Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2022 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókhálsi 5f – Sími 414 0000 Akureyri: Óðinsnesi 2 – Sími 464 8600 lci.is HAUSTÚTSALA ALLIR VARAHLUTIR Í LELY OG WELGER HEYVINNUVÉLAR 35% AFSLÁTTUR SEM TIL ERU Á LAGER Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum og gerðum Margar gerðir af vélbúnaði fyrir kæli- og frystiklefa Mikið úrval af hillum Járnháls 2 - 110 Reykjavík Sími 440 - 1800 www.kaelitaekni.is Kælitækni er leiðandi í sölu og uppsetningu á kerfum með náttúrlegum kælimiðlum TIMBUR EININGAHÚS Sími: 893 3022 einingar@einingar.is www.einingar.is   SJÓFATNAÐUR Í yfir 50 ár hefur Guy Cotten verið leiðandi í hönnun á bæði sjófatnaði og efnum til sjófatnaðargerðar. Hafðu samband, kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! isfell.is • sími 520 0500 ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI Vandaðar Alzaga kerrur frá Spáni 39 ára reynsla Innifalið í verði er nefhjól, varadekk, öryggiskeðja. Stærð kassi 2300x1400x440. 750 kg. Verð kerra frá 210.000 kr. Verð kerra með festingum fyrir hjól frá 250.000 kr. Upplýsingar í síma 666-0632. Í síðustu tölublöðum Bænda- blaðsins hef ég skrifað greinar um starfsemi RML. Í þessari sjöttu og jafnframt síðustu grein að þessu sinni um starfsemi RML ætla ég að fara aðeins yfir erlent samstarf fyrirtækisins. Erlent samstarf og samvinna RML er af margs konar toga og er mikilvægur hluti af því að hafa aðgang og geta nýtt sér nýjustu tækni og þekkingu hverju sinni. Mörg af þeim verkefnum sem við tökum þátt í byggja í grunninn a norrænu samstarfi sem á sér langa sögu þegar kemur að búvísindum og landbúnaði hér á landi enda tenging okkar við Norðurlöndin sterk og löng hefð fyrir því að nemendur í búvísindum hafi sótt sér framhaldsnám við háskóla á Norðurlöndunum Norfor er samstarfsverkefni Vaxa í Svíþjóð, Landbrug og Fodervarer í Damnörku, Tine í Noregi og RML á Íslandi. Samstarfið byggir á þróun og rekstri fóðurmatskerfis sem notað er á Norðurlöndunum en einnig aðeins utan þeirra. Hvert land á eignarhlut sem samsvarar fjölda mjólkurkúa á hverjum stað, eignarhlutur RML er því ekki mikill, eða um 2,8%, en við eigum engu að síður fulltrúa í stjórn Norfor og við erum þátttakendur í þó að litlum hluta sé í þróun kerfisins. Markmiðið með Norfor er að búa til bestu lausnina er kemur að fóðrun mjólkurkúa og holdanauta, þar sem horft er til sjálbærniviðmiða og umhverfisvænna lausna en að sjálfsögðu með hagkvæmustu leiðina fyrir bóndann í huga. Fóðursérfræðingar frá þessum löndum sjá í samstarfi um að þróa kerfið og byggja það upp. Notendaviðmót kerfisins er svo hannað í hverju landi fyrir sig en við notum kerfi Norðmanna, Tine Optifor. Nánari upplýsingar má sjá á https://www.norfor.info/ NCDX er annað norrænt samstarfsverkefni sem við eigum eignahlut í og erum þátttakendur á sama grundvelli og NorFor. Þar er þó munur á að Finnar eru þar einnig samstarfsaðilar. Í gegnum NCDX hefur verið unnið að því að þróa og byggja upp skýlausn sem einfaldar flutning á gögnum milli sjálfvirkra mjaltakerfa og skýrsluhaldskerfa. Eins og í NorFor eigum við eignarhlut í NCDX í hlutfalli við fjölda mjólkurkúa og eigum aðila í stjórn NCDX. Í gegnum NCDX samstarfið erum við nú aðili að iDDEN sem er alþjóðlegur samstarfsvettvangur til uppbyggingar á áðurnefndri skýlausn. Á vettvangi iDDEN sameinast skýrsluhaldsfélög frá 13 löndum með samtals um 20 milljónir mjólkurkúa um þessa uppbyggingu. Nánari upplýsingar má sjá á https://www.idden.org/. Mtech sem er hugbúnaðarfyrirtæki í eigu finnsku ráðgjafarþjónustunnar hefur séð um þróun á hugbúnaði NCDX og er í auknum mæli að þjónusta hugbúnaðarlausnir fyrir öll Norðurlöndin sem þá oft eru sameiginlegar. RML er í góðu sambandi við Mtech og horfum við til þess að auka það samstarf eftir því sem hentar hverju sinni. RML er ásamt Landbúnaðar- háskóla Íslands aðili að EAAP (European Federation for Animal Science). EAAP eru sjálfstæð alþjóðleg samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að rannsóknum er tengjast búfjárrækt á breiðum grundvelli. Flest Evrópulönd eru aðilar að EAAP og samtökin eru einnig í góðum tengslum við vísindamenn og búfjárræktarfólk annars staðar í heiminum. Í gegnum þetta samstarf höfum við aðgang að gríðarmikilli þekkingu og nýjustum rannsóknum á sviði búfjárræktar. Samtökin eru meðal annars einn af eigendum fræðiritsins Animal sem gefið er út í opnum aðgangi og hægt er að nálgast hér https://animal-journal. eu/. Í haust var Íslandi boðið að tilnefna aðila í stjórn EAAP sem situr þar sem fulltrúi, Íslands, Bretlands og Írlands og næstu 4 árin munum við því fyrir hönd RML og LbhÍ eiga stjórnarmann þar. Að lokum má nefna að RML er einnig aðilar að ICAR sem er alþjóðlegur vettvangur fyrir búfjárskýrsluhald og gagnasöfnun í tengslum við það. RML á að sjálfsögðu í margs konar fleiri tengslum við erlenda aðila, bæði í samvinnu og samskiptum, sem ekki eru talin upp hér. Ég vona að greinar þessar sem hafa birtst á síðum Bændablaðsins að undanförnu hafi verið upplýsandi og lesendur séu einhverju nær um starfsemi RML. Upplýsingar um þjónustu og ráðgjöf má sjá á heimasíðu okkar, WWW.rml.is, ásamt því að starfsfólk RML er ávallt til viðtals hvort sem um er að ræða í gegnum síma 5165000 eða á starfs- stöðvum RML. Karvel Karvelsson, framkvæmdastjóri RML. Karvel Karvelsson. Starfsemi RML – Sjötti hluti Mynd / Myndasafn Bbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.