Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Side 10
Málgagn stangveiðimanna - Nr.123
Ljósm. RH.
„Maðurinn einn er ei nema hálfur,
með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. “
Þessar ljóðlínur úr kvæðinu Fákar eftir
Einar Benediktsson tengjast ósjálfrátt
þessari mynd, þó slík fjölskyldustemmn-
ing sé mun sjaldgæfari við laxveiði heldur
en silungsveiði, enda víða bannað að hafa
með sér börn við laxveiðiár.
Þar af leiðandi verður að telja silungs-
veiði meira fjölskyldusport heldur en lax-
veiði, enda veitir hún fólki fremur hið rétta
uppeldi í sportinu, því þar lærir það að
hrista af sér þær hömlur sem gervimenn-
ing borgarlífsins setur því, njóta útiver-
unnar við frumstæð þægindi og huga að
ýmsum dásemdum náttúrunnar og reynd-
ar tilverunnar allrar, án þess að fyrirverða
sig fyrir kostnaðinn.
Samkvæmt nýlegum upplýsingum
keyptu Islendingar lyf fyrir u.þ.b. 2
milljarða kr. árið 1986, en því miður höf-
Forsíðu-
myndin
um við ekki mælikvarða um það hversu
stóran hlut við veiðimenn eigum í þeirri
hít, né hversu gífurlegar upphæðir við
getum sparað í lyfjakaupum með því að
efla aðstöðu fyrir fólk, til heilbrigðrar úti-
vistar í okkar fögru og ómenguðu náttúru.
Skyldi það nokkuð vera of fjarlægur
draumur að sjá opnaðan fólkvang, eins
konar veiðimannaparadís upp á Arnar-
vatnsheiði?
Væri það ekki verðugt verkefni fyrir
Landssamband stangaveiðifélaga að beita
sér fyrir því að sameina stangaveiðifélögin
í því að byggja þar nokkur smáhýsi í sam-
vinnu við veiðiréttareigendur og fá Vega-
gerðina til að gera þangað akfæran veg
bæði að sunnan og norðan?
Og skyldi þá ekki fækka pilluglösunum
á mörgum heimilunum, ef þessi draumur
yrði að veruleika?
Það er sérstök ástæða til að fagna þeirri
ákvörðun Stangaveiðifélags Reykjavíkur
að hafa nú nýlega tekið á leigu Geitabergs-
vatn í Svínadal og bjóða upp á nokkurra
daga hópferðir til Veiðivatna og hugsan-
lega til bleikjuveiði á Grænlandi.
Er ekki að efa að mikil þátttaka verður í
þessum ferðum, enda varla hægt að hugsa
sér heilbrigðara fjölskyldusport heldur en
silungsveiði, því þar njóta jafnt ungir sem
aldnir samvista við móður náttúru, sem
okkur öllum ber að rækta og varðveita sam-
eiginlega, afkomendum okkar til farsældar
og öðrum þjóðum til fyrirmyndar.
Myndin sýnir Þórð Pélursson, veiði-
vörð við Laxá í Aðaldal, aðstoða Ingva
Hrafn Jónsson og fjölskyldu við að
landa laxi á Suðurhólma.
R.H.
6
VEIÐIMAÐURINN