Rökkur - 01.06.1932, Side 79

Rökkur - 01.06.1932, Side 79
R 0 Ií K U R 77 stjórinn ætlaði ekki að þekkja hann aftur, sem vænta mátti, þvi að þessi hraustlegi sjómaSur, sem nú stóS fyrir framan hann, var sannarlega i engu likur „villimanni" þeim, sem þeir höfðu bjargað. Reyndi hann nú enn sem mest hann mátti til að fá Iiantés til að ráða sig á skipið, og lét Dantés loks til leiðast að vera áfram á skipinu, en að eins stuttan tíma, í lengsta lagi þrjá mánuði. Skipshöfnin á „La Jeune Amélie“ varð stöðugt að halda á spöðunum, því að skipstjórinn var harður á því, að menn léti hendur standa fram úr ermum, enda var sannleik- urinn sá, að oft var svo ástatt, að hentast var að hafa hraðan á. Eftir tæpan vikutíma í Leghorn, var búið að ferma „La Jeune Amélie“ meS múselínsdúkum og tollskyldum baðmullardúkum, ensku púðri og tóbaki, sem var í umbúðum, sem báru þess engin merki, að tollur liefði verið greiddur af þvi. Skip- stjórinn þurfti að koma þessu öllu frá Leghorn, án þess að greiða af því toll, og koma því á land á ströndum Korsíku, en þar tóku mangarar við því, og komu því á- leiðis til Frakklands. Og svo var siglt af stað. Og aftur sigldi Edmond um hið bláa og fagra Miðjarðarhaf, eins og hann svo títt hafði gert, þegar hann var unglingur — þegar hann hafði dreymt sína fögru fram- tíðardrauma, — um Miðjarðarhafið, sem honum hafði þótt svo fagurt í íeskunni, enn fegurra í prísundinni, og fegurst nú, er frelsið var aftur fengið. Af stað var siglt og Gorgone var á hægri hönd, en La Pianosa á vinstri, — og var nii stefnt til lands Paoli og Napoleons. Og árla næsta morgun, þegar skipstjóidnn kom á þilfar, rakst hann á Dantés, senx hallaði sér fram á borðstoklc- inn og starði á granitkletta nokkra framundan, sveipaða roða nýrisinn- ar sólar. Það var eyjan M o n t e C h r i s t o. En þeir sigldu fram hjá henni og í áttina til Korsíku. En svo nálægt eynni var farið, að ef Dantés hefði hent sér ixtbyrðis og gripið til sunds, þá hefði hann verið kominn á land á þessari æfintýraeyju innan hálfrar stundar. En eigi tjáði urn slíkt að hugsa nú. Hann var vopnlaus og áhaldalaus, til þess að grafa eftir fjársjóðunum. Og hvað mundi skip- stjóri hugsa — og menn hans? Hann varð að bíða. En einmitt í þolinmæði hafði hann þroskast i kastalanum. Hann kunni að bíða. Hann hafði beðið fjórtán ár eftir frelsi sínu. Nú var hann frjáls. Hann gat beðið misseri, ár eða lengur, ef því væri að skifta. Var þetta líka alt saman ekki heilaspuni Faria ábóta? Við og við skaut þeirri efahugsun upp í huga hans. En Dantés hafði lært utan að bréf Spada kardínála. Og hann hafði það upp í huganum aftur og aftur, þegar efinn vaknaði. Eitthvað gæti þó verið í þessu. Myrkrið seig á og eyjan hvarf sjónum skipsmánna, allra nema Dantésar, hann sá hana lengur en hinir, með fangelsisaugunum myrk- urvönu, og hann hélt kyrru fyrir á þiljum uppi löngu eftir að hinir voru farnir undir þiljur, aðrir en þeir, sem skyldustörfum höfðu að gegna á þilfari. Þegar dagur rann voru þeir við Aleria-ströndina. Allan daginn voru þeir á sveimi fram með ströndinni og biðu átekta. Þegar fór að skyggja sáu þeir, að bál voru kveikt á ströndinni til merkis um, að öllu væi’i éxhætt. Skipsljósker logandi

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.