Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Side 35
fundist í vestanverðu Miðjarðarhafi og
við Japan“. Ennfremur við ísland, sbr.
það sem sagt var hér að íraman.
Talið er að fiskur þessi geti orðið upp
í 7 pund, eða þar um bil, og yfir 1/%
rnetri á lengd. Þeir fiskar sem fundist
hafa hér, voru frá 53—63 cm. á lengd,
en það er talið „öllu meiri lengd en
þekkt er annars staðar“.
Vísindamenn hafa haft mikinn áhuga
fyrir þessum fiski, sem eðlilegt er, þar
sem hann er mjög sjaldgæfur. Sá fyrsti,
sem Norðmenn veittu athygli, veiddist
árið 1871, og á þeim 90 árurn, sem síð-
an eru liðin, hefur safnið í Bergen feng-
ið aðeins um 20 fiska. Hafa norskir fiski-
fræðingar beðið um að fá senda þá fiska,
sem veiðast kunna, ásamt nákvæmum
upplýsingum um veiðistaði, dýpi, veiði-
tæki, lengd, stærð, hvaða dag fiskurinn
veiddist o. s. frv.
Oftast mun rauðserkurinn halda sig á
miklu dýpi. Einn þeirra, sem Norðmenn
hafa fengið, veiddist á 175 faðma dýpi,
en hann hefur einnig veiðst miklu ofar
í sjó. Þess vegna hafa norskir sjóstanga-
menn verið beðnir að hafa gætur á, ef
hann kemur á færi þeirra og senda hann
safninu í Bergen. Ætla má að íslenzkir
fiskifræðingar hafi engu minni áhuga
fyrir því að fá fisk þennan til rannsókn-
ar, en frændur vorir í Noregi, og þess
vegna þótti rétt að birta af honum mynd
og nánari lýsingu hér í Veiðimanninum.
I sambandi við tilmælin um að sjó-
stangamenn héldu fiski þessum til haga,
ef þeir veiddu hann, og sendu hann safn-
inu í Bergen, barzt veiðiritinu Fiske-
sport eftirfarandi bréf, þegar 20. fiskur-
inn veiddist við Noreg:
— I blaði yðar, nr. 2, 1956, var svolítil
grein með fyrirsögninni „Fornaldarfisk-
ur gengur aftur“. Þar er sagt frá því, að
fram til þess tíma hafi veiðst við Noreg
19 fiskar af lrinni sjaldgæfu tegund,
Beryx Decadactylus, og jafnframt óskað
eftir upplýsingum frá þeim, sem kynni
að hafa veitt þann tuttugasta. Einnig er
látin í ljós von um að stangveiðimanni
hlotnist þessi heiður. Fiskur nr. 20, þess-
arar tegundar, hefur þegar veiðst, en ég
verð að hryggja yður með því, að það var
ekki stangveiðamaður, sem veiddi liann.
Nei, það var því miður atvinnumaður!
Það var í kringum 20. janúar í ár, að
rauðserkur einn kom í net í Store Kjær-
ringfjord, hjá Stjernpy í Vestfinnmark.
Fiskurinn var sendur safninu í Tromstí,
sem í bréfi til undirritaðs liefur staðfest,
að hann sé af tegundinni Beryx D. og
sá fyrsti, sem veiðst hafi svona norðarlega.
Hann var 6 pund að þyngd og veiddist
á nokkuð miklu dýpi. Ekki tel ég miklar
líkur til að stangveiðimenn fái svona
fisk, en allt getur þó skeð, og ógerlegt
að fullyrða, hvað framtíðin kann að leiða
í 1 jós.
Með veiðimannakveðju,
Einar Bentsen.
Aths.: Satt er það, að ekkert skyldu
menn „fortaka“. Og hver veit nema ein-
hver íslenzkur sjóstangamaður setji í
rauðserk næstu árin? Veiðimaðurinn
mun þá fúslega birta veiðisöguna, ásamt
mynd af veiðimanni og fiski. — Veiði
einhver fisk, sem hann þekkir ekki eða
er í vafa um, er sjálfsagt að senda hann
Veiðimálastofnuninni til athugunar.
Ritstj.
25
Veiðimaðurinn