Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 14
Einn var rólegur. í BÓK sinni „The Soul of the War“, sem enski rithöfundurinn Philip Gibbs skrifaði í byrjun heimsstyrjaldarinnar fyrri, lýsir hann m. a. ástandinu í París þegar þýzku hersveitirnar voru komnar að hliðum borgarinnar. Höfuðborg Frakklands var nálega umkringd og um- sátur virtist óumflýjanlegt. Þegar Gibbs hefur rakið atburðaröð- ina, af mikilli nákvæmni — frá því að fyrstu fallbyssuskotin utan af orrustu- vellinum heyrðust inn í borgina, og þangað til ríkisstjórnin yfirgaf hana í ofboði — lýsir hann hvernig almenning- ur þyrptist, skelfingu lostinn, til járn- brautarstöðvanna og flóttanum í suður- átt eftir öllum vegum. Hann lýsir einnig hvernig honum sjálfum var innan- brjósts, þegar hann reikaði einn um mannlausar götur hinnar yfirgefnu stór- borgar: — Hvílík dauðakyrrð í þessari stóru borg! Hve undarleg og óhugnanleg kyrrð! Fótatak mitt bergmálaði í húsa- röðunum beggja megin götunnar. Það var eins og ég væri á ferð þar sem drep- sótt hefði geysað og útrýmt öllu lífi. Ein mannvera var þó eftir á bakka Signu, og það var ótrúleg huggun að sjá hana, í þessari hræðilegu einveru. Þetta var stangveiðimaður — miðaldra maður, með stráhatt á höfði, til varnar gegn sól- arhitanum, og stor gleraugu. Hann hélt styrkum höndum um stöng sína og beið þess rólegur, að bitið yrði á agnið. Af svip hans og fasi virtist mér mega ráða, að hann léti sig engu varða Þjóðverja, fallbyssur, hatur, áhyggjur og heimsku- pör þeirra, sem ekki kunna að veiða. Hann var sáttur við sjálfan sig og allan heiminn. Frá hans sjónarmiði var þetta góður dagur. Himininn var blár, sólin skein skært og langir skuggar trjánna teygðu sig út á vatnið. Og þarna stóð hann aleinn, veiðimað- urinn, eins og holdi klædd andstæða hinnar hrynjandi heimsmenningar og kjarkleysis mannlegra sálna. — Ég tók ofan fyrir honum. Kunni að svara fyrir sig. HEIMSPEKINGURINN frægi, David Hume (1711—1776) þótti enginn fríð- leiksmaður, og vissi það mæta vel sjálf- ur. Eitt sinn var hann á ferð með skipi yfir Forth-fjörðinn, og skall þá á svo mikið óveður, að tvísýnt þótti um ferðalokin og margir á skipinu töldu að sín síðasta stund væri komin. Kona ein meðal farþeganna var þó hin brattasta, vatt sér að heimspekingnum og spurði: — Hvort okkar haldið þér nú að há- karlarnir mundu éta fyrst, hr. Hume, ef við skyldum lenda bæði í hinni votu gröf? — Því get ég ekki svarað með öruggri vissu, fagra frú, mælti heimspekingurinn, — en hitt er víst, að þeir sem éta allt sem að kjafti kemur, mundu gleypa mig, en aðeins þeir matvöndu yður. 4 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.