Rökkur - 01.06.1932, Page 70
68
RÖKIÍUR
verslunarsamning. Kváðu Spán-
verjar hafa hafnað boðinu,
Vegna þess, að rússneskir undir-
róðursmenn hafi hvatt spán-
verska kommúnista til bylting-
ar. gegn stjórninni.
Gullflutningur frá Indlandi
til Bretlands.
Afar mikið gull hefir verið
flutt frá Indlandi til Bretlands
að undanförnu. — Frá því i
september 1931—24. febr. s.l.
nam verðmæti gulls þess, sem
flutt var til London frá Indlandi
175 miljónum dollara. Mestur
þlutinn af þessum 175 miljón-
um, var fluttur inn eftir ára-
mót. — Gullflutningar þessir
munu hafa átt mikinn þátt i
þvi, að sterlingspund hækkaði
mikið um tíma.
Þreyta og bifreiðaslys.
Öryggisnefnd ríkisins Penn-
sylvanía í Bandarikjunum lief-
ir háft til langrar og ítarlegrar
atliugunar orsakir hifreiðaslysa.
Nefndin komst ekki að þeirri
niðurstöðu, að of hraður akstur
sé tíðasta orsök bifreiðaslysa,
en því hefir verið lialdið fram
af ýmsum samskonar nefndum,
sem starfandi eru í Bandaríkj-
unum. Nefndin komst að raun
um það, að bifreiðaslys eru tíð-
ust á þeim tímum, er menn aka
heim úr vinnu, og telur því að
tíðasta orsök bifreiðaslysa sé
þreyta. Forseti nefndarinnar,
Matthews að nafni segir, áð
aldrei sé nauðsynlegra að aka
hægt og gætilega en að kveld-
lagi, þegar menn haldi heimleið-
is að erfiði dagsins loknu. „Það
getur verið hvíld í því fyrir
suma, að aka heim að dagsverki
loknu, en fyrir allan fjöldann
er það einungis viðbótar-
áreynsla, andleg og líkamleg.“
Samvinna mjólkurframleiðanda
4 í Englandi.
Mjólkurframleiðendur i Eng-
landi og Wales áforma að
mynda með sér félagsskap, til
þess að koma betra skipulagi á
afurðasölu sína. Landbúnaðar-
frömuðir hafa rætt málið við
landbúnaðarráðherrann og er
búist við, að skipuð verði nefnd
sérfræðinga í búnaðarmálum og
viðskiftamálum, til að koma
betra skipulagi á sölu mjólkur-
afurða og til að bæta fram-
leiðsluna. Nefnd þessi verður
skipuð af landhúnaðarráðherr-
anum, samkvæmt heimild i lög-
um, sem nýlega voru samþvkt,
um sölu landbúnaðarafurða
(The Agricultural Marketing
Act). — Árleg mjólkurfram-
leiðsla í Englandi og Wales
nemur fimtíu og sex miljónum