Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Ný gerð Microlift Hybrid
með lithium rafhlöðu
Í viðbót við alla kosti eldri
Microlift, er nýja módelið
með breytingar sem gera
Microlift enn betri
Fyrir frekari upplýsingar
um Microlift: Sendu tölvupóst
á siggi@pmt.is eða hringdu
í 698 1539
MICROLIFT HYBRID BRETTATJAKKAR
Eigum til á lager Microlift Hybrid tjakka með 1500kg og 2000kg lyftigetu
Tjakkarnir
eru til sýnis hjá PMT
Krókhálsi 1
Eldri pantanir óskast staðfestar
Nýtt stjórnborð!
Krókhálsi 1
E T N A
Öll hjólin eru með beinni innspýtingu, rafmagnstýri, spili, dráttarkrók, handahlífum, háu og lágu
drifi með læsingu. Vökvabremsum, álfelgum og eru tveggja manna traktorsskráð. Verð er með Vsk.
CFMOTO 1000
2.690.000,-
CFMOTO fjórhjólin fást hjá okkur
CFMOTO 520
1.549.000,-
Við verðum á Landbúnaðarsýningunni 2022 í Laugardalshöll.
CFMOTO 450
1.459.000,-
Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848
Nánari upplýsingar á nitro.is
Ökumenn sem keyra um
Strandir og fara fram hjá bænum
Broddanesi við Kollafjörð,
stoppa gjarnan og mynda þakið
á fjárhúsinu.
Ástæðan er sú að fjárhúsþakið
hefur verið málað í regnbogalitum
og vekur þannig verðskuldaða
athygli. „Þetta vakti strax mikla
athygli en mismikla hrifningu.
Ég held að nágrönnunum hafi
fundist þetta skrítið uppátæki en
vona að allir séu sáttir við þetta
í dag. Ferðamenn eru hins vegar
mjög hrifnir og stoppa og taka
myndir,“ segir Ingunn Einarsdóttir,
sem ólst upp á bænum og þekkir
vel til þaksins.
„Þegar nýtt þak var sett á
fjárhúsin sumarið 2020 vildi bróðir
minn, Eysteinn Einarsson, endilega
mála það. Hugmyndin að litnum
kom frá dóttur hans, Ástríði Emblu,
sem þá var tíu ára. Eysteinn, börn og
tengdabarn máluðu það svo sumarið
2021,“ bætir Ingunn við, alsæl með
þakið eins og öll fjölskyldan.
/MHH
Regnbogaþakið á fjárhúsinu á Broddanesi vekur mikla athygli. Mynd / MHH
Fjárhúsþak í regnbogalitum
Sverrir Geirmundsson og Áskell
Þórisson sýna olíumálverk og
ljósmyndir á efri hæðinni í Gallery
Grásteini, Skólavörðustíg 4, dagana
30. september til 11. október.
Sýningin var opnuð 30. september
og verður opin alla daga vikunnar frá
kl. 10–18 fram til 11. október.
Að sögn Áskels ákváðu þeir
félagar að slá saman í sýningu þar
sem í verkum sínum eru báðir að horfa
til þess smáa í náttúrunni sem fæstir
veita athygli – annar málar olíumyndir
en hinn tekur ljósmyndir.
Slóðir Áskels og Sverris lágu
saman fyrir margt löngu. Þá var
Sverrir sölumaður hjá Vélaborg
og Lely Center en Áskell ritstjóri
Bændablaðsins. Báðir hafa sýnt verk
sín víða um land en fannst nú hið besta
mál að gamlir þjónar landbúnaðarins
tækju höndum saman, því segja má að
ákveðnir þræðir tengi saman verkin
þeirra. Þeir félagar hafa úr mikilli
lífsreynslu að moða sem nýtist þeim
vel í sköpuninni, Sverrir er sjötugur
en Áskell ári yngri.
Um árabil átti Sverrir Óðinshús
á Eyrarbakka og rak þar eftirsóttan
sýningarsal og vinnustofu.
„Myndlistin er mitt áhugamál og
myndirnar eru fantasíur og abstrakt
landslag,“ segir Sverrir.
„Ég hef notið þess að safna
hugmyndum á ferðum mínum um
landið sem ég greypi í kollinn minn
og færi þær svo yfir á strigann.“
Áskell hefur um árabil einbeitt
sér að náttúrulífsmyndum og tekur
gjarnan nærmyndir af því sem
sjaldan er skoðað. Síðan vinnur hann
myndirnar í myndvinnsluforritum og
nær fram forvitnilegum litbrigðum.
Myndirnar á sýningunni, sem ber
yfirskriftina Hið smáa og lífræna, eru
í ýmsum stærðum og eru allar til sölu
á hóflegu verði.
Gamlir landbúnaðarþjónar
sýna í Gallery Grásteini
Sýning Áskels Þórissonar og Sverris
Geirmundssonar ber yfirskriftina Hið
smáa og lífræna.