Bændablaðið - 06.10.2022, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Bændablaðið prófaði á dögunum
nýjan rafmagnsbíl frá kóreska
bílaframleiðandanum Hyundai.
Þessi bíll er svipaður að stærð
og Skoda Enyaq iV og því má
eflaust flokka hann sem jeppling.
Allt yfirbragð bílsins ber með sér
vandaða hönnun og smíði.
Það fyrsta sem sést þegar gengið
er að bílnum er hversu veglegur hann
er. Af myndum af dæma gæti maður
haldið að bíllinn sé sambærilegur
Volkswagen Golf að umfangi en
hann leynir á sér. Hugsanlegt er að
stór dekk og stutt húdd valdi þessari
sjónhverfingu.
Kassalaga en rennilegur
Hönnuðir bílsins hafa greinilega
fylgt þema sem hefur verið skarpar
línur og bein horn og er hægt að lýsa
yfirbragðinu sem kassalaga. Þrátt
fyrir það er minni loftmótstaða á
þessum bíl en á Hyundai Kona.
Mjög afgerandi eru ljósin, sem
eru fjórir ferningar að framan og að
aftan ótal litlir ferhyrningslaga reitir
sem minna á grófa pixla.
Ytra útliti bílsins er hægt að
lýsa sem framtíðarlegu þar sem
innblástur er sóttur í bíla og tækni
frá níunda áratugnum.
Vönduð innrétting
Þegar sest er upp í bílinn blasa við
notandanum vel formaðir íhlutir
sem eru þéttir viðkomu og bera
með sér mikil gæði. Í mælaborðinu
eru tveir jafnstórir skjáir, annar er
beint fyrir framan ökumanninn og
sýnir grunnupplýsingar eins og
aksturshraða og drægni, á meðan
sá sem er fyrir miðju nýtist sem
margmiðlunarskjár. Ásjónan er öll
minimalísk og eru hnappar í algjöru
lágmarki.
Sætin styðja vel við líkamann og
vegan-leðrið gefur ekta nautsleðri
lítið eftir hvað varðar áferð og útlit.
Stillingar á rafmagnssætinu eru
fyrirhafnarlausar. Þar sem bæði er
hægt að stilla hæð sessunnar og
mjóbaksstuðning ættu flestir að geta
komið sér vel fyrir.
Stýri fer ekki nógu langt aftur
Stýrið er bæði velti- og aðdráttarstýri,
en takmarkaður stillanleiki olli
vonbrigðum. Þar sem ekki er hægt
að draga stýrið nógu langt aftur, geta
hávaxnir ökumenn þurft að teygja
sig óþægilega langt til að ná taki
á stýrinu eða stilla sætið framar en
þeir kjósa sér. Skoda og Volkswagen
eru með betri stillanleika hvað
þetta varðar.
Aftursætin eru rúmgóð og geta
þrjú börn eða tveir fullorðnir farþegar
setið þar í viðunandi þægindum með
nægu plássi fyrir fætur og höfuð.
Sætisbakið er hægt að stilla eftir
þörfum og stendur farþegunum til
boða að fá hita í sætin. Helst er hægt
að finna afturrýminu það til foráttu
að sessurnar liggja lágt niðri í gólfinu
og munu því hávaxnir farþegar sitja
með hnén í hálfgerðri jógastellingu.
Skottið er rúmgott og vel formað.
Gólfið flúttar við afturhlerann og
þegar aftursætin eru lögð fram liggja
þau nánast flöt. Undir húddinu að
framan er lítið geymsluhólf á stærð
við nestisbox og erfitt að sjá hvað
væri hægt að geyma þar.
Þýtur af stað
Akstursupplifun bílsins er afar
jákvæð. Verandi rafmagnsbíll, þá
er enginn titringur og hávaði frá
sprengimótor. Bíllinn er með tvo
rafmagnsmótora – einn fyrir hvorn
öxul – sem gefa samtals 325 hestöfl.
Það er því ekkert mál að láta sig
sökkva í sætin þegar tekið er af stað
á rauðu ljósi. Allt þetta afl er algjör
óþarfi nema fyrir skemmtanagildið
í þau örfáu skipti sem ökumaðurinn
nennir að þjóta af stað.
Þrátt fyrir að Hyundai Ioniq
5 sé 2.095 kílógrömm að þyngd,
þá finnur maður lítið fyrir því. Í
fyrsta lagi er gegndarlaust aflið frá
áðurnefndum mótorum það mikið
að bíllinn kemst upp í 100 kílómetra
hraða á einungis 5,2 sekúndum. Í
öðru lagi er mest öll þyngdin í
rafhlöðunum sem eru undir gólfinu
sem heldur þyngdarpunktinum
neðarlega og gefur stöðugleika.
Eins og að gleyma í handbremsu
Hægt er að velja á milli nokkurra
akstursstillinga. Þrjú þrep eru á afli
og viðbragði mótoranna sem gefur
ökumanninum möguleika á að velja á
milli glanna- eða sparaksturs. Einnig
eru nokkur þrep á mótorbremsunni.
Í lægsta þrepinu líður bíllinn
áfram á svipaðan hátt og venjulegur
bíll í hlutlausum. Í hæsta þrepinu
er mótorbremsan það mikil að
hemlafetillinn verður óþarfur við
venjulegan akstur. Upplifuninni af
því þrepi má líkja við að hafa gleymt
að taka bílinn úr handbremsu.
Margmiðlunarskjár flókinn
við fyrstu sýn
Við fyrstu sýn virðist margmiðlunar-
kerfið ónotendavænt. Virkni þess er
mjög breið þar sem hönnuðirnir hafa
reynt að fjarlægja flesta hnappa og
koma stillingum fyrir í snertiskjánum.
Þær stillingar sem notandinn þarf
að hafa sem greiðastan aðgang að,
s.s. hljóðstyrkur í hátölurum og
miðstöðin, er sem betur fer stjórnað
með aðgengilegum rofum.
Eftir markvisst fikt verður
margmiðlunarskjárinn skiljanlegur
og munu flestir ná tökum á að setja
inn áfangastað í leiðsögukerfinu,
velja birtustigið á sjónlínuskjánum
(e. head-up dislpay) og láta
afslappandi snark í eldi spilast í
hátölurunum á meðan.
Tölur
Helstu mál bílsins eru eftirfarandi:
Hæð: 1.605 mm; lengd: 4.635 mm;
breidd 1.890 mm.
Ódýrasta útgáfan af Hyundai
Ioniq 5 er af Comfort útgáfunni með
afturhjóladrifi og 58 kwh rafhlöðu.
Verðið á þeim bíl er 6.490.000
krónur með vsk.
Bíllinn í þessum prufuakstri var
af Style útfærslunni, sem er með
aðeins betri búnað en ódýrasta
útgáfan. Þar með talin eru vegan
leðursæti, upphituð aftursæti og
sjónlínuskjár.
Þessi bíll kom einnig með
fjórhjóladrifi og 77,4 kwh rafhlöðu
og kostar samkvæmt verðlista
Hyundai á Íslandi, 8.190.000 krónur
með vsk.
VÉLABÁSINN
Þrátt fyrir að það sjáist ekki á myndum er Ioniq 5 á stærð við jeppling. Flest ytri mál
bílsins eru svipuð og á Skoda Enyaq.
Afturljósin minna á grófa pixla. Skottið er af vel nothæfri stærð
og gólfið flúttar við afturhlerann.
Hyundai Ioniq 5 er vel útbúinn rafmagnsbíll sem gefur þekktum lúxusbílamerkjum ekkert eftir. Öll hönnun bílsins að utan sem innan er vel úthugsuð.
Myndir / ÁL
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Innrétting bílsins er smekkleg úr vönduðum efnum,
sætin þægileg og stillanleg með rafmagni. Helsti
ókosturinn er að ekki er hægt að draga stýrið nógu
langt aftur fyrir hávaxna ökumenn.
Agnarsmátt leynihólf er undir húddinu. Í aftursætunum fer vel um fólk, hvort sem um ræðir
þrjá í barnastærð eða tvo í fullorðinsstærð.