Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 32
september með 10.63 gr. spinnköstum
(grein nr. 8). Þátttakendur voru 64. —
Lengst kastaði Arne Schultz, Noregi,
75,79 m. Styzt kastaði Þjóðverji, Kreuger
að nafni. Ég var nr. 47 og kastaði aðeins
56,73. En alls voru 82 þátttakendur á
mótinu.
Áður en haldið er áfram þessari frá-
sögn, er rétt og nauðsynlegt að geta þess,
að í ýmsum greinum varð árangur hér
ekki e!ns góður og vænta mátti, sökum
mjög óvenjulegs óveðurs fyrstu 2—3 dag-
ana. Gengdarlaus úrhellisrigning, svo að
segja frá morgni til kvölds, allt á floti og
allir a. m. k. í hnéháum ffúmmístíarvélum
o o
og regnkápum. Þar við bættist, að öðru
hvoru komu hálfgerðir sviftivindar nið-
ur hlíðarnar í kringum kastsvæðin, og
fór þá í handaskolum hjá ýmsum, sem
vonlegt var. En alltaf var haldið áfram,
því ekki er hægt að hn’ka til dagskránni,
ef allt á að geta farið fram á réttum tíma.
Seinni hluta mótsins stytti svo loks upp
og allt endaði í ágætis veðri.
Sama dag, kl. 1, var keppt í lengdar-
köstum, með 30 gr. lóði (grein nr. 10).
Þátttakendur þar voru 61. Lengst kastaði
Þjóðverji, Willi Stubbi, 143,01 m. Styzt
Van Hwick, Hollandi, 91,88 m. Ég var
nr. 40 með 107,95 m.
Þann 7., kl. 8 f.h. byrjuðu lengdarköst
með 17,72 gr. lóði (grem nr. 7).
Venjulegur veiðiútbúnaður eins og í
nr. 8 nema nú með kasthjóli. Skráðir
þátttakendur voru 55. Lengsta kast átti
Svíinn R. Fredriksson, 92,22 m. Styzt
Brinko, Sviss, 54,67 m. Ég var nr. 44 með
aðeins 59,96 m.
Kl. 1 e. h. sama dag, líka 17,72 gr.
lengdarköst. Frjáls aðferð og útbúnaður,
22
(grein nr. 9). Lengst kastaði Jon Taran-
tino, Bandaríkjunum, 129,39 m. Styzt,
Claude, Frakkland, 61,97 m. Þátttakend-
ur voru 38 í þessari grein.
Þann 8. kl. 8,30 f. h. liófust hæfniköst
með einh. flugustöng (gre:n nr. 1). 58
tóku þátt í þeirri grein. Hæstu stigatölu
hafði Steve Aleshi, Bandar., 91 stig. —
Lægstur var Doetsch, Þýzkalandi, 7 stig.
Sama dag kl. 9,30 f. h.: Hittiköst með
17,72 gr. lóði (grein nr. 5). Kastað var á
10 mörk í mismunandi fjarlægðum. 58
þátttakendur. Hæstu stigatölu hafði Jon
Tarantino, Bandar., 82 stig. Lægstur
Oudgaarden, Hollandi, 14 stig.
Og enn sama dag kl. 1,30 e. h.: Ein-
hendis fluguköst (grein nr. 3). 50 þátt-
takendur. Iængst kastaði Jon Tarantino,
Bandar., 48,98 m. Styzt L. Sweet, Eng-
landi, 29,01 m. Ég var nr. 22 með
40,06 m.
Þann 9. kl. 8,30 f. h. byrjuðu tvíhendis
fluguköst (grein nr. 4). 43 þátttakendur.
Lengsta kast átti Jon Kolseth, Noregi,
62,94 m. Styzt, Annen, Sviss, 32,13 m.
Ég var nr. 34 með 41,67 m.
Jon Kolseth, sem vann grein nr. 4, var
nýbúinn að kasta á móti í Noregi rúma
67 metra, og í Englandi hafði verið kast-
að 74 yards í sumar, en í báðum tilfell-
um undan vindi (of miklum) svo hvorugt
var tekið gilt sem nýtt met.
Sama dag kl. 9,30 f.h. hófust hittiköst
með 10,63 gr. lóði og spinnhjóli (grein
nr. 6). Flest stig fékk Jon Tarantino,
Bandar., 76 stig. Lægstur var Blagbum,
Englandi, 8 stig. Þátttakendur voru 59 í
þessari gre:n. 100 stig er það hæsta sem
hægt er að fá í hittiköstum. Þá verður að
hitta hvert mark í fyrsta kasti.
Veidimacdrinn