Rökkur - 01.06.1932, Blaðsíða 82
80
R O K Ií U R
leyna geðshræringu sinni. Fór hann
að virða betur fyrir sér menn þá,
sem sátu þarna og reyktu í ákafa
og skeggræddu og töluðu fjölda
tungumála, en svo frakknesku
blandin, að aít skildist, sem mælt
væri á eina tungu.
Þegar Dantés settist aftur, þar
sem hann hafði áður setið, var bú-
ið að ákveða, að umhleðslan skyldi
fram fara við Monte Christo, og að
hafist skyldi handa þegar að ltveldi
næsta dags. Álits Dantésar var leit-
að. Kvað hann eyjuna hinn ákjós-
anlegasta stað. Og því bætti hann
við, að þegar i stórvirki væri ráð-
ist, væri hentast að hafa hraðan á
og hika eigi. Var þvi í engu breytt
fyrirætlununum og fastmælum
bundið, að leggja af stað til Monte
Christo árla næsta morguns. Yrði
byr hagstæður mundi verða ltomið
til eyjarinnar um kveldið og gæti
þá umhleðslan byrjað án tafar.
Rlt send Rökkri.
-—x—
Almanak fyrir árið
1932 (8. árg.).
Ólafur S. Tliorgeirsson i
Winnipeg, Manitoba, stofnaði
til árlegrar almanaksútgáfu fyr-
ir íslendinga í Vesturheimi
nokkuru fyrir aldamótin. Hefir
jtessi útgáfustarfsemi lians að
makleikum orðið vinsæl vestan
hafs og eru nú komnir 38 ár-
gangar af „almanaki Ólafs Þor-
geirssonar“, en svo er það tíð-
ast nefnt vestra. Ólafur hefir
altaf vandað vel til þessarar út-
gáfu og hefir margt góðra rit-
gerða birst í ritinu, m. a. fjöldi
greina um landnám íslendinga í
Vesturheimi, en í þeint grein-
um er mikill fróðleikur. Efni
almanaksins er að þessu sinni
Ramsay MacDonald, eftir Ric-
liard Beck liáskólakennara,
Landnemar Geysis-bygðar í
Nýja íslandi, eftir Magnús Sig-
urðss. á Storð, Engimýrarhjón,
eftir síra Jóhann Bjarnason, fs-
lenskar sagnir, eftir Halldór J.
Egilsson, Manntal fslendinga i
Winnipeg í marsmánuði 1884,
en þeir voru þá 959, Helslu við-
burðir og mannalát meðal ís-
lendinga í Vesturlieimi 1931 o.
m. fl. Samkvæmt þeirri skýrslu
útskrifuðust 4 íslendingar frá
háskóla Saskatchewanfylkis ár-
ið 1931, en 8 frá háskóla Mani-
tobafylkis (7 karlar og 1 kona)
og 1 íslendingur tók fullnaðar-
próf við tannlækningadeild liá-
skólans í Toronto, Ontario. —
Samkvæmt skýrslunni voru
mannalát meðal íslendinga vest-
an hafs árið sem leið 120, en
sennilega er sú tala of lág. —
Þannig er á viðbótarskrá fvrir
1930 í þcssum árg. almanaksins
getið um 26 mannalát. Ritið er
132 bls. í svipuðu broti og fð-
unn.
F élagsprentsmiðj an.