Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022 HANNYRÐAHORNIÐ Í larí lei best! FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Camilla Von er hress og kát stúlka sem hafði afar gaman af því að svara spurningunum. Nafn: Camilla Von Gunnarsdóttir Berg. Aldur: 5 ára en verð 6 ára þegar Jesú á afmæli. Stjörnumerki: Steingeit. Búseta: Á sko heima hjá mömmu og pabba á Húsavík. Systkini: Brynjar Freyr Gunnarsson Berg, 2ja ára. Skóli: Borgarhólsskóli á Húsavík. Skemmtilegast í skólanum: Frímínútur. Uppáhaldsdýr: Kisinn minn, Húgó, og hundurinn minn, Monsa og Ljón. Uppáhaldsmatur: Pasta sem mamma gerir. Uppáhaldslag: Í larí lei. Uppáhaldsbíómynd: Madagaskar. Fyrsta minning: Þegar ég var eins árs á Tenerife og ég vildi fara í bað sem var sundlaug. Hver eru áhugamálin þín: Fótbolti og að borða nammi. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Listakona og mála mikið. Hvað er það mest spennandi sem þú hefur gert: Fara í fallturninn í Húsdýragarðinum. Camilla skorar á Freyju Rún Ásgeirs- dóttur, frænku sína, að svara næst. Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Fallegt og einfalt eyrnaband fyrir börn prjónað með fölskum kaðli úr DROPS Merino Extra Fine. DROPS Design: Mynstur me-082-bn Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára Höfuðmál: ca 48/50 (50/52) 52/54 (54/56) cm Garn: DROPS MERINO EXTRA FINE (fæst í Handverkskúnst) litur á mynd, ametist nr 36: 50 (50) 100 (100) g Prjónar: Sokkaprjónar nr 4 og kaðlaprjónn Prjónfesta: 21 lykkja x 28 umferðir = 10 x 10 cm. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 30 (30) 36 (36) lykkjur á prjón nr 4 með DROPS Extra Fine. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Haldið áfram með mynstur A.1. Prjónið þar til stykkið mælist 22½ (23½) 24 (24½) cm (= helmingur af heildar lengd, mátaðu e.t.v. eyrnabandið og prjónaðu að óskaðri lengd). Nú er gerður kaðall fyrir miðju að framan á eyrnabandi þannig: Setjið fyrstu 15 (15) 18 (18) lykkjur á kaðlaprjón, prjónið þær 15-15-18-18 lykkjur sem eftir eru á prjóni. Prjónið síðan 15 (15) 18 (18) lykkjur af kaðlaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstur A.1 eins og áður þar til stykkið mælist ca 45 (47) 48 (49) cm – stykkið á að vera jafn langt hvoru megin við kaðal. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Saumið eyrnabandið mitt að aftan, saumið innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Festið þráðinn. Prjónakveðja, Mæðgurnar í Handverkskúnst - www.garn.is Eyrnaband með fölskum köðlum Yfir 1.000 fasteignir til sölu á Costa Blanca svæðinu. Fasteignir til sölu á Spáni sumareignir.is - sumareignir@gmail.com - s: 6168880 Sumareignir MYNSTUR Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu x Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftulykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar Þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.