Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 11
Árni Erlingsson
Upphaf stangaveiði
austanfjalls
Sennilegt er að það sé ekki fyrr en upp úr
1850 að farið er að stunda stangaveiði hér á
landi. Segja má að Bretar hafi þar rutt
brautina, því um þetta leyti tóku þeir að
koma hingað til lands til veiða, einkum í
ánum í Borgarfirði.
Talið er að Andrés Andrésson (Vigfús-
sonar) Fjeldsted sé fyrsti Borgfírðingur-
inn sem stundaði stangaveiði.
í byggðasafninu í Borgarnesi er veiði-
stöng sem hann fékk frá Englandi árið 1852
og segir Björn Blöndal hinn kunni veiði-
maður og rithöfundur frá því að það sé
að sögn fyrsta veiðistöngin sem til lands-
ins kom (sbr. B.Bl.: 1972, 182).
En það er fleira sem gerist um þetta leyti
varðandi laxveiði hér á landi og er það
reyndar að nokkru tengt komu Bretanna og
stangaveiði þeirra.
Laust fyrir 1860, í kjölfar aukins versl-
unarfrelsis, tóku breskir fésýslumenn að
renna hingað hýru auga. Þar var framar-
lega í flokki James Ritchie er átti niður-
suðuverksmiðju í Peterhead á austanverðu
Skotlandi. Hann kom hingað vorið 1857
með búnað allan er til niðursuðu þurfti og
reisti hús við Brákarpoll, þar sem Borgar-
nes stendur nú. Hann keypti lax af bænd-
um og sauð hann niður.
Sama sumar hafði Andrés Vigfússon
Fjeldsted bóndi á Hvítárvöllum norskan
Arm Erlingsson er kennari á Selfossi og
félagi í Slangveiðifélagi Selfoss. Hann
hefur kannað upphaf stangveiði í Ames-
sýslu og birtast hér niðurstöður rannsókna
hans.
mann að gistivini. Norðmaðurinn kenndi
honum nýja aðferð við netalagnir í Hvítá,
eða þá að hlaða grjótgarða út í ána og nota
svonefnd króknet. Við það jókst veiðin til
muna (má segja að þetta sé sú aðferð sem
enn tíðkast lítið breytt þegar lax er veiddur
í net).
Sumarið eftir flutti Ritchie starfsemi
sína að Grímsárósi og í um tvo tugi ára
keypti hann lax úr öðrum ám, m.a. Elliða-
ánum, í sama skyni (sbr. Jón Helgason:
1967, 31-32).
VEIÐIMAÐURINN
7