Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Blaðsíða 49
Tv«r bffikur
RITINU hafa borizt tvær bækur, sem
báðar fjalla um köst og kastæfingar. —
Höfundarnir eru heimskunnir menn í
Jaessari grein og margir íslenzkir veiði-
menn munu því kannast við þá og sumir
þekkja þá persónulega.
Casting heitir fyrri bókin og er eftir
enskan mann, Terry Thomas, sent er
mjög kunnur kastmaður og hefur stund-
að kennslu í þeirri grein um langt ára-
bil. Hann er einnig mjög snjall veiði-
maður, og að sögn hins kunna rithöfund-
ar og veiðimanns, Bernards Venables,
sem ritar formála að bókinni, einhver sá
geðþekkasti sportmaður sem hann hefur
kynnzt. Hann þekkir þá þó æði marga.
Höfundi þessarar bókar virðist eink-
ar sýnt um að tjá hugsanir sínar á skýr-
an og einfaldan hátt. Hann tekur til með-
ferðar undirstöðuatriði hverrar kast-
greinar og heldur svo áfram, uns hann
hefur gert henni þau skil, í hæfilega
löngu máli, sem eiga að nægja hverjum
sæmilega skynibornum lesanda til að sjá,
hvar tækni hans og kunnáttu kann að
vera ábótavant og hvað hann þarf að
gera til þess að bæta úr því.
Margar myndir eru í bókinni, allar
með afbrigðum skýrar og heppilega vald-
ar, með hliðsjón af því, sem þeim er ætl-
að að sýna. Er óhætt að fullyrða, að það
er rnjög sjaldgæft að slíkar myndir séu
manna, eða aðra, sem að kastmálum
vinna. Þvert á móti hyggst Stangaveiði-
félagið leita samvinnu við alla aðila, sem
að þessum áhugamálum starfa, þannig
að kastæfingum verði hér komið í svo
gott horf sem okkur er auðið. Stutt verði
að þátttöku í kastmótum hér og erlendis,
svo sem efni okkar og ástæður skást leyfa
á hverjum tíma, og síðast en ekki sízt að
öllum stangveiðimönnum gefist tækifæri
til að tileinka sér sportlegar ve:ðiaðferðir,
þ. e. fyrst og fremst meðferð fluguveiði-
tækja. Vinnum að því á borði, en ekki
aðeins í orði.
Stangaveiðifélagið hefur þegar leitað
ráða og leiðbeininga hjá Alþjóðakast-
sambandinu, I. C. F., og fengið þar mjög
góðar undirtektir um fyrirgreiðslu. Gerð-
ar hafa verið ráðstafanir til að fá kvik-
myndir til sýningar. Hefur félagið feng-
ið lista yfir amerískar myndir, sem
mundu henta í þessu skyni, en óvíst er
enn hvað af þeim verður fáanlegt.
Kastnejndin.
P.S.: — Þess er að geta, að þeir félagar
sem vilja taka þátt í inniæfingum félags-
ins, Jrurfa að láta skrá sig á skrifstof-
unni, Bergstaðastræti 12B og verður
mönnum þá, eftir því sem rými leyfir,
raðað á þá tíma, sem félagið getur fengið
til afnota. Tímarnir til áramóta eru nú
um það bil fullskipaðir, en þeir sem ætla
að byrja eftir áramótin, ættu að hafa
samband við skrifstofuna eða kastnefnd-
armenn fyrir áramót,
Veiðimaðurinn
39