Rökkur - 01.06.1932, Side 72

Rökkur - 01.06.1932, Side 72
70 R O K K U R JFÍyer gæti reki'ð það ofan i mig, sem eg hefði um skipskaðann að s?g.ia?“ Um leið og Dantés hugsaði á þessa leið, varð honum litið þangað, sem skipið hafði rekið upp og brotnað i spón fáum klukkustundum áður. Á einni kiettasnösinni hékk rauð sjómannshúfa og við hvössu kletta- nybburnar í flæðarmálinu flaut brot Úr kili skipsins. Dantés var eigi lengur í vafa um hvað hann skyldi til bragðs taka. Hann synti út að klettinum, þar scm rauða húfan hékk, setti hana á höfuð sér, en þvi næst tók hann brotið úr kilinum og lagði til sunds og stefndi í átt- ina fyrir skipið, sem var að koma frá Marseille. ,',Eg er hólpinn," hugsaði hann. Og sannfæringin um, að björgun væri í, nánd, frclsi og nýtt líf fyrir höndum, veitti honum nýtt þrek. Edmond kom fljótt auga á skipið, sem nú sigldi beitivind milli Ifkast- ala og Planier-turns. Andartak ótt- aðist hann, að skipið myndi aftur talca stefnu til hafs, en hann sá fljót- lega, hvað fyrir skipsmönnum vakti. Þeir ætluðu að sigla á milli Jaros- eyjar og Calaseraigne-eyjar, eins og skip þau gerðu tíðast, sem fóru frá Marseille til Ítalíu. Og smám sam- an nálgaðist Dantés skipið. Eitt sinn var það eigi nema fjórðung úr mílu frá honum, en tók aftur hliðarstefnu og fjarlægðist hann. Þegar skipið var næst honum, reyndi hann að veifa til skipsmanna, en enginn þeirra tók eftir honum. Dantés vissi, að þýðingarlaust var að æpa, þvi að vindurinn hefði borið hljóðið frá skipinu. Dantés hugsaði nú sitt ráð og synti hægt. Hann beið átekta, uns skipið breytti stefnu aftur. Og þeg- ar það á ný nálgaðist, tók hann stefnu alllangt fyrir framan skiþið og synti svo sem kraftarnir frekast leyfðu. En áður en hann næði að skipinu, breytti það aftur um stefnu. Hann veifaði nú húfu sinni sem á- kafast, og í þetta skiftið komu skips- menn auga á hann. Stefndu þeir nú skipinu til hans. Og um leið sá hann að þeir voru að búast til að setja út skipsbátinn. Nokkrum mínútum síðar reru tveir skipsmanna bátnum hratt til hans, en Dantés synti af öllum mætti móti bátnum. Kastaði hann nú frá sér kjalarbrotinu, en það hefði hann ekki átt að gera, því að því hafði honurri verið mikil stoð til að halda sér á floti. Jíisti hann nú mátt sem hraðast. Það var eins og aliir limir hans væri að stirðna upp og honum seig sorti á augu. Hann gat aðeins rekið upp veikt neyðaróp, er hann var í þann veginn að sökkva. „Gefstu ekki upp,“ kallaði annar þeirra, sem í bátnum var, og hertu þeir nú róðurinn. En kraftar hins druknandi manns voru þrotnir, og Dantési fanst, að hann væri að sökkva með blýkúluna þungu bundna við fótlegg sinn. En er hann var i þann veginn að missa meðvitundina, fann hann, að gripið var sterklega í hið mikla hár hans. En hann hyorki heyrði neitt né sá. Hann hafði mist meðvitundina. Þegar hann raknaði úr roti, lá hann á þilfari skipsins. Hann svip- aðist um i kringum sig, til þess að athuga i hvaða átt siglt væri. Hann sá, að þeir fjarlægðust If-kast- ala og hann ándvarpaði af ánægju, en svo miklum sársauka var and- varpið blandið, að skipsmenn héldu, að líkamleg kvöl væri orsök þess. Einn skipsmannanna nuddaði fót- leggi hans án afláts með grófgerð-

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.