn Lundúna-
borgar með liöndum (London
County Council Education De-
partment), og er aðalhlutverk
fræðslumálastjórnar þessarar
að sjá fyrir skólamentun barna
á aldrinum 3—14 ára, og er
svo ber undir, lengur en til 14