Rökkur - 01.06.1932, Side 34

Rökkur - 01.06.1932, Side 34
32 R 0 K K U R rara um 10%, en þess er vænst, að það verði að eins til bráða- birgða, með batnandi hag af auknum viðskiftum verði bægt að hækka laun þeirra upp i það, sem þau áður voru. Hins vegar verður sömu fræðslustarfsemi haldið áfram, þrátt fyrir krepp- una, og það eru engar likur til, að um nokkra afturför verði að ræða. Þjóðinni í lieild er slíkur fengur að fræðslustarfseminni í London, að telja má víst, að aldrei verði neitt gert til þess að lama hana. Líkurnar eru í raun og veru miklu meiri, að fræðslustarfsemin verði aukin að miklum mun, þegar við- skiftaástæður og hagur þjóðar- innar yfirleitt batnar. Canada. —o— Eins og eðlilegt er hefir ástandið i Canada verið slæmt, af völdum kreppunnar, eins og í flestum löndum heims öðrum, en þó liafa erfiðleikarnir að sögn verið tiltölulega miklu minni en í Bandaríkjunum. Leiðandi mönnum þar i landi virðist bera saman um, að í Canada séu verstu erfiðleikarnir að baki. Benda má á það, að bankastofnanir i Canada liafa staðist alla kreppustorma, en eins og kunnugt er hafa orðið fjölda mörg bankabrun af völdum kreppunnar í Banda- ríkjunum. Engrar liræðslu hefir orðið vart hjá almenningi um fjáreignir sínar i bönkum, enda liafa bankarnir verið færir um, að styðja atvinnuvegina veru- lega, þrátt fyrir kreppuna. At- vinnuleysi hefir verið talsvert í Canada, en tiltölulega langtum minna en i Bandaríkjunum. Sparifjárinnstæður cana- diskra borgara eru miklar og aðstaða iðnaðarframleiðenda góð. Ymsar atvinnugreinir eru i uppgangi, til dæmis gullgröftur. Landbúnaðurinn er sú atvinnu- grein, sem á erfiðast upp- dráttar í Canada, en canadiskir bændur eru að ýmsu leyti bet- ur undir samkepnina búnir, en bændur i öðrum löndum, þegar kreppan er liðin hjá. Ætla margir, að Canada muni verða fyr til að rétta að fullu við eftir kreppuna en nokkurt land annað. Eorstjóri Royal Bank of Canada sagði fyrir nokkuru síðan í ræðu: „Það hafa komið margar krepp- ur seinustu 50 árin og heims- kreppan seinasta er þeirra verst, en ekkert liefir gerst í Canada, sem hefir veikt trú mína á land- ið eða þjóðina. Hún getur liorft öruggum augum fram í tím- ann.“

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.