Rökkur - 01.06.1932, Blaðsíða 33
R O K K U R
31
(leildir og eru kennararnir í
þeim deildum æfðir og ment-
aðir sérstaklega til þessa starfs.
Fræðslunefndin lætur sig mestu
varða mentun barna á aldrin-
um 3—14 ára, en það er síður
en svo, að drengir og telpur, er
sýnt liafa mikinn námsdugnað
og sérstaka hæfileika, þurfi að
verða svift ókeypis kenslu.
Þegar svo ber undir er slík-
um skólabörnum séð fyrir ó-
keypis kenslu alt til þess, er þau
geta fengið rétlindi til liáskóla-
náms. Börnum, sem verða að-
njótandi styrkveitinga og ann-
ars, sem veitt er í þessu skyni,
fer óðum fjölgandi. —- Alls eru
nú 900.000 börn í skólum, sem
eru reknir undir stjórn London
County Council eða styrktir af
því. í kveldskólum og skólum,
sern veita vélfræðilega mentun,
eru 200.000 nemendur. Til
fræðslumála ver London Coun-
ty Council árlega fjórtán mil-
jónum sterlingspunda. Kennar-
ar á vegum fræðslumálastjórn-
ar L. C. C. eru 30.000. Þessar
tölur sanna betur en langt mál
hversu mikil áhersla er lögð á
nientun barna og unglinga í
London. Börnin í London verða
nú líka betur undir lífið búin
en nokkru sinni fyr. Það er full
ástæða til ánægju yfir árangr-
inum af því, sem unnið hefir
verið til framfara á þessu sviði,
D’Annunzio,
sonur ítalska skáldsins, er áhnga-
mikill flugmaður. Hann er til
vinstri á myndinni. Með honum er
amerískur flugmaður. Þeir ætla að
fljúga frá Newark, New Jersey, til
Havana, viðkomulaust.
og langmestar eru framfarirn-
ar síðan heimsstyrjöldinni lauk.
Því er ekki að leyna, að raddir
heyrast um, að of miklu fé sé
varið til þessara mála, en eng-
ar almennar kröfur hafa kom-
ið fram í þá átt. Vegna heims-
kreppunnar hefir því miður
orðið að lækka laun skólakenn-