Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
Á fundi menningarnefndar Snæfells-
bæjar í lok maí, kynntu forsvarsmenn
nýstofnaðs leikfélags, Leikfélagsins
Laugu hugmyndir sínar. Fagnaði
menningarnefnd erindinu og var
ákveðið að styrkja skyldi leikfélagið
um hundrað þúsund krónur.
Sú ákvörðun að setja leikfélagið á fót
kom til er formaðurinn, Guðmundur
Jensson, ásamt nokkrum öðrum, ákváðu
að kominn væri tími til að endurvekja
áhugaleikhús sveitarfélagsins. Þá hafði
Leikfélag Ólafsvíkur verið óvirkt um
nokkurn tíma og í raun lagt niður.
Var félagið endurvakið með nýrri nafngift til heiðurs mætri konu,
Sigurlaugu Heiðrúnu Jóhannsdóttur (19.12.42-14.05.15). Starfaði
Sigurlaug, eða Lauga eins og hún var gjarnan kölluð, lengi með
Leikfélagi Ólafsvíkur, meðal annars sem formaður þess, og bauð
alla er áhuga höfðu velkomna til liðs við félagið, með stakri hlýju
sem einkenndi alla hennar framkomu.
Í stjórn félagsins eru auk Guðmundar, Ari Bjarnason varaformaður,
Nanna Aðalheiður Þórðardóttir, ritari, Sóley Jónsdóttir, gjaldkeri,
og Guðrún Halla Elíasdóttir, stjórnarmaður. Einnig tóku þær Lilja
Þorvarðardóttir, Steiney Kristín Ólafsdóttir, Lísa Dögg Davíðsdóttir,
María Rós Guðmundsdóttir, Olga Guðrún Gunnarsdóttir og Stefanía
Sólborg Guðmundsdóttir ríkan þátt í að stofnsetja félagið, sem á án
efa eftir að verða uppspretta mikillar gleði og glaums og áhugasamir
hvattir til að koma og vera með.
Mikill spenningur er hjá íbúum Snæfellsbæjar hvað varðar framtakið,
bæði vegna þess að um tíu ár eru síðan síðasta leikrit var sett á
fjalirnar. Nú, undir leikstjórn Kára Viðarssonar, er verið að æfa
leikritið Sex í sama rúmi sem áætlað er að frumsýna í nóvember. Vilja
forsvarsmenn leikfélagsins koma hér með á framfæri að allir sem
þau hafa haft samband við hafa tekið þeim vel, þau finna fyrir afar
miklum velvilja bæði íbúa og fyrirtækja og eru mjög þakklát fyrir það.
Nýstofnað félag
Snæfellsbæjar
Kynnt er til leiks alþjóðleg
brúðulistahátíð um helgina
7.–9. október næstkomandi á
Hvammstanga, en þetta er í annað
skipti sem hátíðin fer fram hérlendis.
Á hátíðina kemur fjöldi erlendra
listamanna og brúðuleikhópa sem bjóða
upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja,
auk fyrirlestra og kvikmynda-
sýninga með umræðum við lista-
mennina á eftir, meðan á hátíðinni
stendur. Í ár er lögð sérstök áhersla
á tengslamyndun og faglega þróun,
samhliða frábærum sýningum fyrir
áhugasaman almenning.
HIP Fest, eða Hvammstangi´s
International Puppetry Festival er
einstök viðbót í menningarlíf lands-
manna, enda eina brúðulistahátíð
landsins. HIP Fest var valinn
menningarviðburður ársins á
Norðurlandi vestra árið 2020
og skipuleggjandi hátíðarinnar,
Handbendi - Brúðuleikhús, er nú-
verandi Eyrarrósarhafi, en Eyrar-
rósin eru verðlaun sem veitt eru
framúrskarandi menningarverkefni á
landsbyggðinni.
Á hátíðinni má líta fjölbreyttar
sýningar fyrir alla aldurshópa, sem
nýta sér öll blæbrigði listformsins,
en brúðulistin er fjölbreytt og fornt
listform sem allir ættu að geta notið.
Miðasala fer fram á tix og dagskrá
hátíðarinnar má finna á heimasíðu
hennar, thehipfest.com.
Hvammstangi 7.–9. október 2021
Alþjóðleg brúðulistahátíð
Ævintýri Skilaboðaskjóðunnar
þekkja margir, en hana hafa
margir kynnst, bæði í formi
bókar Þorvaldar Þorsteinssonar
sem útgefin var árið 1986 en líka á
sviðum leikhúsanna, þá helst sem
vinsælum söngleik.
Sagan segir frá þeim Putta
og Möddumömmu, búsettum í
Ævintýraskóginum þar sem öll
ævintýrin gerast. Putta verður rænt
af nátttrölli sem sér fyrir sér að
breyta honum í tröllabrúðu en íbúar
skógarins sameinast þá um að bjarga
honum fyrir sólsetur, sem er eins og
vitað er, örlagaríkur tími.
Einhverjir vankantar eru á
áætluninni þegar nornin, úlfurinn
og stjúpan vilja ekki vera með og þá
eru góð ráð dýr. Þetta er spennandi
og hjartfólgið ævintýri sem nú birtist
á fjölunum í Miðgarði* og á erindi
við bæði börn og fullorðna.
Leikarar eru þrettán talsins í 18
hlutverkum, en alls koma um 35
manns að sýningunni. Höfundur
er, eins og áður sagði, Þorvaldur
Þorsteinsson, höfundur tónlistar
Jóhann G. Jóhannsson og leikstjóri
er Pétur Guðjónsson.
Miðasalan hófst 30. september
(pantanir í síma 849-9434) og er
einungis um fjórar sýningar að ræða
svo panti nú hver sem betur getur!
Frumsýning miðvikudaginn 12. okt.
kl.18:00 - Önnur sýning föstudaginn
14. okt. kl. 18:00 - Þriðja sýning
laugardaginn 15. okt. kl. 14:00 og
svo lokasýning sunnudaginn 16. okt.
kl. 14:00.
*(Leikfélagið þurfti að gera
breytingu á sýningarstað vegna
framkvæmda í Bifröst og verður
því, að þessu sinni, sýnt í Miðgarði
í Varmahlíð)
/SP
Leikfélag Sauðárkróks:
Skilaboðaskjóðan sett á svið
Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, eða
Möddumamma, og Haraldur Már
Rúnarsson sem Snigill njósnadvergur.
Leikarar, leikstjóri og hluti starfsfólks sýningar. Myndir / Aðsendar
Þorgrímur Svavar Runólfsson, eða
Stóri dvergur, Kristín Björg Emanúels-
dóttir í hlutverki Mjallhvítar og Ásta Ólöf
Jónsdóttir sem Dreitill skógardvergur.
Björgvin Skúli Hauksson sem Putti
litli og Rannveig Sigrún Stefánsdóttir
í hlutverki Möddumömmu.
Sigurlaug H. Jóhanns-
dóttir, Lauga.
Af fyrstu æfingu nýstofnaðs félags, leikverkið Sex í sama rúmi.