Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 31
Bandarikjamaðurinn Aleslii, sem varð nr. 2 á
mótinu.
nngar eru hvimleiðir í hverjum góðum
félagsskap.
En snúum okkur þá að kastmótinu í
Zúrich. Það er heimsviðburður, sem allir
stangaveiðimenn og kastarar, sem iylgj-
ast með, veita atlrygli. Sunnudaginn 4. og
fram eftir degi þann 5. september, voru
þátttakendur að koma, hvaðanæva úr
heiminum, til borgarinnar. En síðdegis
þann 5. áttu þeir að mæta á aðalstöðvum
mótsstjórnarinnar og sækja skilríki sín,
þ. e. númer sitt, þátttökubók, flugur og
kastlóð, ásamt dagskrá með tímatöflu
keppninnar, að ógleymdu merki mótsins.
Allt var þetta afhent í snoturri plast-
möppu, sem einnig var í kort af borginni
og nágrenni, með ýmsum upplýsingum
um ferðir. Kl. 6 e. h. var svo opinber
móttaka hjá borgarstjóra, i ráðhúsinu. —
Voru þar haldnar viðeigandi ræður á
báða bóga, og góðar veitingar fram born-
ar. Það sem mér er minnisstæðast frá
þessu hófi, er að þegar við hjónin fórum
að kveðja borgarstjórann, sem gestgjafa
kvöldsins og þakka fyrir okkur, vorum
við að sjálfsögðu kynnt fyrir honum af
forseta I. C. F. Myron Gregory — okkar
góða kunningja, sem komið hefur tvisvar
hingað og á ekkert nema góð orð um Is-
land, og ætlaði nú að fara að leggja inn
með okkur — þá rétti borgarstjórinn upp
hendina og sagði eins og maðurinn um
árið: „Nú get ég“! „Þetta þekki ég allt
saman“. Svo sneri hann sér fyrir alvöru
að mér og sinnti engum öðrum um hríð
og hann spurði mig og spurði spjörunum
úr — um Ólaf Thors, Bjarna Ben., Hanni-
bal, hvort við ætluðum að reka Amerík-
anana frá Keflavík, um fiskveiðideiluna
við Breta og m. fl. Ég saup hveljur af
undrun, og hugsaði að mikið skolli væru
okkar menn orðnir frægir, eða hvort þeir
hefðu verið á einhverju móti hér, eins
og ég, og talað of mikið! Svo skýrði hann
fyrir mér hvers vegna hann vissi svona
margt um okkur og hefði gaman af. —
Hann kvaðst eiga dóttur sem hefði verið
hér í háskólanum hálft annað ár, og líkað
mjög vel við land og þjóð og ætti hér
ýmsa kunningja. Fjölskyldan hefði því
gaman af að fylgjast með málum hér
heima. Þessi ágæti borgarstjóri heitir dr.
Emil Landott, og var einkar ánægjulegt
að hitta hann.
Mótið hófst svo kl. 8 f. h. þann 6.
21
Veiðimaðurinn