Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
FRÉTTASKÝRING
Matvælaöryggi:
Ein umfangsmesta svikastarfsemi heims
Talið er að matvælasvik (e.Food
fraud) skili meiri hagnaði en öll
samanlögð fíkniefnaframleiðsla
í heiminum.
Matvælasvik er það þegar
seljandi matvæla vísvitandi villir
um eða segir ósatt um innihald
matvæla í efnahagslegum
ávinningi. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins skilgreinir
matvælasvik sem þann ásetning
fyrirtækja eða einstaklinga til að
svindla og svíkja í þeim tilgangi að
blekkja neytendur sér til fjárhagslegs
ávinnings.
Undirskilgreiningar eru nokkrar
og sýna að matvælasvik geta
birst í fjölbreyttum myndum.
Vörusvik í formi þynningar er
aðferð við að blanda hráefni af
lægri innihaldsgæðum við það sem
neytandinn telur að hann sé að fá.
Upp hafa komið mýmörg svik um
útþynningu á svörtum pipar, til
dæmis þegar í kvörnum finnast
fræ af ávextinum papaya innan um
piparinn til uppfyllingar.
Þá er hægt að skipta út næringar-
efnum, innihaldsefnum eða hluta
matvæla fyrir annað. Nærtækt dæmi
um þetta er þegar komst upp um
að kjöt af gömlum rúmenskum
vinnuhrossum var selt sem nautakjöt
í talsverðum mæli í Evrópu
árið 2013.
Einnig er hægt að reyna að fela
léleg gæði innihaldsefna eða vara.
Þannig hefur því verið slegið fram
að 75% af þeim túnfiski sem notaður
er í sushi sé ekki ekta túnfiskur
heldur einhver ódýrari tegund sem
jafnvel er meðhöndlaður með efnum
þannig að hann líti út fyrir að vera
rauður og fallegur.
Ein birtingarmynd matvælasvika
er að bæta óþekktum eða ótil-
greindum efnasamböndum við vöru
til að auka gæðaeiginleika þeirra.
Afar skaðlegt dæmi um það kom upp
í Kína árið 2007 þegar melamíni,
efni sem notað er í plastiðnað, var
bætt í mjólkurduft ætlað ungbörnum
til að skekkja mælingar á próteinum.
Leiddi það til þess að rúmlega
6.000 börn urðu nýrnaveik og fjögur
börn létust.
Fölsun er einnig skilgreind sem
matvælasvik og þá þegar beinlínis
er brotið á hugverkaréttindum.
Sú vara sem verður hvað oftast
viðfangsefni matvælasvikara er
ólífuolía, en of mörg dæmi eru
um að sú sem skilgreind er sem
hágæðavaran jómfrúarolía sé það
bara alls ekki.
Misvísandi og rangar merkingar
eru einnig skilgreindar sem
matvælasvik ásamt bókstaflegum
þjófnaði og viðskiptum með
mat á gráum markaði. Umfang
matvælasvika er því gríðarlegt.
Íslensk dæmi:
Fiskur og fæðubótarefni
Matvælasvik er meðal verkefna
Herdísar M. Guðjónsdóttur,
fagsviðsstjóra hjá Matvælastofnun.
Eftirlitið hér er samtengt regluverki
innan Evrópu.
„Vandamálið er stórt og
vaxandi, þarna úti er hópur sem er
að græða með því að stofna m.a.
matvælaöryggi í hættu. Þetta er
meðvitað svindl, það er verið að
brjóta reglur og græða á því að
svindla á neytendum,“ segir hún.
Umfang matvælasvindls sé slíkt
að hægt sé að skilgreina sum dæmi
sem skipulagða glæpastarfsemi.
Matvælastofnun er tengiliður við
Evrópska eftirlitskerfið, European
Food Fraud Network.
„Við erum tengd við
hraðviðvörunarkerfi og fáum
þaðan tilkynningar um svindl sem
koma upp. Ef hægt er að rekja
vörurnar hingað til lands tekur
Matvælastofnun til sinna ráða.“
Hér á landi er strangt eftirlit
með fiski, enda okkar helsta
útflutningsvara. Herdís segir að
íslenskir framleiðendur hafi orðið
uppvísir af matvælasvindli.
„Okkar eftirlitsmenn rýna í gögn
og fara niður á höfn og skoða gáma
þegar varan er á leiðinni út. Þannig
uppgötvast svindl þegar það kemur
fyrir. Ef einbeittur brotavilji er fyrir
hendi er alveg hægt að komast í
gegnum svona kerfi, sumir reyna t.d.
að setja flottasta fiskinn efst í karið
en ódýrari fisk neðst og þess háttar.
Stundum er verið að reyna að selja
ufsa sem þorsk. Svo er kannski verið
að setja meira vatn á rækjurnar og
þær frjósa þannig að menn eru að
selja vatn en ekki rækjur. Slík dæmi
hafa komið upp hér, eins og annars
staðar í heiminum,“ segir Herdís.
Þá nefnir hún netverslanir sem
vaxandi vettvang þar sem óprúttnir
aðilar hafa náð til íslenskra
neytenda. „Þó netsala hafi verið í
gangi lengi þá jókst hún sérstaklega
kringum heimsfaraldurinn sem
leiddi til aukinna tilfella um
svindl. Það getur reynst erfitt að
rekja vefsíður, finna framleiðanda,
dreifingaraðila og ná í þann sem
er ábyrgur. Þarna hafa komið
upp dæmi um fæðubótarefni sem
innihalda ólögleg virk efni.“
Gæludýraflutningar
og varnarefni
Í ársskýrslu nefndar framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins um
matarsvik fyrir árið 2021 kemur
fram að metfjöldi tilkynninga hafi
borist eftirlitskerfi þess. Þau hlaupa
á þúsundum. Mál tengd ólöglegum
varnarefnum eru algengustu
umfjöllunarefni nefndarinnar en
mál tengd flutningum á gæludýrum
og netsölu matvæla jukust verulega
árið 2021.
Lifandi gæludýr er nokkuð nýtt
viðfangsefni evrópska kerfisins að
sögn Herdísar.
„Þá er verið að flytja hunda og
ketti inn til Evrópu á fölsuðum
vottorðum um heilbrigði. Þetta
getur reynst mjög afdrifaríkt fyrir
dýraheilbrigði ef verið er að flytja
inn dýr með sjúkdóma og sníkjudýr
sem ekki eru þekkt í Evrópu.“
Nær helmingur oreganos
útþynntur
Í ársskýrslunni eru birtar niðurstöður
samræmdrar eftirlitsáætlunar á
kryddi og kryddjurtum. Benda
þær til þess að oregano sé afar
viðkvæmt fyrir matvælasvindli.
Hlutfall rannsóknarsýna sem
innihéldu einhvers konar staðgengla
(ólífulauf eru þar algengust) var
48%. Tæp 2.000 sýni voru tekin
víðs vegar um Evrópu og reyndust
17% pipars útþynnt, 14% kúmens,
11% túrmeriks, 11% saffrans og 6%
papriku/chilli kryddi.
Tugi fregna mánaðarlega
Þrátt fyrir umfang matvælasvika í
heiminum og allra reglugerða um
matvælaöryggi virðast glæpirnir
þrífast sem aldrei fyrr.
Það sést ekki síst á mánaðarlegu
fréttabréfi framkvæmdastjórnar
Evrópusambands ins um
matarsvindl víða um heim.
Hvert fréttabréf inniheldur
tengla á umfjallanir um tugi nýrra
mála. Í ágústritinu er m.a. fjallað
um dauða tólf manna á Indlandi
sem drukku vín sem þynnt var út
með banvænu efni. Þá létust 17
manns í Úganda eftir að hafa neytt
gins sem útþynnt var með metanóli.
Ítölsk yfirvöld lögðu hald á 2,9
tonn af ómerktum mat. Á Indlandi
greindu vísindamenn ólöglegt
litarefni, Rhodamine B, í ýmsum
sósum. Í Brasilíu lokuðu yfirvöld
fjórum verksmiðjum fyrir að blanda
ávaxtasafa með ólöglegum efnum.
Í eftirliti í Bandaríkjunum kom
í ljós að í þvagi 699 nautgripa sem
áttu að vera uppaldir „án sýklalyfja“
fundust 17 sýklalyf. Matvæla-
og lyfjastofnun Argentínu varar
neytendur við fölsun á þekktu
vörumerki á ólífuolíu og hefur
lagt sölubann á framleiðsluna. Í
Taívan sáu yfirvöld sig knúin til
að eyða 9,6 tonnum af telaufum
sem flutt voru inn frá Víetnam en
upprunamerkt sem taívönsk vara.
Misvísandi merkingar á ólífuolíu í
Frakklandi er til umfjöllunar ásamt
ólöglegum innflutningi á rækjum
til Singapúr.
Athugið að öll þessi dæmi eru
úr einu og sama fréttabréfinu og er
listinn alls ekki tæmandi.
Tortryggni og viðurlög
Þó ekki hafi komið upp þekkt
dæmi um að neytandi hérlendis
hafi veikst alvarlega, eða látist,
vegna matvælasvindls, er rétt að
hafa varann á.
Herdís segir að til að sporna
gegn matvælasvindli sé neytendum
ráðlagt að iðka ákveðna tortryggni
og vera gagnrýnin á matvæli sem
þeir kaupa. Hægt er að blekkja með
bjöguðum upprunamerkingum.
Íslenska fánaröndin hefur t.d.
ratað á erlent salat sem eingöngu
hafði verið skolað með íslensku
vatni. Ef saffran fæst voðalega
ódýrt úti í búð þá er það líklegast
falsað, enda dýrasta krydd heims.
„Eftirlitskerfið hér þyrfti að vera
stærra og viðameira, allir eru þó
að gera sitt besta,“ segir Herdís
en í vikunni kemur út ný skýrsla
með sameiginlegu áhættumati
á Norðurlöndum sem hún tók
þátt í að móta. Þar er farið yfir
alla flokka matvælasvindls og
umfang eftirlitsins.
Viðurlög við matvælasvindli
eru æði misjöfn milli landa.
Á meðan sum lönd hafa verið
dugleg að beita sektum og sækja
fólk til saka fyrir matvælasvik
geta afleiðingarnar verið litlar
sem engar í öðrum ríkjum. Talið
er að það sé einmitt ein af ástæðum
þess að matvælasvindl sé jafn
umfangsmikið og raun ber vitni –
það sé einfaldlega áhættuminna að
svindla með matvæli en að vera í
eiturlyfjabransanum.
Matvælasvik tekur á sig fjölbreyttar myndir. Upp hafa komið mýmörg svik
um útþynningu á svörtum pipar, til dæmis þegar í kvörnum finnast fræ af
ávextinum papaya innan um piparinn til uppfyllingar. Mynd / Calum Lewis
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Herdís M. Guðjónsdóttir, fagsviðs
stjóri hjá Matvælastofnun.
Mynd / Ívar Sæland
Matvælasvindl hefur fylgt manninum frá upphafi,
enda svikin sögð jafngömul versluninni sjálfri.
Í afar áhugaverðum hlaðvarpsþætti Símons
Majumdar af „Eat My Globe“ fjallar hann um
sögu matvælasvika.
Hann rennir stoðum undir það að vernd
almennings gegn matvælasvikum hafi verið
ein af elstu formum stjórnvaldsreglugerða.
Upphafleg viðmið formfestu viðskiptanna var
að sameinast um staðlaðar mælieiningar.
Hann kynnir nokkrar klausur úr fornbókmenntum
til sögunnar máli sínu til stuðnings. Finna má
vísbendingar um slíkt regluverk og viðurlög
við brotum á þeim strax í Biblíunni, en í fimmtu
Mósebók segir:
Þú skalt ekki hafa tvenns konar vogarsteina í poka
þínum, léttan og þungan. Þú skalt ekki hafa tvenns
konar efu í húsi þínu, langa og stutta. Þú skalt hafa
nákvæma og rétta vogarsteina og þú skalt hafa
nákvæma og rétta efu svo að þú lifir lengi í landinu
sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér. Því að hver sem
þetta gerir, sérhver svikari, er Drottni, Guði þínum,
viðurstyggð.
Í ritum Kínverja má finna vísbendingar þess
að verslunarmenn hafi haft umboðsmenn sem
höfðu það hlutverk að stöðva framleiðslu á
fölsuðum vörum. Á tímum Tangkeisaraveldisins
mátti finna lagaklausu með leiðbeiningum um
refsingar sem beita mátti þá sem uppvísir urðu
að matvælasvindli:
Þegar þurrkað eða ferskt kjöt veldur því að menn
verða veikir, skal brenna alla afgangana eins fljótt
og auðið er. Hinn brotlegi skal hýddur 90 höggum.
Sá sem af ásettu ráði gefur eða selur öðrum kjötið
skal vísað úr landi í eitt ár. Ef sá deyr, sem neytt
hefur kjötsins, skal hinn brotlegi hengdur.
Fleiri áhugaverð dæmi um regluverk kringum
matvælasvindl er að finna í bókmenntasögunni
og rétt að mæla með hlustun þáttar Símons
Majumdar sem nefnist „There is Death in the
Pot“: The History of Food Fraud.
Matarsvindl í bókmenntasögunni