Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 73

Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 73
GAMLI maðurinn stóð úti í ánni, upp undir mið læri. Þetta var áin hans. Hér hafði liann veitt síðan hann var lítill drengur, og oftast á sarna staðnum, rétt neðan við fossinn. Niðurinn í fossinum hafði oft og einatt kæft köllin heiman- að, um að maturinn væri tilbúinn, og því hafði hann stundum fengið ákúrur og engan mat, þegar heim kom. En það var nú orðið langt síðan. Sá gamli þekkti, hvernig áin þrýsti að stígvélunum, og hann naut þess í ríkum niæli, að geta enn varizt ásókn hennar, til þess að reyna að slá honum flötum. Sólglampinn frá vatninu skrám- aði í augun og myndaði nýjar hrukkur í skorpnu andlitinu. Sólin vermdi og mýkti stirða limi hans. Köstin urðu mýkri og flugan féll léttar á vatnið með hverju kasti. Köstin voru að sönnu livorki eins mjúk né löng og fyrir þrjá- tíu árum, en hann hafði lært af reynsl- unni, að lengdin ræður ekki alltaf úr- slitum. Áin var orðin honum opin bók, og kæmi hann að nýrri á, sá hann strax livar fiskur lá undir steini og hvar eng- in von væri um líf. Flugusafn lians hafði orðið fábreyttara eftir því sem árin liðu. Frá unglingsárunum, þegar hann átti fullar bækur og möppur af flugum í öllum regnbogans litum, og til þessa dags — þegar tegundirnar voru aðeins orðnar 5 eða 6, í nokkrum stærð- um — var löng, samfelld röð af veiðiár- um, svo mörgum, að þau voru farin að renna saman í huga hans. Þau mynduðu bjart baksvið á lífi hans, eftir að hann var kominn „í hornið“. Heimilisfang: C/o Jörgen Hall og frú, en það voru tengdasonur hans og dóttir. Elísabet dóttir lians var ekki alltaf sem hrifnust af þessu hugðarefni föður síns. Hún átti til að vera þung á brún- ina, þegar hann kom heim blautur upp að mitti, og stöku sinnum hafði hún tilkynnt honum, að héldi hann þessu áfram, yrði hann að hugsa sér fyrir öðr- um dvalarstað. En þeim gamla skildist Veiðimaðurinn 63

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.