Rökkur - 01.06.1932, Side 76

Rökkur - 01.06.1932, Side 76
74 R Ö K K U R Henri Dunant. Þetta minnismerki hefir verið reist í Ziiricli í Sviss, yi'ir Henri Dnnant, stofnanda Rauða krossins. „Hvaða ár?“ „Hvaða ár? Þú spyrð hvaða ár?“ „Já, eg spyr'um það.“ „Hefirðu þá gleymt því hvaða ár er?“ „Já. Eg varð svo skelkaður í nótt,“ sagði Dantés brosandi, „að eg hefi gleymt degi og ári. Ilvaða ár er?“ „1829“, svaraði Jacobo undrandi. — Það voru fjórtán ár liðin síðan Dantés hafði verið handtekinn. Hann var nítján ára, þegar hann var settur í hald i Ifkastala. Hann var þrjátíu og þriggja ára nú. Beiskjubros kom fram á varir hans og hann spurði sjálfan sig ótal spurninga. Hvað hafði orðið af Mercédési, sem vafalaust hugði liann látinn? Á næsta augnabliki skein heift og hatur úr augum hans. Hann hugs- aði um mennina þrjá, sem höfðu svikið hann og komið því til leið- ar, að hann var á annan tug áfa í fangelsi. Hann heitstrengdi enn á ný að hefna sín á Danglarsi, Fern- andi og Villefort. Og þessi heit- strenging var ekki lengur orð ein, því að nú var svo komið, að hrað- skreiðasta skipið í Marseille hefði ekki getað komist fram úr smygl- skútunni, sem flaug áfram undan hagstæðum vindi i áttina til Leg- horn i Ítalíu. XXII. kapítuli. Smyglarnir. Dantés kyntist skipsmönnum fljót- lega. Þótt skipstjórinn hefði eigi notið kenslu neins manns jafnfróðs og Faria ábóta, var hann slarkfær i öllum þeim málum og mállýskum, sem þjóðir þær og þjóðflokkar tala, sem eiga lönd að vatninu mikla, sem kallað er Miðjarðarhaf. Skip hans var smyglskip, eins og lesand- ann hefir ef til vill þegar rent grun í, og hét það „La Jeune Amélie“. Eins og geta má nærri, kon? það sér vel fyrir mann, sem hafði smygl að atvinnu, að vera vel fær i málum. Skipstjórinn hafði mikla reynslu i sinni atvinnugrein, og þess vegna hafði hann yfirleitt illan grun á mönnum, sem voru vel færir i tungumálum, þvi altaf gat verið, að þeir væri starfsmenn tollliðsins i einhverju Miðjarðarhafslandinu, þótt þeir þættust vera sjómenn. Og

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.