Fréttablaðið - 28.01.2023, Page 44
Ég man eftir henni
strax þegar hún var lítil
sem afar glaðlyndri.
Eyþór Gunnarsson
NÆRMYND
Sólveig Anna Jónsdóttir er
einhver umtalaðasta, ef ekki
umdeildasta, kona landsins en
á nærmyndinni sem nánasta
fjölskylda hennar og vinir
bregða upp af henni er hún
sérlega skemmtileg, hrifnæm
og réttsýn. Hún var mikill
bókaormur í æsku og tengdi
svo sterkt við prakkarann í
Kattholti að hún vildi á tíma-
bili bara láta kalla sig Emil.
Sólveig Anna Jónsdóttir
stendur, sem formaður
Ef lingar, í ströngu þessa
dagana og gefur ekki þuml-
ung eftir í baráttunni fyrir
bættum kjörum síns fólks og þykir
víða fyrir vikið vera full föst fyrir og
ósveigjanleg.
Þvert á allar slíkar hugmyndir um
hana ber vinum hennar og vanda-
mönnum saman um að hún sé fyrst
og fremst glaðlynd, hrifnæm, bros-
hýr og sérlega skemmtileg. Þau segja
þannig þá mynd sem dregin hafi
verið upp af Sólveigu Önnu vera kol-
ranga og víðs fjarri raunverulegum
persónuleika hennar.
Sólveig Anna fæddist í Reykjavík
þann 29. maí árið 1975. Foreldrar
hennar eru Ragnheiður Ásta Péturs-
dóttir og Jón Múli Árnason. Hún er
gift Magnúsi Sveini Helgasyni og
saman eiga þau tvö börn. Magnús
segir Sollu, eins og hún er alltaf
kölluð, ótrúlega skemmtilega og að
hann hafi aldrei kynnst manneskju
sem sé jafn lítið fyrir sviðsljósið.
„ Sol la er a lveg sva k a lega
skemmtileg og þau eru það í raun
öll fjölskyldan og hafa alltaf verið,“
segir Magnús.
„Hún er svo ótrúlega réttsýn og
til í að taka slaginn fyrir alla,“ segir
hann. „Hún hefur samt aldrei verið
fyrir það að trana sér fram eða viljað
vera í forgrunni,“ bætir Magnús við.
Hrifnæm og glaðlynd
Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður
er eldri bróðir Sólveigar Önnu.
Hann segir hana hafa verið afar hrif-
næmt og glaðlynt barn og þannig
segist hann sjá hana enn þann dag
í dag.
„Hún er fjórtán árum yngri en ég
og ég man eftir henni strax þegar
hún var lítil sem afar glaðlyndri,“
segir Eyþór.
„Þegar við Ellen vorum farin að
búa áttum við kött sem eignaðist
kettlinga og ég man alltaf þegar hún
kom og hún var bara svona fjögurra
ára, hún ljómaði og gargaði upp yfir
sig af gleði og þannig man ég eftir
henni, hún var sólskinsbarn, alltaf
glöð og brosandi,“ segir hann.
„Það var alltaf bjart yfir henni
og þannig hefur hún alltaf verið í
mínum huga og er enn, þessi mynd
sem hefur verið dregin upp af henni
sem einhverri harðneskjumann-
eskju er í svo miklu ósamræmi við
það sem allir sem þekkja hana vita,
hún er hlý og góð og vill allt fyrir
alla gera, þannig er hennar karakt-
er,“ segir Eyþór.
Hann rifjar upp hversu hrifin
systir hans var af sögum og bókum
þegar hún var lítil. „Hún elskaði að
hlusta á sögur og þegar hún lærði
sjálf að lesa las hún mikið sjálf og
fékk svona dellur,“ segir Eyþór.
„Á tímabili fékk hún algjöra dellu
fyrir Emil í Kattholti og hún breytt-
ist bara í Emil. Hún gekk um með
húfu eins og hann og ef maður sagði
Sólveig
Anna í
Kattholti
Hér eru Sólveig
og Birna á sól-
ríkum degi að
hlusta á djass
á Jómfrúnni.
MYND/AðseND
Sólveig Anna í fanginu á systur sinni Birnu Gunnarsdóttur.
við hana Solla, þá sagði hún: Ég heiti
ekki Solla, ég heiti Emil.“
Gucci og karókí
Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur
og vinkona Sólveigar Önnu, lýsir
vinkonu sinni sem afar skemmti-
legri og réttsýnni. Hún segir það
geta komið mörgum á óvart að hún
sé í saumaklúbbi sem heiti Gucci.
„Hann saumar þó hvorki né
gengur í Gucci-merkjavöru enda er
nafnið borið fram „Cookie“. Þetta er
hópur fimmtán kvenna sem hefur
fylgst að síðan á unglingsárunum og
brallað ýmsar vitleysur sem fæstar
þola dagsljósið,“ segir Sigrún.
„Það má segja að Solla hafi alið
okkur allar upp í ákveðinni rétt-
lætishugsun, hún var alltaf að pæla
og taka afstöðu í alls konar mann-
réttindamálum, pólitík og prins-
ippum sem gátu varla verið fjær
okkar unglingaheila. Solla ákvað
til dæmis að fermast ekki og fannst
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
22 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 28. jAnúAR 2023
lAUgARDAgUR