Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Síða 16
Við Kaldárhöfða áfjórða áratugnum. Aðstceður eru
nú mjög breyttar þarna, höfðinn t.v. hefur verið
lcekkaður og þar er nú brúin að Steingrímsstöð.
Ljósm. Karl Guðmundsson.
ekki verið seld svo dýru verði á innlendum
markaði. (Árið 1852 var hún seld á 650
ríkisdali, þá að sjálfsögðu með veiðirétti).
Samt má segja að hagsmunir kaupanda
hafí verið nokkuð vel tryggðir með afsal-
inu, sbr. ákvæðin um afnot lands.
Hverra manna?
Hver var hann þá þessi William Hog-
arth? Rétt þykir að gera hér nánari grein
fyrir því.
William Hogarth var sonur Georgs
Hogarth sem var umsvifamikill kaup-
sýslumaður í Aberdeen. Georg var mjög
áhugasamur um allt er að laxveiðum laut.
Eftir þeim heimildum að dæma sem tekist
hefur að afla og eru frá árinu 1825 (sbr.
British Parliamentary Papers: 1970, 329-
331), virðist að flesta þræði veiðimála á
norðaustanverðu Skotlandi hafi hann þá
haft í sínum höndum. Hann virðist m.a.
hafa verið frumkvöðull að ýmiss konar til-
raunum í þeim efnum s.s. með klak við
mismunandi aðstæður, þ.á.m. reyndi hann
klak í söltu vatni. Einnig er athyglisvert að.
um þetta leyti virðist það hafa verið skoðun
manna að unglaxinn (grilse) og stærri lax
(salmon) væru ekki ein og sama tegundin
(enda löngum gerður greinarmunur þar á
hjá Bretum), en Georg Hogarth fullyrti þá
að þar væri örugglega um sama fiskinn að
ræða. Hann er með aflatölur úr helstu án-
um í Skotlandi s.s. Dee og Don allt frá ár-
inu 1790 (annars vegar grilse og hins vegar
salmon) og virðist veiðin heldur aukast á
þessu 35 ára tímabili, þó nokkuð sé það
raunar misjafnt.
William Hogarth gerist svo hluthafí í
fyrirtækjum föður síns og virðist hann
vera tekinn við stjórn þar árið 1836. Gerir
hann veiðimálin að aðalatvinnu sinni og
virðist hann vera viðriðinn leigumála og
veiðar í mjög mörgum ám Skotlands s.s.
Tay, Dee, Don, Spey, Findorn, Nairn,
einnig sjávarveiði. Þá gerist hann ekki
síður stórtækur sem kaupandi þess fisks
sem veiðist enda eitt af hans fyrirtækjum
(Dixon, Hogarth & Company) starfrækt á
sviði matvælaiðnaðar (sala vista). Var það
mjög vel þekkt, gerði m.a. víðtæka samn-
inga við bresku stjórnina um útbúnað og
sölu vista meðan á Krímstríðinu stóð
1854-1856. Hafði fyrirtækið mjög gott
orð á sér.
Og enn tekur sonur við af föður. Alex-
ander Pirie Hogarth (f. 1834, d. 25/7 1903)
sonur Williams tekur svo við fyrirtækjum
þeirra og er þá skipaútgerð orðin stór þátt-
ur í umsvifum þeirra (Aberdeen Steam
Navigation Company). Aflaði hann sér
víðtækrar þekkingar og reyndist mjög
framsýnn útgerðarmaður. Hann innleiddi
þar ýmsar nýjungar sem síðar þóttu sjálf-
sagðar. Einnig er þess getið að hann hafi
verið frumkvöðull á fleiri sviðum, m.a.
hafí hann haft mikla ánægju af því að leika
12
VEIÐIMAÐURINN