Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 64

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 64
Frásaga með formála. Eftir HINRIK ÍVARSSON, Merkinesi í Höfnum. ÉG VAR eitt sinn gestur hjá hinum ágæta presti síra Lárusi Arnórssyni á Miklabæ í Skagafirði. Hann er mjög víð- lesinn og gáfaður maður, höfðingi hinn mesti heim að sækja, þykir gaman að ræða málin frá ýmsum hliðum, og er framúrskarandi rökfimur. Ég fór, eins og við sjálfan mig, að fár- ast yfir viðburði, sem komið hafði fyrir Gísla á Miðhúsum við refaveiðar. Gísli er næsti nágranni Lárusar og ein af refa- skyttum þeirra Skagfirðinga, duglegur og heppinn. Snýr síra Lárus sér þá hvatlega að mér og segir: „Hefur þú nú látið hann Gísla ljúga einhverju að þér?“ Mér varð fjandi hverft við, og spurði hvort hann héldi að Gísli hefði verið að ljúga að mér. Ég sá að presti fannst hann hafa talað af sér, og hann hikaði við, en sagðisvo: „Ja, þessar veiðisögur — þegar veiði- menn fara að segja sögur af veiðum sín- um, þá ýkja þeir alltaf minnst um helm- ing“. Ekki segi ég frá þessu til að varpa nein- um skugga á síra Lárus, heldur til að sýna hversu almenn skoðun þetta er. Ef til vill er það vorkunnarmál, en hvað um það, ég brást hart en kurteislega við, og andmælti þessari skoðun síra Lárusar, enda tók frú hans í sama streng, og kvaðst viss um að Gísli hefði ekki verið að ljúga neinu að mér, hann væri sannorð- ur og vandaður maður. Ég sagði Lárusi að ég hefði lifað svo ótrúleg augnablik við veiðiskap, einkum refaveiði, að næst- um tæki franr hverri lygasögu. Þar við bættist, að sannur veiðimaður lifði svo og hrærðist í starfinu, að jafnvel hin smæstu atvik yrðu ljóslifandi í minning- unni, og þegar farið væri að segja frá, segja veiðisögur, yrði frásögnin oft svo hár-nákvæm, að hlustandinn tryði tæp- lega að sögumaðurinn myndi þetta allt svona nákvæmlega. En þetta gerir ein- mitt allan muninn, veiðimaðurinn sér allt eins og það gerðist, man hvernig veður var, litbrigði náttúrunnar, og hin minnstu hljóð ásamt augnafyrirbærum, því að í því liggur ein mesta þjálfun veiði- mannsins, að vera „innstilltui" sem bezt á hvorutveggja. Dýrin (tófurnar) lifa áfram ljóslifandi í minningu veiðimanns- ins, e'ns og hann sá þau, rennileg, liðug og hnarreist, og hann minnist allra bragða, sem hann hefur leitað í hverju tilfelli, til að bera hærri hlut í viðskipt- unum við þetta skynsama og slæga dýr, og þegar skotið ríður af, og dýrið hníg- ur að velli, þá er það með blöndnum til- finningum, sem maður tekur það upp og virðir fyrir sér, eða þannig er mín skap- höfn. Ég get aldrei hatað tófuna frekar en annað af verkum skaparans, þó að mér virðist athafnir hennar ljótar frá mann- 54 Veiðimaburinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.