Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 41
Valdimar og tarþúninn seni hann veiddi, þegar
þeir félagar urðu veiðikóngar dagsins.
þess að gefa þeim eftir. Hann var þá í
bát með veiðimanni frá Panama, þeim
sem varð heimsmeistari í keppninni. —
Hann veiddi svo báða þessa fiska, sem
Valdimar dró út úr, því að þegar þeir
missa af einu agninu, renna þeir oft á
það næsta, og svo fór í þetta sinn. Áður
en Panamamaðurinn fékk þessa veiði —
annar fiskurinn var um 100 ensk pund
en hinn 130 — var hann nr. 8 í keppn-
inni, en fór upp í efsta sæti á þessu. Var
hann Valdimar mjög þakklátur fyrir
þessa „vinsemd“ og sagði að hann hefði
með henni fært sér heimsmeistaratitil-
inn!
Þegar veiðimaðurinn hefur þreytt fisk
sinn — en það getur tekið 40—50 mínút-
ur eða jafnvel meira, eftir því, live stór
hann er — og náð honum upp að hlið
bátsins, tekur veiðiþjónninn við, um leið
og sigurnaglinn snertir stangaraugað,
færir í fiskinn, rotar hann með trékylfu,
innbyrðir hann, beitir aftur og kastar út,
eins og áður.
Keppnin hófst undan ströndum Miami
Beach, því næst var haldið til Tampa,
sem er ofar á Flórídaskaganum og að
vestan-verðu. Var sú leið farin í vögnum,
og tók ferðin heilan dag. Undan strönd-
inni fyrir sunnan Tampa sáu veiðimenn-
irnir feikna stóra vöðu af hámerategund,
sem nefnd er porpoise. Sumir vilja raun-
ar telja hana til hvala. Barst þá talið
að hámeraveiðum á íslandi. Amerískir
veiðimenn eru deigir við að þreyta leik
við þessa tegund, auk þess sem hún kvað
taka mjög illa. Þeir hafa af einhverjum
ástæðum ótrú á að reyna við hana. —
Urðu þeir mjög hissa þegar íslending-
arnir sýndu þeim myndir af hámeraveið-
um hér. Var þeim félögum boðið að
dvelja þarna í viku, þegar mótinu væri
lokið, til þess að veiða porpoise og kváð-
ust heimamenn skyldu fara með þeim,
en þeir yrðu þó að veiða þær fyrstu!
Þessu góða boði gátu þeir ekki tekið.
í Tampa urðu þeir Gunnar og Valdi-
mar veiðikóngar einn daginn. Veiði var
mjög treg og fæstir fengu nokkuð. Valdi-
mar veiddi þá 120 punda tarpún og
hlutu þeir félagarnir bikar dagsins fyrir
heildarveiði sína. Þennan dag sáu þeir
Veiðimaðurinn
31