Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2022
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókhálsi 5f – Sími 414 0000
Akureyri: Óðinsnesi 2 – Sími 464 8600
lci.is
HAUSTÚTSALA
ALLIR VARAHLUTIR
Í LELY OG WELGER
HEYVINNUVÉLAR
35%
AFSLÁTTUR
SEM TIL ERU Á LAGER
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
SJÓFATNAÐUR
Í yfir 50 ár hefur Guy Cotten verið leiðandi
í hönnun á bæði sjófatnaði og efnum til
sjófatnaðargerðar. Hafðu samband, kynntu
þér vöruúrvalið og þjónustuna!
isfell.is • sími 520 0500 ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI
Vandaðar Alzaga kerrur frá Spáni
39 ára reynsla
Innifalið í verði er nefhjól, varadekk,
öryggiskeðja.
Stærð kassi 2300x1400x440. 750 kg.
Verð kerra frá 210.000 kr.
Verð kerra með festingum fyrir hjól
frá 250.000 kr.
Upplýsingar í síma 666-0632.
Í síðustu tölublöðum Bænda-
blaðsins hef ég skrifað greinar um
starfsemi RML. Í þessari sjöttu og
jafnframt síðustu grein að þessu
sinni um starfsemi RML ætla ég
að fara aðeins yfir erlent samstarf
fyrirtækisins.
Erlent samstarf
og samvinna
RML er af margs
konar toga og er
mikilvægur hluti
af því að hafa
aðgang og geta
nýtt sér nýjustu
tækni og þekkingu
hverju sinni.
Mörg af þeim verkefnum sem
við tökum þátt í byggja í grunninn
a norrænu samstarfi sem á sér langa
sögu þegar kemur að búvísindum
og landbúnaði hér á landi enda
tenging okkar við Norðurlöndin
sterk og löng hefð fyrir því að
nemendur í búvísindum hafi sótt
sér framhaldsnám við háskóla á
Norðurlöndunum
Norfor er samstarfsverkefni Vaxa
í Svíþjóð, Landbrug og Fodervarer
í Damnörku, Tine í Noregi og
RML á Íslandi. Samstarfið byggir
á þróun og rekstri fóðurmatskerfis
sem notað er á Norðurlöndunum
en einnig aðeins utan þeirra. Hvert
land á eignarhlut sem samsvarar
fjölda mjólkurkúa á hverjum stað,
eignarhlutur RML er því ekki
mikill, eða um 2,8%, en við eigum
engu að síður fulltrúa í stjórn Norfor
og við erum þátttakendur í þó að
litlum hluta sé í þróun kerfisins.
Markmiðið með Norfor er að búa til
bestu lausnina er kemur að fóðrun
mjólkurkúa og holdanauta, þar
sem horft er til sjálbærniviðmiða
og umhverfisvænna lausna en
að sjálfsögðu með hagkvæmustu
leiðina fyrir bóndann í huga.
Fóðursérfræðingar frá þessum
löndum sjá í samstarfi um að
þróa kerfið og byggja það upp.
Notendaviðmót kerfisins er svo
hannað í hverju landi fyrir sig en
við notum kerfi Norðmanna, Tine
Optifor. Nánari upplýsingar má sjá
á https://www.norfor.info/
NCDX er annað norrænt
samstarfsverkefni sem við eigum
eignahlut í og erum þátttakendur á
sama grundvelli og NorFor. Þar er
þó munur á að Finnar eru þar einnig
samstarfsaðilar. Í gegnum NCDX
hefur verið unnið að því að þróa og
byggja upp skýlausn sem einfaldar
flutning á gögnum milli sjálfvirkra
mjaltakerfa og skýrsluhaldskerfa.
Eins og í NorFor eigum við eignarhlut í
NCDX í hlutfalli við fjölda mjólkurkúa
og eigum aðila í stjórn NCDX. Í
gegnum NCDX samstarfið erum við
nú aðili að iDDEN sem er alþjóðlegur
samstarfsvettvangur til uppbyggingar
á áðurnefndri skýlausn. Á vettvangi
iDDEN sameinast skýrsluhaldsfélög
frá 13 löndum með samtals um 20
milljónir mjólkurkúa um þessa
uppbyggingu. Nánari upplýsingar
má sjá á https://www.idden.org/.
Mtech sem er hugbúnaðarfyrirtæki
í eigu finnsku ráðgjafarþjónustunnar
hefur séð um þróun á hugbúnaði
NCDX og er í auknum mæli að
þjónusta hugbúnaðarlausnir fyrir
öll Norðurlöndin sem þá oft eru
sameiginlegar. RML er í góðu
sambandi við Mtech og horfum við
til þess að auka það samstarf eftir því
sem hentar hverju sinni.
RML er ásamt Landbúnaðar-
háskóla Íslands aðili að EAAP
(European Federation for Animal
Science). EAAP eru sjálfstæð
alþjóðleg samtök sem hafa það að
markmiði að stuðla að rannsóknum
er tengjast búfjárrækt á breiðum
grundvelli. Flest Evrópulönd eru aðilar
að EAAP og samtökin eru einnig í
góðum tengslum við vísindamenn
og búfjárræktarfólk annars staðar í
heiminum. Í gegnum þetta samstarf
höfum við aðgang að gríðarmikilli
þekkingu og nýjustum rannsóknum
á sviði búfjárræktar.
Samtökin eru meðal annars einn
af eigendum fræðiritsins Animal sem
gefið er út í opnum aðgangi og hægt er
að nálgast hér https://animal-journal.
eu/. Í haust var Íslandi boðið að
tilnefna aðila í stjórn EAAP sem situr
þar sem fulltrúi, Íslands, Bretlands
og Írlands og næstu 4 árin munum
við því fyrir hönd RML og LbhÍ eiga
stjórnarmann þar.
Að lokum má nefna að RML
er einnig aðilar að ICAR sem
er alþjóðlegur vettvangur fyrir
búfjárskýrsluhald og gagnasöfnun í
tengslum við það. RML á að sjálfsögðu
í margs konar fleiri tengslum við
erlenda aðila, bæði í samvinnu og
samskiptum, sem ekki eru talin upp
hér. Ég vona að greinar þessar sem
hafa birtst á síðum Bændablaðsins
að undanförnu hafi verið upplýsandi
og lesendur séu einhverju nær um
starfsemi RML. Upplýsingar um
þjónustu og ráðgjöf má sjá á
heimasíðu okkar, WWW.rml.is,
ásamt því að starfsfólk RML er ávallt
til viðtals hvort sem um er að ræða í
gegnum síma 5165000 eða á starfs-
stöðvum RML.
Karvel Karvelsson,
framkvæmdastjóri RML.
Karvel
Karvelsson.
Starfsemi RML
– Sjötti hluti
Mynd / Myndasafn Bbl.